Fréttablaðið - 01.06.2012, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 1. júní 2012 17
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Evrópumeistaramót karla í knattspyrnu hefst í næstu
viku. Evrópumeistaramót kvenna
verður á næsta ári. Í daglegu tali
er karlamótið þó oftast einfald-
lega kallað „EM“ en kvennamótið
„EM kvenna“, ef það er yfirhöfuð
kallað nokkuð. Oftast láta menn
eins og síðarnefnda mótið sé varla
til.
Svo djúpt ristir þetta, að jafnvel
femínistavefurinn knúz.is talar
um „Evrópumeistarakeppnina í
knattspyrnu 2012“ í opnu bréfi til
RÚV. Þar er Sjónvarpið hvatt til
að fá fleiri konur til að tala um
fótbolta í tengslum við mótið, sem
er fínt sjónarmið í sjálfu sér, en
enn æskilegra væri að sjá þær á
vellinum einnig. Mig dreymir um
eitt EM, með karla- og kvenna-
keppni á sama tíma.
Kvenna-Wimbledon?
Hin aðskildu karla- og kvenna-
mót skemma fyrir konum. Best
launaði fótboltakarl heims, Arg-
entínumaðurinn Lionel Messi,
fær 43,5 milljónir Bandaríkjadoll-
ara á ári fyrir iðju sína. Hinum
megin kynjalínunnar er brasil-
íska knattspyrnukonan Marta
sem fyrir hálfu öðru ári skrifaði
undir samning upp á hálfa milljón
í bandarísku kvennadeildinni
(sem nú er hætt). Sú upphæð hefði
sem sagt dugað fyrir fjögurra
daga samningi við Lionel Messi.
Árslaun bestu knattspyrnukonu
duga því til að borga besta knatt-
spyrnukarli fyrir einn leik.
Í tennis er staðan önnur. Sam-
kvæmt tímaritinu Forbes fær
Roger Federer 47 milljónir doll-
ara á ári fyrir að sveifla spaða,
meðan Maria Sharapova fær 24,2
milljónir. Þetta er vissulega enn
nokkur munur en samt margfalt
skárra en í knattspyrnunni.
Raunar er það svo að af tíu best
launuðu íþróttakonum heims eru
sex tenniskonur. Ætli stærsti hluti
skýringarinnar liggi ekki einmitt
í því að tenniskonur spila á sömu
mótum og karlar og njóta því
svipaðrar athygli og þeir. Til allr-
ar hamingju datt engum í hug að
búa til sérstakt Kvenna-Wimble-
don-mót.
Þetta virðist vera regla: Þar
sem mótin eru sameiginleg eiga
íþróttakonur betri möguleika á
að fá athygli. Skíðakonur, sund-
konur, frjálsíþróttakonur og fim-
leikakonur eru líklegri til að ná
svipuðum tekjum og karlar. Þær
konur sem spila handbolta, fót-
bolta eða körfubolta, þurfa sífellt
að berjast fyrir athygli.
Ættu „Kvennaólympíuleikar
í Gautaborg 2013“ mikinn séns
á að slá áhorfsmet? Varla. Auð-
vitað var það hárrétt frá öllum
sjónarhornum að gefa konum
færi á að keppa á Ólympíumóti
með áratugasögu frekar en búa
til eitthvert nýtt mót, bara fyrir
þær. Sömu ákvörðun hefði átt að
taka í knattspyrnu, en fyrst það
var ekki gert, þarf að leiðrétta
þau mistök.
Með sameiginlegu móti myndi
allt vinnast, kvennakeppnin fengi
verðskuldaðan sjónvarpstíma og
auðveldara væri að fylla vellina.
Nú stendur reyndar til að fjölga
liðunum á EM karla upp í 24 árið
2016. Það er leitt að það tækifæri
hafi ekki frekar verið notað til
að bæta við kvennakeppni. Það
breytir þó ekki því að markmiðið
til langs tíma ætti að vera að öll
Evrópu- og heimsmeistaramót í
liðaíþróttum væru ætluð báðum
kynjum.
Að sannfæra karlaklúbb
Líklegast þyrfti heilmikið puð
til að koma þessu til leiðar. FIFA
og UEFA eru nefnilega karla-
klúbbar í nokkuð beinni merk-
ingu þess orðs. Í sextán manna
stjórn UEFA eru sextán karlar.
Í seinustu viku var kona loksins
kosin í stjórn FIFA. Hún er sú
fyrsta í 108 ára sögu sambands-
ins. Þessar skekkjur hafa áhrif.
Það er þannig sífellt verið að
fjölga liðum í karlakeppnum en
fjölda liða í kvennakeppnunum
haldið niðri með þeirri afsökun
að kvennaboltinn sé „ekki búinn
að ná nógu miklum gæðum“.
Þessar bullskýringar hafa þau
áhrif að stelpur sem spila fótbolta
hafa síðri möguleika á að komast
í úrslitakeppni stórmóts en strák-
ar og þær sem þangað komast fá
minni athygli en þeir.
Hugmyndum sem þessum þarf
fyrst að vinna fylgi innanlands
og gera þær að opinberri stefnu
íslenskra íþróttasambanda á borð
við KSÍ. Næst þarf að vinna þeim
fylgi í útlöndum, og líklegast
best að byrja í norðurhluta Evr-
ópu, þar sem kvennaknattspyrna
stendur hvað best. Slíkar nýjung-
ar gætu vissulega mætt andstöðu,
en ef jafna á hlut karla og kvenna
í knattspyrnuheiminum er líkleg-
ast engin önnur leið vænlegri til
árangurs.
Eitt EM fyrir alla
Lionel
Messi
Marta Roger
Federer
Maria
Sharapova
40
30
20
10
0
Te
kj
ur
(
í m
ill
jó
nu
m
d
ol
la
ra
)
Knattspyrna Tennis
43,5
0,5
47,0
24,2
AF NETINU
Evrukrísan
Ástandið er að verða þannig að
hvert land er farið að hugsa meira
um hagsmuni sína en Evrópu,
þetta gæti snúist upp í einhvers
konar viðskiptastríð þar sem, eins
og Kristrún Heimisdóttir orðar
það á Facebook: „Hvert ríki ver
sjálft sig og samskiptin hrynja
vegna fjármagnsflutninga heim úr
útibúum, óskýrra marka á banka-
eftirliti milli ríkja og óvissu um
innistæðutryggingar?“
Það má litlu muna að verði banka-
áhlaup í löndunum við Miðjarðar-
hafið, að fólk þeysi út og reyni
að ná peningunum sínum út úr
bönkum. Við þetta gætu bankar
fallið unnvörpum, og ólíklegt er
að sparifjáreigendur fái peningana
sína.
Hvorki löndin né Evrópa sem
slík hafa innistæðutryggingakerfi
sem ræður við þetta, kerfið er
ekki hannað til að ráða við hrun
margra banka.
En á sama tíma er Evrópusam-
bandið aðili að dómsmáli gegn
Íslandi vegna bankahruns og
innistæðutrygginga …
http://silfuregils.eyjan.is/
Egill Helgason
Lækka bensínverð takk
Hráolía á heimsmarkaði hefur
lækkað um 16% en bensínverð á
Íslandi hefur eingöngu lækkað um
4,4%. Gengishækkun dollarans á
tímabilinu hefur numið 3% svo
segja má að einungis helmingur af
lækkun olíunnar hefur skilað sér
í vasa neytenda. Ef öll lækkunin
hefði skilað sér til neytenda væri
bensínlítrinn nú 20 krónum
ódýrari en raun ber vitni.
http://www.dv.is/blogg
Skúli Helgason
Notaðu Nicky þegar
þú ert búinn!