Fréttablaðið - 01.06.2012, Qupperneq 28
2 • LÍFIÐ 1. JÚNÍ 2012
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Forsíðumynd Valgarður Gíslason
Útlitshönnun Arnór Bogason
Auglýsingar Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
UMSJÓN
Ellý Ármanns elly@365.is
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
HVERJIR
VORU
HVAR?
Kjóll Hörpu: Sævar Markús
Förðun Hörpu: Fríða María
Fjöldi fólks lagði leið sína í miðbæ
Reykjavíkur yfir hvítasunnuhelgina
í veðurblíðunni. Söngvarinn Helgi
Björnsson og Vilborg Halldórs-
dóttir eiginkona hans, sem stjórna
væntanlegum þáttum um Lands-
mót hestamanna sem sýndir verða á
Stöð 2 í sumar, voru sæl saman á
veitingahúsinu Snafs. Þar var
einnig söngkonan Sigríð-
ur Thorlacius. Bragi Valdi-
mar Skúlason, oftar en
ekki kenndur við hljómsveit-
ina Baggalút, og Guðmund-
ur Kristinn Jónsson eða Kiddi í Hjálm-
um skemmtu sér á Kaffibarnum.
Þá voru Hrafnhildur Hólmgeirs-
dóttir og sjónvarpskokkurinn
Hrefna Rósa Sætran á veit-
ingahúsinu Boston.
Deriva Jewels er fimm ára
gamalt skartgripamerki frá
Hollandi á hraðri uppleið.
Hönnuðurinn Dana Smit
ákvað að leita til Íslands fyrir
næstu auglýsingaherferð sína
og er óhætt að segja að hún
hafi valið gott fólk til verka.
Fyrirsætan, fegurðardrottn-
ingin og fiðluleikarinn Mag-
dalena Dubik var valin and-
lit herferðarinnar og segir
hún þetta stærsta verkefnið
sitt til þessa. „Þetta var alveg
frábær reynsla og ótrúlega
skemmtileg. Það var ánægju-
legt að fá að vera partur af
svona stóru verkefni og fá
tækifæri til að vinna með
svona miklu fagfólki.“
Magdalena segir það mik-
inn heiður að hafa verið
valin í verkefnið. „Það er líka
skemmtileg tilfinning sem
fylgir því að vita hve mikið
myndirnar verða notaðar og
útbreiddar en hárvörumerkið
Balmain Hair mun einnig birta
myndirnar og dreifa þeim til
62 landa ásamt því að þetta
verður á heimasíðunni þeirra.
Arnold Björnsson ljós-
myndari sá um að taka
myndirnar og Iðunn Jónas-
ardóttir förðunarmeistari sá
um hár og förðun. „Dana var
búin að ákveða að mynda í
íslenskri náttúru og leitaði
því uppi íslenska ljósmynd-
ara á netinu og valdi mig eftir
þá leit,“ segir Arnold einnig
ánægður með verkefnið.
BAK VIÐ TJÖLDIN MEÐ MAGDALENU DUBIK
Fyrirtækið Inkasso flutti í ný húsakynni á 16. hæð í
Turninum á Smáratorgi. Af því tilefni var viðskipta-
vinum og velunnurum boðið til sumarfagnaðar. Eins
og sjá má var stemningin góð.
Haukur Örn Birgisson hæstaréttarlögmaður, Emil Helgi Lár-
usson eigandi Serrano og kona hans Elín Auður Trausta-
dóttir.
Sigríður Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Rizzo Pizza, Mar-
grét Þorsteinsdóttir, deildarstjóri hjá Actavis, og Nína Mar-
grét Rolfsdóttir.
Einar Hugi Bjarnason hæstaréttarlögmaður, Hörður Harð-
arson, lánastjóri hjá ÍSB, og Páll Hólm Sigurðsson húsa-
smíðameistari.
Gleðin var við völd í opnuninni.
SUMARFAGNAÐUR Í TURNINUM
Gildir til 30.8.2012
PI
PA
R\
TB
W
A
A
PI
P
TB
A
R\
A
BW
A
••
SÍ
A
SÍ
A
•
1
21
53
3
15
12
3
53
Matcha
frappó
með mangó-
bragði
Komdu á næsta
kaffihús Te & Kaffi
og bragðaðu
svalandi
sumardrykki.
Sjá nánar á visir.is/lifid