Fréttablaðið - 01.06.2012, Síða 48
1. júní 2012 FÖSTUDAGUR32
Myndlist ★★★★ ★
(I)ndependent People/„Sjálf-
stætt fólk“
Listasafn Reykjavíkur, Listasafn
Íslands, Norræna húsið, Kling &
Bang, Nýlistasafnið, SÍM, Listasafn
ASÍ o.fl.
Sýnt á Listahátíð í Reykjavík
Myndlistarþáttur Listahátíðar í
Reykjavík í ár heitir (I)ndependent
People, eða Sjálfstætt fólk. Skírskot-
unin í Ísland, Íslendinga, íslenska
þjóðarsál (er hún til?) og jafnvel
íslenska pólitík samtímans er ekki
víðsfjarri í íslenska heitinu, en í
því enska er snúið upp á hugmynd-
ina með því að taka I-ið í Independ-
ent út fyrir sviga, eða sjálfið tekið
úr sjálfstæðinu. Þessar vangavelt-
ur um sjálfið í samhengi við hóp-
inn sem það tilheyrir, eða tilheyrir
ekki, eru sígildar, en framsetningin
í þessari sýningu er á margan hátt
nútímaleg.
Þó að hinar ýmsu sýningar innan
(I)ndependent People snúist ekkert
endilega allar beint um sjálfstæði
eða sjálfstæðisleysi, þá er sjálft
listamannasjálfið hér undir, og spurt
spurninga hvort og þá hvernig þetta
sjálf þrífst innan hóps. Getur list-
hópur til dæmis fengið sameiginlegt
sjálf? Hvernig gengur listamönnum
að afsala sér höfundarrétti?
Meginhugmynd í uppbyggingu (I)
ndependent People gengur sem sagt
út á að gera tilraun til að má út lista-
manninn, og gefa listamannahópum
eftir sviðið. Sumir listamannahóp-
arnir hafa unnið saman í árarað-
ir, og vinna sem „einn“ maður, en
aðrir eru tímabundnari. Hóparnir
eru einnig misstórir, allt frá tveim-
ur meðlimum upp í mun fleiri.
LAGSKIPT SÝNING Framsetning (I)ndependent people er að mörgu leyti nútímaleg að mati gagnrýnanda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sígildar vangaveltur
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 01. júní 2012
Í samtali við Ríkisútvarp-
ið segir Gjörningaklúbburinn,
sem hefur ára- og bráðum ára-
tugareynslu af samvinnu, að um
leið og hugmynd sé sleppt lausri
og aðrir heyri hana, sé hún orðin
eign hópsins. Gjörningaklúbburinn
stendur fyrir einni af sýningunum
í Hafnarhúsinu. Listahópurinn
MEEH má segja að vinni einnig í
þessum anda, sleppi hugmyndum
út í loftið í formi fyrirmæla, sem
aðrir hrinda í framkvæmd. MEEH
er nýlegur hópur sjálfstætt starf-
andi íslenskra myndlistarmanna,
en verk þeirra, sem er til sýnis í
SÍM húsinu í Hafnarstræti, er
unnið að franskri fyrirmynd þar
sem menn notuðu aðferðina við
ritun á skáldsögum. MEEH tekst
þarna á við sjálfið, varpar frá sér
hugmyndinni, og lætur öðrum eftir
útfærsluna. Afsalar sér höfundar-
réttinum. Spurning hvort slíkt sé
til eftirbreytni almennt, a.m.k. má
ímynda sér að það gæti auðveld-
að flæði og framkvæmd verkefna
ef höfundarrétturinn er ekki að
flækjast fyrir.
(I)ndependent People er í raun
samansafn margra minni sýninga
og verkefna, og fer fram á mörg-
um stöðum, og á netinu einnig. Auk
þess er hún oft lagskipt, eða stig-
skipt öllu heldur. Móðursýning,
Independent People, undirsýning,
t.d. sýning Jónu Hlífar og Hlyns
Hallssonar í Hafnarhúsinu, og svo
eru sýningar innan þeirrar sýning-
ar, þ.e. samansafn verka eftir 100
listamenn í Blatt blaði.
Annað dæmi um lagskipta sýn-
ingu er áhugavert samstarfsverk-
efni sem þau Steingrímur Eyfjörð
og Ulrika Sparre eru í forsvari
fyrir, Jarðárur, sem einnig er í
Hafnarhúsinu. Þar er áhorfandinn
gripinn traustataki og honum boðið
að gera hinar ýmsu tilraunir með
skynjun og bylgjur, innan sýning-
arinnar. Jarðárurnar sjálfar, við-
fangsefni listamannateymisins,
er líka að segja má ósýnilegt nýtt
lag undir fótum okkar, reitaskipt-
ing jarðarinnar með svokölluðum
„Laylines“, eða Jarðárum. Þarna er
fjallað um orkuna í jörðinni, eins
konar neðanjarðarmenningu, eins
og minnst er á í kynningu í sýn-
ingarskrá. Það er fullt tilefni til að
hvetja fólk til að sökkva sér ofan
í Jarðárusýninguna, og ekki laust
við að maður skynji umhverfið
aðeins öðruvísi eftir á.
Á jarðhæð Hafnarhúss er falleg
innsetning eftir Elin Strand Ruin
og The New Beauty Council, og
samstarfsaðila. Innviðir sænskr-
ar félagslegrar blokkaríbúðar
hafa verið prjónaðir og hengdir
upp innan í álgrind, og hægt er að
ganga inn í íbúðina, sem er 75%
af raunstærð fyrirmyndarinnar.
Prjónuð eldhúsinnrétting og prjón-
að klósett lítur hálf-aumkunarlega
út, og minnir á mjúka skúlptúra
Claes Oldenburg. Um er að ræða
hugmyndalega afurð sænskra
listakvenna, sem allar ólust upp
í þessum félagslegu fjöldafram-
leiddu íbúðum í Svíþjóð, þar sem
allir þurftu að láta sér líka sama
skipulag, en gátu leyft sér að sníða
innviðina meira að eigin höfði.
Þetta verk er ágætt dæmi um það
sem (I)ndependent People geng-
ur út á og ætlar sér að vekja upp
umræðu um; verkið er unnið í
samvinnu margra, utan um gamla
félagslega hugmynd, og svo um
líf einstaklinga inni í miðstýrðu
skipulagi.
Þóroddur Bjarnason
Niðurstaða: Áhugaverð og marglaga tilraun
um sígilt viðfangsefni, en óvíst um niðurstöðu.
➜ Fræðsla
13.00 Boðið verður upp á fræðslu-
göngu um Grasagarð Reykjavíkur alla
föstudaga í júní. Þátttaka er ókeypis.
➜ Sýningar
11.00 Farandsýningin Ekki snerta jörð-
ina! Leikir 10 ára barna verður opnuð í
safnhúsinu Lækjargata 4 á Árbæjarsafni.
17.00 Landssamband íslenskra
frímerkjasafnara heldur veglega sýningu
á frímerkjum og sögulegum munum
þeim tengdum í sal KFUM og KFUK að
Holtavegi 28. Aðgangur er ókeypis.
➜ Hátíðir
10.00 Sjómanna- og fjölskylduhátíðin
Sjóarinn síkáti verður haldin hátíðleg í
Grindavík alla helgina. Nánari dagskrá
má sjá á www.sjoarinnsikati.is.
10.00 Sjómannadeginum verður
fagnað á Akureyri alla helgina. Yfirlit yfir
dagskrá má sjá á www.visitakureyri.is.
10.30 Bjartir dagar verða haldnir í
Hafnarfirði um helgina. Vegleg og fjöl-
breytt dagskrá í boði fyrir alla. Nánari
dagskrá og upplýsingar má finna á
www.hafnarfjordur.is.
13.00 Grímseyjardagar verða haldnir
í eyjunni um helgina. Fjölbreytt dag-
skrá í boði sem byggist á grímseyskum
hefðum. Nánari dagskrá má sjá á www.
grimsey.is.
17.00 Listahátíðin í Reykjavík stendur
nú yfir. Nánari upplýsingar á www.
listahatid.is.
➜ Leikrit
17.00 Leikritið Trúðleikur eftir Hallgrím
H. Helgason verður frumsýnt í Frystiklef-
anum á Rifi.
➜ Tónlist
17.30 Low Roar leikur í verslun 12
Tóna við Skólavörðustíg.
21.00 Ljótu hálfvitarnir spila á tón-
leikum í Hlégarði í Mosfellsbæ.
22.00 KK Band leikur á tónleikum
á Græna Hattinum. Bandið skipa KK,
Kommi og Þorleifur. Miðaverð er kr.
2.200.
23.00 Gullkistan leikur fyrir dansi á
Sumarfagnaði Kringlukráarinnar. Konur
fá frítt inn fyrir miðnætti og fordrykk þar
að auki.
23.00 Hljómsveitin Homo and the
sapiens heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
➜ Uppákomur
21.00 Verslunin Kiss verður með
tískusýningu á skemmtistaðnum Spot í
Kópavogi. Einnig verður sundfatasýning
frá versluninni Ég og Þú og alls kyns
uppákomur. Aðgangur er ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
12.15 Háskólinn í Reykjavík býður til
fyrirlestraraðar undir yfirskriftinni Verkin
tala í stofu V102. Einar Jón Erlingsson
og Hlynur Stefánsson tala undir yfir-
skriftinni Skilur einhver hagkerfið?
- Hermilíkan af íslenska hagkerfinu.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Umsóknarfrestur til 6. JÚNÍ
Keilir býður upp á fjölfaglegt og hagnýtt tæknifræðinám
á háskólastigi sem veitir útskrifuðum nemum rétt til að
sækja um lögverndaða starfsheitið tæknifræðingur eftir
þriggja ára nám. Nemendur geta valið um mekatróník
hátæknifræði eða orku- og umhverfistæknifræði.
Námið hentar vel þeim sem hafa verkvit og áhuga á
tæknilegum lausnum og nýsköpun.
KEILIR ÁSBRÚ 578 4000 keilir.net
NÁMSFRAMBOÐ
TÆKNIFRÆÐINÁM (BS)
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
BÝR Í ÞÉR
TÆKNIFRÆÐINGUR?
ORKU- OG
UMHVERFISTÆKNIFRÆÐI
MEKATRÓNÍK HÁTÆKNIFRÆÐI
Sýningin Gálgaklettur og órar
sjónskynsins opnar á Kjarvals-
stöðum á morgun klukkan 16.
Jóhannes Kjarval heimsótti
í aldarfjórðung reit í Garða-
hrauni norðan Hafnarfjarðar
sem hann kenndi við Gálga-
klett. Þar málaði hann fjölda
verka sem eru grunnurinn að
sýningunni.
Einnig er fjallað um fyrir-
bærafræði sjónskynsins og
hefur sýningarstjórinn Ólaf-
ur Gíslason fundið enduróm-
un í verkum annarra íslenskra
listamanna sem verða einnig til
sýnis.
Það eru listamennirnir Finn-
ur Jónsson, Svavar Guðnason,
Jóhann Eyfells, Erró, Vilhjálm-
ur Bergsson, Steina Vasulka,
Kristján Guðmundsson, Hreinn
Friðfinnsson, Jóhanna Krist-
ín Yngvadóttir, Helgi Þorgils
Friðjónsson, Ívar Valgarðs-
son, Erla Þórarinsdóttir, Hall-
dór Ásgeirsson, Kristján Stein-
grímur Jónsson, Georg Guðni,
Bjarni Sigurbjörnsson, Mar-
grét Blöndal, Egill Sæbjörns-
son, Heimir Björgúlfsson og
Sigurður Guðjónsson.
Sýningunni fylgir fjölbreytt
viðburðadagskrá sem hefst með
spjalli sýningarstjórans við
gesti og gangandi næstkomandi
sunnudag klukkan 15. Nán-
ari upplýsingar um dagskrána
má finna á vefsíðu Listasafns
Reykjavíkur.
- hþt
Gálgaklettur og Kjarval
GÁLGAKLETTUR Sýningin Gálgaklettur
og órar sjónskynsins verður opnuð á
Kjarvalsstöðum á morgun klukkan 16.
Ljótu hálfvitarnir