Fréttablaðið - 01.06.2012, Side 52
1. júní 2012 FÖSTUDAGUR36
Leikarinn Michael Fassbender
vonast til að framhald verði gert
á spennumyndinni Prometheus,
sem var að hluta til tekin upp
á Íslandi. Hann lagði sig allan
fram við tökurnar.
„Mér fannst mikil forrétt-
indi að vera hluti af hópnum.
Ég vildi ekki vera veikur hlekk-
ur og vann því heimavinnuna
mína eins vel og ég mögulega
gat. Þegar ég mætti í vinn-
una hafði ég upp á eitthvað að
bjóða,“ sagði Fassbender við
Digital Spy.
„Ég held að allir sem unnu við
myndina hafi haft á tilfinning-
unni að þeir væru að taka þátt í
einhverju merkilegu með Ridley
[Scott leikstjóra].“
Promotheus verður frumsýnd
á Íslandi í næstu viku. Myndin
segir frá geimkönnuðum sem
verða strandaglópar á fjarlægri
reikistjörnu.
Fassbender vill framhald
VILL MEIRA Michael Fassbender vonast
til að framhald verði á Prometheus.
36
popp@frettabladid.is
Rauðasandur er
stórfenglegur staður
og eins og úr öðrum heimi.
Maður tekur alveg andköf við
að koma þangað.
BJÖRN ÞÓR BJÖRNSSON
SKIPULEGGJANDI
MÁNAÐA FANGELSISVIST gæti söngvarinn Justin Bieber átt yfir höfði sér verði hann fundinn sekur
um að hafa ráðist á ljósmyndara skammt frá heimili sínu á sunnudaginn var. Ljósmyndarinn var
fluttur á spítala eftir átökin en Bieber var yfirheyrður af lögreglu á meðan.
6
Glaumgosinn Hugh Hefner er tek-
inn aftur saman við fyrrum unn-
ustu sína, Playboy-kanínuna Crys-
tal Harris. Líkt og frægt er orðið
yfirgaf Harris hinn aldraða unn-
usta sinn síðasta sumar, aðeins
viku fyrir fyrirhugað brúðkaup
þeirra.
Harris laumaðist burt af heim-
ili Hefners viku fyrir brúðkaup
þeirra og tók saman við Jordan
McGraw, son Dr. Phil. Stúlkan
hefur þó hlotið fyrirgefningu og
er flutt aftur inn til Hefners.
„Crystal grátbað Hugh um að
taka við sér aftur. Hann hefur
fyrirgefið henni og bauð hana vel-
komna aftur heim,“ var haft eftir
heimildarmanni. Shera Berchard,
núverandi kærasta Hefners, flutti
út sama dag og Harris flutti inn
og því virðist úti um það samband.
Fyrirgaf Harris
SAMAN Á NÝ Hugh Hefner og Crystal
Harris eru tekin saman á ný.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikarinn Dominic Monaghan vill
ekki vera vinur fyrrum samstarfs-
manns síns, leikarans Matthews
Fox, ef marka má Twitter-færslur
þess fyrrnefnda.
Monaghan og Fox léku báðir í
sjónvarpsþáttunum Lost en er ekki
vel til vina. Ungur aðdáandi þátt-
anna hafði samband við Monag-
han á Twitter og bað hann um að
reyna að fá Fox til að stofna Twit-
ter-síðu sem Monaghan neitaði að
gera. „Hann ber konur. Nei takk,“
svaraði leikarinn og bætti svo við:
„Hann lemur konur. Ekki einu
sinni, oft.“
Fox var nýverið handtekinn
fyrir ölvunarakstur og bíður nú
dóms.
Vill ekki vera vinur Fox
ÓVINIR Dominic Monaghan og Matthew
Fox er ekki vel til vina. NORDICPHOTOS/GETTY
Rauðasandur Festival er
tónlistarhátíð sem haldin
verður í náttúruparadísinni
á Rauðasandi í júlí. Þetta er
í fyrsta skipti sem hátíðin
er haldin.
„Við viljum hafa þetta rólega og
huggulega hátíð þar sem fólk getur
komið og skemmt sér og notið lífs-
ins í fallegri náttúru,“ segir Björn
Þór Björnsson, einn skipuleggj-
enda nýrrar tónlistarhátíðar sem
haldin verður á Rauðasandi á Vest-
fjörðum 6.–8. júlí næstkomandi.
Björn Þór stendur að hátíð-
inni ásamt vinum sínum Kristínu
Andreu Þórðardóttur, Jónínu de la
Rosa og Hirti Matthíasi Skúlasyni.
Sá síðastnefndi ólst upp á Rauða-
sandi og verður hátíðin haldin á
bóndabæ bróður hans að Melanesi.
„Rauðasandur er stórfenglegur
staður og eins og úr öðrum heimi.
Maður tekur alveg andköf við að
koma þangað,“ segir Björn Þór.
Í fyrrasumar ákváðu fjórmenn-
ingarnir að slá upp hálfgerðri
prufuhátíð á staðnum og buðu
vinum sínum og vandamönnum
að koma. Það gekk stórvel að sögn
Björns Þórs og hófust þau strax
handa við að skipuleggja almenni-
lega hátíð fyrir þetta sumar.
Mikil áhersla verður lögð á
kántrýtónlist, blues og aðra óraf-
magnaða tónlist og meðal þeirra
sem fram koma eru Lay Low,
Prinspóló, Low Roar, Johnny
Stronghands, Jefferson Hamer,
Snorri Helgason, Ylja og Smári
Tarfur. Tjaldaðstaða er góð á
svæðinu en tónleikarnir verða
haldnir í hlöðu á Melanesi. „Við
erum að smíða svið í hlöðunni svo
þetta verður alvöru hlöðuball,“
segir Björn Þór.
Það verður þó meira í boði en
tónleikar því á dagskránni eru
alls kyns uppákomur. „Sandurinn
er aðalmálið þarna svo við verð-
um með sandkastalakeppnir, jóga
í sandinum og fleira í þeim dúr,“
segir Björn Þór og hvetur fólk til
að taka börnin með sér. „Þetta er
lágstemmd og fjölskylduvæn hátíð
þar sem mikil og skemmtileg dag-
skrá er í boði fyrir alla aldurshópa
og fólk kemur til að njóta,“ segir
hann að lokum. Miði á hátíðina
kostar 6.500 krónur og má nálgast
á midi.is.
tinnaros@frettabladid.is
Hugguleg tónlistarhátíð á
Rauðasandi í byrjun júlí
Í NÁTTÚRUPARADÍS
Fjórmenningarnir Björn Þór, Kristín
Andrea, Jónína og Hjörtur Matthías
standa á bak við tónlistarhá-
tíð á Rauðasandi í júlí. Meðal
þeirra sem fram koma
eru Lay Low, Snorri
Helgason og Low
Roar.
Enn eru uppi vangaveltur um
hvort ólétta söngkonunnar
Beyoncé hafi verið raunveruleg
eða hvort hún hafi fengið stað-
göngumóður til að ganga með
dóttur sína Blue Ivy.
Líkamlegt form söngkonunnar
hefur gefið orðrómnum byr undir
báða vængi en hún þótti fljót að
ná af sér aukakílóunum eftir
barnsburð. Á tónleikum sem hún
hélt í Atlanta City um síðastliðna
helgi gerði hún þó sitt besta til að
útskýra það hversu fljót hún var
að ná sér aftur í form. „Ég bjó á
stigavélinni og borðaði bara kál,“
sagði Beyoncé við aðdáendur sína
á tónleikunum áður en hún sagði
frá því að hún hefði misst rúm 27
kíló á síðustu fjórum mánuðum.
Eitthvað virðist þessi yfirlýsing
hennar hafa fallið í dræman jarð-
veg því fólki þykir þetta frekar
há tala og ekki líklegt að hún hafi
í raun misst svo mikið frá því að
Blue Ivy fæddist.
Kílóamissir Beyoncé
27 KÍLÓ FARIN Söngkonan segist hafa
misst 27 kíló frá því hún átti dóttur sína
Blue Ivy fyrir fimm mánuðum.