Fréttablaðið - 01.06.2012, Page 56
1. júní 2012 FÖSTUDAGUR40
sport@frettabladid.is
LÍNUMENNIRNIR Orri Freyr Gíslason og Atli Ævar Ingólfsson eru báðir á leiðinni til Danmerkur þar sem þeir ætla
að spila á næsta tímabili. Orri Freyr mun fylgja þjálfara sínum Óskari Bjarna Óskarssyni frá Val til Viborg en Atli Ævar
Ingólfsson, línumaður Íslandsmeistaraliðs HK, hefur ákveðið að söðla um og spila með SønderjyskE á næstu leiktíð.
Þetta er mikill missir fyrir Val og HK en jafnframt ekki fyrsti lykilmaðurinn sem þessi lið missa fyrir næsta tímabil.
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
1-0 Kolbeinn Kárason (47.), 2-0 Matthías
Guðmundsson (49.), 3-0 Kolbeinn Kárason
(60.), 4-0 Kristinn Freyr Sigurðsson (88.)
Skot (á mark): 13-10 (5-5)
Varin skot: Sindri Snær 5 - Ómar 1
VALUR (4-3-3): Sindri Snær Jensson 7 - Brynjar
Kristmundsson 7, Atli Sveinn Þórarinsson 6, Matarr
Jobe 7, Úlfar Hrafn Pálsson 6 (70. Andri Fannar
Stefánsson 5) - Rúnar Már Sigurjónsson 6, Haukur
Páll Sigurðsson 5, Matthías Guðmundsson 7 -
Ásgeir Þór Ingólfsson 4, (63. Kristinn Sigurðsson
7), Hörður Sveinsson 5, *Kolbeinn Kárason 8 (81.
Atli Heimisson -).
KEFLAVÍK (4-3-3): Ómar Jóhannsson 3 - Grétar
Atli Grétarsson 4, Einar Orri Einarsson 4, Haraldur
Freyr Guðmundsson 5, Viktor Smári Hafsteinsson
5 - Denis Selimovic 3, Frans Elvarsson 5, (66.
Arnór Traustason 5), Sigurbergur Elísson 5 (66.
Magnús Þorsteinsson 5), Hilmar Geir Eiðsson
4, Jóhann Birnir Guðmundsson 6, Guðmundur
Steinarsson 6 (46. Bojan Ljubicic 4).
* MAÐUR LEIKSINS
Vodafonevöllur, áhorf.: 1273 Erlendur Eiríksson (6)
4-0
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
– einfalt og ódýrt
50% AFSLÁTTUR
AF NICOTINELL
TROPICAL FRUIT
204 STK. 2MG OG 4MG - TILBOÐIÐ GILDIR TIL 9. JÚNÍ
Spöngin 577 3500 • Hólagarður 577 2600 • Skeifan 517 0417 • Garðatorg 565 1321 • Setberg 555 2306 • Akureyri 461 3920
50%
AFSLÁT
TUR
KO
M
IÐ
A
FT
UR
!
0-1 Árni Vilhjálmsson (35.), 0-2 Petar
Rnkovic (73.)
Skot (á mark): 8-12 (3-6)
Varin skot: Duracak 4 - Ingvar 3
SELFOSS (4-5-1): Ismet Duracak 3 - Ivar Skjerve
5, Stefán Ragnar Guðlaugsson 5, Endre Ove
Brenne 6, Andri Freyr Björnsson 5 - Ólafur Karl
Finsen 4 (53. Joseph Tillen 5), Jon Andre Royrane
5 (74. Moustapha Cisse -), Babacar Sarr 5 (69.
Ingólfur Þórarinsson 5) 6, Robert Johann Sandnes
5, Jón Daði Böðvarsson 6 - Viðar Örn Kjartansson
6
BREIÐABLIK (4-5-1): BIngvar Þór Kale 7 – Gísli
Páll Helgason 6, Sverrir Ingi Ingason 6, Renee
Gerard 6, *Kristinn Jónsson 8 - Haukur Baldvinsson
7, Olgeir Sigurgeirsson 7 (83. Sindri Snær
Magnússon -), Andri Rafn Yeoman 6 (75. Jökull I.
Elísarbetarson -), Finnur Orri Margeirsson 7, Árni
Vilhjálmsson 7 (70. Rafn Andri Haraldsson 6 -) -
Petar Rnkovic 6. * MAÐUR LEIKSINS
Selfossvöllur, áhorf.: 746 Þóroddur Hjaltalín (x)
0-2
Pepsi-deildin - staðan
ÍA 5 4 1 0 9-5 13
KR 5 3 1 1 10-7 10
FH 5 3 1 1 6-3 10
Valur 6 3 0 3 9-6 9
Stjarnan 6 2 3 1 11-10 9
Keflavík 6 2 1 3 8-9 7
Selfoss 6 2 1 3 8-10 7
Breiðablik 6 2 1 3 3-6 7
Fylkir 5 1 3 1 7-6 6
Fram 5 2 0 3 6-7 6
ÍBV 6 1 2 3 8-8 5
Grindavík 5 0 2 3 8-16 2
NÆSTU LEIKIR
FH - Fylkir laugardagur kl.14.00
Grindavík - ÍA laugardagur kl.16.00
Fram - KR laugardagur kl.16.00
HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds-
son landsliðsþjálfari í handbolta
valdi 20 leikmenn í æfingahóp
fyrir leiki Íslands og Hollands í
undankeppni HM 2013. Þeir fara
fram dagana 10. og 16. júní en
fyrri leikurinn verður hér á landi.
Varnarmaðurinn Sverre Jak-
obsson er frá vegna meiðsla og þá
á Ásgeir Örn Hallgrímsson ekki
heimangengt þar sem hann varð
faðir nú fyrr í vikunni. Guðmund-
ur kallaði á Sigurgeir Árna Ægis-
son, fyrrum fyrirliða FH, í hópinn
í staðinn fyrir Sverre en Sigurgeir
Árni leikur nú með norska B-deild-
arliðinu Kristiansund.
„Við fengum tækifæri til að
skoða Sigurgeir í vetur þegar hann
spilaði með liði sínu í Þýskalandi
og hann stóð sig vel í þeim leik. Við
viljum sjá nú hvort hann geti leyst
Sverre af,“ sagði Guðmundur en
hann vonaðist þó til þess að geta
notað Sverre á Ólympíuleikunum.
„Sverre hefur verið að glíma við
ýmis meiðsli, til dæmis í olnboga,
öxl og hné. Hann þarf að fara í
sprautumeðferð og hvíld til að
koma sér aftur af stað. Það verður
auðvitað slæmt að hafa hann ekki
í þessum leikjum en við erum að
horfa til þess að hann verði klár
þegar Ólympíuleikarnir byrja.“
Hann segir þó að Ásgeir verði
mögulega til taks ef á þurfi að
halda í leikjunum gegn Hollandi.
En eins og málin standa nú verður
hann ekki með.
Bjarki Már Elísson fær nú
tækifæri til að sanna sig en þessi
vinstri hornamaður var öflugur
með Íslandsmeisturum HK í vetur.
Að öðru leyti kemur val Guðmund-
ar ekki mjög á óvart. - esá
Guðmundur Guðmundsson valdi 20 manna æfingahóp fyrir landsleikina gegn Hollandi:
Sverre þarf hvíld fyrir Ólympíuleikana
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Aron Rafn Eðvarðsson Haukar
Björgvin Páll Gústavsson Magdeburg
Hreiðar Leví Guðmundsson Nötteröy
Aðrir leikmenn:
Alexander Pettersson Füchse Berlin
Arnór Atlason AG Köbenhavn
Arnór Þór Gunnarsson TV Bittenfeld
Aron Pálmarsson Kiel
Bjarki Már Elísson HK
Guðjón Valur Sigurðsson AG Köbenhavn
Ingimundur Ingimundarson ÍR
Kári Kristján Kristjánsson Wetzlar
Ólafur Gústafsson FH
Ólafur Bjarki Ragnarsson HK
Ólafur I. Stefánsson AG Köbenhavn
Róbert Gunnarsson Rhein-Neckar Löwen
Rúnar Kárason Die Bergische HC
Sigurgeir Árni Ægisson Kristiansund HK
Snorri Steinn Guðjónsson AG Köbenhavn
Vignir Svavarsson Hannover-Burgdorf
Þórir Ólafsson KS Vive Targi Kielce
SVERRE Verður ekki með í leikjunum
gegn Hollandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Eftir afar dapurt gengi
að undanförnu var komið að Vals-
mönnum og Blikum að bíta frá
sér í leikjum sínum í 6. umferð
Pepsi-deildarinnar í gær. Þjálf-
ararnir, Kristján Guðmunds-
son hjá Val og Ólafur Kristjáns-
son hjá Breiðabliki, hristu upp í
byrjunarliðum sínum með góðum
árangri.
Tvenna hjá Kolbeini
Valur komst aftur á sigurbraut í
Pepsi-deild karla eftir þrjá tap-
leiki í röð. Liðið hafði betur gegn
Keflavík, 3-0, en mörkin komu öll
í síðari hálfleik.
Fyrri hálfleikur var lítið fyrir
augað og einkenndist helst af
miðjuþófi og hálffærum. Kefl-
víkingar virtust þó líklegri til að
skora ef eitthvað var en það voru
Valsmenn sem mættu afar frískir
til leiks í síðari hálfleik og gerðu
í raun út um leikinn með tveimur
mörkum á fyrstu fjórum mínút-
unum.
Kolbeinn Kárason gaf tóninn
með föstu skoti sem hafnaði í
netinu en Ómar Jóhannsson var
í boltanum og hefði mátt gera
betur. Matthías Guðmundsson
bætti svo öðru marki við áður
en Kolbeinn skoraði aftur á 60.
mínútu. Varamaðurinn Kristinn
Freyr Sigurðsson innisiglaði svo
góðan sigur undir lok leiksins.
„Við lögðum leikinn upp með
það í huga að pressa Keflvík-
ingana á ákveðnum svæðum en
leikurinn spilaðist öðruvísi en við
bjuggumst við í fyrri hálfleik,“
sagði Kristján Guðmundsson,
þjálfari Vals. „Við löguðum það í
hálfleiknum og þá small þetta um
leið. Hugarfar leikmanna var gott
og mér fannst liðið eiga góðan
leik, heilt yfir. Kolbeinn var svo
í byrjunarliðinu í fyrsta sinn og
nýtti sitt tækifæri mjög vel.“
Kolbeinn var sjálfur vitan-
lega ánægður með uppskeruna
en hann var óhræddur við að láta
bara vaða að markinu. „Maður
skorar ekki nema að skjóta. Ég
var óhræddur við það,“ sagði Kol-
beinn.
Jóhann Birnir Guðmundsson
var hvað frískastur í liði Kefl-
víkinga og var afar ósáttur við
dómgæsluna í leiknum. „Ég átti
að fá víti rétt áður en þeir skora
fyrsta markið. Ég var að fara
fram fyrir Atla sem gaf mér oln-
bogaskot í andlitið. Ég var við það
að taka boltann og markvörður-
inn að hörfa aftur á línuna,“ sagði
Jóhann, bersýnilega ósáttur.
„Í staðinn fyrir fer ég út af og
þeir komast yfir. Leikurinn hafði
verið í járnum og þetta skipti
miklu máli. Ég ætla samt ekki að
afsaka frammistöðu okkar eftir
það - við litum út eins og höfuð-
laus her.“
Jóhann var ansi oft tekinn
niður af Valsmönnum í leiknum.
„Ég veit ekki af hverju. Kannski
var ég búinn að fá of mörg M í
Mogganum.“
Blikar þrefölduðu markaskorið
Blikar skoruðu langþráð mörk
þegar þeir unnu 2-0 sigur á Sel-
fossi í gær en Blikar höfðu aðeins
skoraði eitt mark í fyrstu fimm
umferðunum. Það voru þeir Árni
Vilhjálmsson og Petar Rnkovic
sem skoruðu mörk Breiðabliks-
liðsins,
Það var aldrei spurning hvoru
meginn sigurinn myndi enda,
gestirnir voru mikið grimmari og
uppskáru verðskuldaðan sigur á
móti slöku liði Selfyssinga.
„Við ætluðum að koma og setja
pressu á þá strax í byrjun leiks
og það var orka í liðinu í dag sem
skilaði sér. Það kemur bara í ljós
inni á vellinum hvort menn eigi
að spila eða ekki. Það er mikil
barátta fyrir sætum í liðinu. Ég
er mjög ánægður með tvö mörk
í þessum leik og nú verða menn
bara að halda áfram og standa
sig,” sagði Ólafur Kristjánsson,
þjálfari Blika.
„Ég hef engar stórar áhyggj-
ur af framhaldinu. Auðvitað eru
allir leikirnir erfiðir og við viss-
um það alveg en það býr gífurlega
mikið í okkar liði og ég veit að við
getum náð hagstæðum úrslitum á
móti hvaða lið sem er,” sagði Logi
Ólafsson, þjálfari Selfoss.
- esá, lv, óój,
Blikar og Valsmenn bitu frá sér
Valsmenn enduðu þriggja leikja taphrinu sína og Blikar þrefölduðu markaskor sitt í sumar þegar bæði liðin
unnu flotta sigra í 6. umferð Pepsi-deildar karla í gærkvöldi. Valsliðið skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik.
GUÐMUNDUR MEIÐIST Guðmundur Steinarsson sést hér meiðast í lok fyrri hálfleiks í
stöðunni 0-0. Valsmenn skoruðu síðan 4 mörk í seinni hálfleik. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM