Fréttablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 62
1. júní 2012 FÖSTUDAGUR46
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Það er Wind of Change með
Scorpions. Það er gott að hugsa
um fall Berlínarmúrsins á
föstudögum. Það kemur mér í
gírinn.“
Dóri DNA uppistandari og meðlimur í
Mið-Íslandi.
Sala á nýrri plötu hljómsveitarinnar Múg-
sefjunar hefst á netinu í dag. Platan er svo
væntanleg í verslanir 11. júní. Um er að
ræða aðra plötu hljómsveitarinnar en sú
fyrsta, Skiptar skoðanir, kom út árið 2008.
Sveinn Ingi Reynisson harmonikkuspil-
ari, hljómborðsleikari og söngvari hljóm-
sveitarinnar segir nýju plötuna á margan
hátt ólíka þeirri síðustu. „Það er aðeins
meira rokk og ról á þessari plötu og minna
um harmonikku og kassagítar. Hún er
að vissu leyti tilraunakenndari því við
notumst töluvert við kirkjuorgel sem er
nýlunda í poppinu,“ segir hann. Þrjú lög
af plötunni eru þegar komin í útvarpsspil-
un og hafa fengið góð viðbrögð en plat-
an hefur verið í vinnslu í þrjú ár. „Góðir
hlutir gerast hægt hjá okkur í Múgsefjun
en við erum allir í vinnu og námi og höfum
því takmarkaðan tíma til að hella okkur
í tónlistina,“ segir Sveinn Ingi. Strákarn-
ir munu fagna útgáfunni með tónleikum í
Fríkirkjunni 21. júní. „Þetta verða vegleg-
ir tónleikar sem enginn má láta framhjá
sér fara. Við munum notast við orgelið í
kirkjunni og umlykja áheyrendur úr öllum
áttum,“ segir Sveinn Ingi.
Múgsefjun hefur verið starfandi í ein-
hverri mynd frá árinu 2004 en hefur hald-
ist óbreytt frá því að síðasta plata kom út.
Auk Sveins skipa hljómsveitina Björn Heið-
ar Jónsson, Brynjar Páll Björnsson, Eirík-
ur Fannar Torfason og Hjalti Þorkelsson.
Hægt er að nálgast plötuna á síðunum
tonlist.is, gogoyoko.com og mugsefjun.is.
- trs
Múgsefjun notar kirkjuorgel á nýrri plötu
ROKK OG RÓL Ný plata hljómsveitarinnar Múgsefjunar
er með meira af rokki og róli en sú síðasta og minna af
harmonikku og kassagítar.
„Þetta er hluti af áramótaheitinu
mínu, sem var að taka eins mörg
próf og ég mögulega get á þessu
ári,“ segir María Birta Bjarnadóttir,
leikkona og verslunareigandi, sem
fékk skotveiðileyfi á afmælisdaginn
sinn þann 29. maí.
María Birta einsetti sér að auka
við þekkingu sína á árinu og hefur
sannarlega staðið við stóru orðin því
hún hefur nú þegar klárað fallhlíf-
arstökkspróf og hyggst ljúka kafara-
prófi og mótorhjólaprófi í sumar og
taka einkaflugmannspróf í haust
auk þess sem hún hefur skráð sig á
brimbrettanámskeið í júní. „Ég hef
unnið í að byggja upp fyrirtækið
mitt síðustu sex árin og fannst líf
mitt orðið hálf einhæft og langaði að
læra eitthvað nýtt,“ bætir hún við.
Fréttatíminn greindi frá því í
ágúst í fyrra að María Birta hefði
farið í fyrsta sinn á hreindýraveið-
ar með stjúpa sínum, Pálma Gests-
syni leikara. Henni þótti reynslan í
senn áhugaverð og ógeðfelld enda er
hún að eigin sögn mikill dýravinur.
„Pálmi fékk leyfi fyrir hreindýri
aftur í ár og mér finnst líklegt að
ég skelli mér með. Fólk hefur gert
mikið grín að mér því ég borða ekki
rautt kjöt og veit því ekki hvað ég á
að skjóta nú þegar ég er komin með
skotveiðileyfi. Ætli ég haldi mig
ekki bara við leirdúfurnar á skot-
æfingasvæðinu.“
Í prófinu þurfti María Birta að
skjóta fimmtán riffilskotum og tutt-
ugu og fimm haglaskotum og fannst
henni mun skemmtilegra að skjóta
af haglabyssu en riffli. Hún segir
ekki erfitt að læra réttu handtök-
in í skotfimi og að námið sjálft hafi
verið fróðlegt og skemmtilegt.
Þegar hún er að lokum spurð að
því hvort hún ætli sér að verða jafn
stórtæk í heitunum um næstu ára-
mót segist hún óviss. „Ég veit ekk-
ert hvað ég geri á næsta ári, en ég
mun pottþétt ekki slappa af. Ætli ég
færi mig ekki bara yfir í atvinnu-
mennskuna; tek atvinnuflugmann-
inn, atvinnukafarann og svo fram-
vegis,“ segir hún að lokum.
sara@frettabladid.is
MARÍA BIRTA BJARNADÓTTIR: FÉKK SKOTVEIÐILEYFI Á AFMÆLISDAGINN
Borðar ekki rautt kjöt og
veit ekki hvað hún skýtur
STÓRTÆK María Birta Bjarnadóttir fékk skotveiðileyfi á afmælisdaginn sinn á þriðju-
dag. Hún hyggst fara á hreindýraveiðar með stjúpa sínum, Pálma Gestssyni leikara.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er hálfrar aldar gamall
draumur. Það er loksins að verða
að veruleika hjá mér að verða
rokkstjarna,“ segir Guðni Már
Henningsson, útvarpsmaður á
Rás 2.
Hann er slagverksleikari í Tass
sem sendir á næstunni frá sér sína
fyrstu plötu, Almúgamenn. Með
honum í hljómsveitinni er vinur
hans Birgir Henningsson og einn-
ig fimm tónlistarmenn af yngri
kynslóðinni, þar á meðal þrír úr
þungarokkssveitinni Blood Feud.
„Þeir koma með sitt „rokkelement“
inn í þetta og við komum með
Megas og Bob Dylan þannig að úr
verður sérstakur hljómur,“ segir
Guðni Már og bætir við að hljóm-
sveitin brúi tvö til þrjú kynslóða-
bil. „Þetta eru allt ungir krakkar
og svo við gamlingjarnir.“
Hann heldur einmitt upp á sex-
tugsafmælið sitt með útgáfutón-
leikum í Salnum 9. júní. „Ég læt
borga inn í afmælisveisluna mína
tvö þúsund kall. Þá sleppur fólk-
ið við afmælisgjafirnar. Þetta er
ódýrara heldur en að kaupa ein-
hverja flotta viskíflösku og fólkið
fær tónleika í staðinn.“
Guðni Már og Birgir gáfu fyrir
þremur árum út plötu á vegum
Samhjálpar, sem Heiðar Örn
Kristjánsson úr Botnleðju tók upp.
Hún seldist í fjögur þúsund eintök-
um og í framhaldinu ákváðu þeir
að stofna Tass. Guðni Már semur
textana en Birgir lögin. Útvarps-
maðurinn segist lengi hafa sett
saman texta sér til dægrardvalar.
Til dæmis gaf hann út ljóðabók á
níunda áratugnum.
Hreimur Örn Heimisson og
Rúnar Þór hita upp fyrir Tass 9.
júní og verður Ólafur Páll Gunn-
arsson, kollegi Guðna Más af Rás
2, kynnir. - fb
Rukkar inn í afmælisveisluna
TASS Guðni Már Henningsson og félagar
í Tass halda útgáfutónleika 9. júní.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPIÐ LAUGARDAGA 10-15.00
Glæný Bláskel
frá Stykkishólmi
Ferskur Túnfiskur
Alla föstudaga og laugardaga
Humar 2.350 kr.kg
Óbrotinn fyrsta flokks humar
Fiskibollur
að dönskum hætti
(lax, þorskur, dill, rjómi, krydd)
Harðfiskurinn
frá Stykkishólmi
Þessi sjúklega góði
Humarsoð
frá
Hornarfirði
Sunnudaga á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
HVETTU BARNIÐ TIL AÐ VERA GÆTIÐ
ÞEGAR ÞAÐ VEITIR PERSÓNULEGAR
UPPLÝSINGAR Á NETINU
www.saft.is