Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 4

Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 4
2. júní 2012 LAUGARDAGUR4 GENGIÐ 01.06.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 223,5933 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 130,61 131,23 199,94 200,92 160,9 161,8 21,651 21,777 21,243 21,369 17,882 17,986 1,6698 1,6796 196,58 197,76 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is KÖNNUN Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er með verulegt for- skot á aðra frambjóðendur. Þetta sýna niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 á fylgi forsetaframbjóðendanna sem gerð var 30. og 31. maí. Ólafur Ragnar fengi atkvæði 56,4 prósenta landsmanna ef kosið yrði nú, en Þóra Arnórsdóttir 34,1 prósent. Munurinn á frambjóðend- unum eru 22,3 prósentustig. Aðrir frambjóðendur njóta sam- anlagt stuðnings um 9,5 prósenta þeirra sem taka afstöðu í könnun- inni. Um 5,8 prósent sögðust myndu kjósa Ara Trausta Guðmundsson og 1,3 prósent Herdísi Þorgeirsdóttur. Þá sögðust 0,9 prósent ætla að kjósa Andreu J. Ólafsdóttur og sama hlut- fall Ástþór Magnússon. Um 0,3 prósent styðja Hannes Bjarnason. Könnunin var gerð áður en ljóst var að framboð Ástþórs teldist ógilt. Ólafur Ragnar virðist samkvæmt könnuninni heldur vera að sækja í sig veðrið. Í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var 23. og 24. maí mældist Ólafur með stuðning 53,9 prósenta, og hefur því bætt við sig 2,5 prósentustigum á einni viku. Þóra mældist þá með 35,4 prósenta fylgi, og hefur því stuðningur við hana dalað um 1,3 prósentustig. Aldrei hefur verið notast við stærra úrtak í könnun Frétta- blaðsins og Stöðvar 2 frá upp- hafi. Hringt var í um 2.200 manns þar til náðist í 1.500. Þátttakend- ur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá og skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Hvern mynd- ir þú kjósa til embættis forseta Íslands ef gengið yrði til kosninga nú? Alls tóku 66,5 prósent þeirra sem svöruðu könnuninni afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is Ólafur með forskot á Þóru Ríflega 56 prósent landsmanna ætla að kjósa Ólaf Ragnar í embætti forseta samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Um 34 prósent ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur. Aðrir frambjóðendur fá um 10 prósent atkvæða. Í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 var spurt hvaða frambjóðanda fólk myndi kjósa ef sá sem fyrst var nefndur myndi hætta við framboð. Í ljós kom að dragi Ari Trausti sig í hlé myndi þriðjungur kjósenda hans styðja Ólaf Ragnar, tæp 39 prósent Þóru og rúm 19 prósent Herdísi. Hætti Ólafur við framboð myndu um 41 prósent kjós- enda hans styðja Ara Trausta, 36 prósent Þóru og 11 prósent Herdísi. Dragi Þóra sig í hlé myndi 57 prósent stuðnings- manna hennar velja Ara Trausta, 31 prósent Ólaf Ragnar og rúmlega 5 prósent Herdísi. Ekki reyndist tölfræðilega marktækt að reikna út hvert kjósendur annarra frambjóðenda myndu leita dytti sá fram- bjóðandi sem þeir ætla að kjósa út. Spurt var: Ef [frambjóðandi sem viðkomandi segist myndu kjósa] hættir við framboð, hvern kýstu þá? Alls tóku 55,8 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Stuðningsmenn Ara Trausta myndu dreifast fremur jafnt Andrea J. Ólafsdóttir Ari Trausti Guðmundsson Ástþór Magnússon Hannes Bjarnason Herdís Þorgeirsdóttir Ólafur Ragnar Grímsson Þóra Arnórsdóttir 50 40 30 20 10 % Fylgi forsetaframbjóðenda ■ Fylgi nú ■ Fylgi í könnun 23. og 24. maí ■ Fylgi í könnun 11. og 12. apríl HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 30. OG 31. MAÍ 2012 0,9% 5,8% 0,9% 0,4% 1,3% 56,4% 0, 0% 1, 3% 53 ,9 % 0, 9% 0, 3% 2, 9% 46 ,0 % 46 ,5 % 35 ,4 % 1, 5% 5, 3% 2, 7% 34,1% Sjómannadagurinn 3. júní Opið hús handverkssala og sýning Hrafnistu Reykjavík og Hrafnistu í Hafnarfirði kl. 13-16 Einnig opið mánudaginn 4. júní 10-16 Ýmis önnur dagskrá í boði sjá hrafnista.is LÖGREGLUMÁL Maður um fimmtugt situr í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglunnar á Suðurnesjum eftir að hann var gómaður með 370 grömm af kókaíni í Leifsstöð. Maðurinn var að koma til lands- ins frá London og við reglubund- ið eftirlit vaknaði grunur um að hann hefði eitthvað óhreint í poka- horninu, að því er segir í tilkynn- ingu frá lögreglu. Í ljós kom að hann hafði falið fíkniefni innvort- is. Hann var handtekinn og síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald. - sh Maður um fimmtugt í haldi: Smyglaði kóka- íni innvortis DÓMSMÁL Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson fengu ekki að mæta við þingfestingu ákæru á hendur þeim í Héraðsdómi Reykjaness í gær þrátt fyrir óskir þar um. Annþór og Börkur sitja nú í einangrun á Litla-Hrauni grunaðir um að hafa orðið sam- fanga sínum að bana og verjendum þeirra var tilkynnt um það í gærmorgun að vegna rann- sóknarhagsmuna fengju þeir ekki að mæta í dómssal á meðan. Verjendurnir tveir létu bóka mótmæli við þessa ákvörðun við þingfestinguna í gær og sögðu að hún bryti gegn mannréttindum skjól- stæðinga þeirra, sem hefðu viljað vera við- staddir og taka afstöðu til ákæruatriðanna. Það munu þeir þurfa að gera síðar. Þrjár ákærur voru teknar fyrir á sama tíma í þinghaldinu og sameinaðar í eitt dómsmál. Alls eru þrettán ákærðir í málunum, þar af einn í þeim öllum. Sá heitir Sigmundur Geir Helgason, kallaður Simbi, og er liðsmaður Hells Angels. Fyrsta ákæran snýr að þremur hrottalegum líkamsárásum. Tvær þeirra leiddu Annþór og Börkur og Annþór einn þá þriðju. Átta eru ákærðir með þeim fyrir aðild að árásunum. Önnur ákæran snýr að árás á dekkjaverk- stæði, en hvorki Annþór né Börkur komu þar nærri. Sú þriðja, gegn Sigmundi einum, snýr að vörslu á fíkniefnum. Sigmundur og hinir tíu sem mættu fyrir dóm- inn neituðu sök að svo til öllu leyti eða tóku sér frest til að taka afstöðu. - sh Lögreglan telur að það gæti spillt manndrápsrannsókn að hleypa hinum grunuðu úr einangrun: Annþóri og Berki bannað að mæta fyrir dóm NEITAR Sigmundur Geir Helgason, Simbi, er ákærður í öllum málunum en neitar sök. Faðir hans (til hægri) mætti til að fylgjast með þinghaldinu, en yngri sonurinn er þar einnig ákærður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 30° 25° 13° 13° 20° 25° 13° 13° 25° 17° 29° 24° 32° 14° 25° 21° 8° 14 Á MORGUN Hæg norðaustlæg eða breytileg átt. MÁNUDAGUR 3-8 m/s. 14 14 10 15 12 16 11 15 10 15 10 13 13 16 13 14 8 5 1011 SÓLARVEISLA Það verður sann- kölluð sólarveisla á landinu í dag og á morgun. Nú er tím- inn til að stunda skemmtilega útivist eða bara sitja úti í sólinni með ís- kaldan drykk og njóta veðursins. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður EGYPTALAND, AP Þúsundir manna komu saman í borgum Egypta- lands í gær til að krefjast þess að forsetaframboð Ahmeds Shafiks, síðasta forsætisráðherra Mub- arak-stjórnarinnar, verði ógilt. Shafik er annar tveggja fram- bjóðenda sem tilkynnt hefur verið að verði í kjöri í seinni umferð forsetakosninganna síðar í mán- uðinum. Hinn er Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslíma. Mótmælendurnir segja framboð Shafiks brjóta í bága við reglur um að enginn þeirra sem voru í stjórn Hosni Mubaraks megi bjóða sig fram til forseta. - gb Mótmæli í Egyptalandi: Vilja láta lýsa framboð ógilt VEIFA SKÓNUM Mótmælendur veifuðu skóm til að sýna Shafik lítilsvirðingu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.