Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 102
2. júní 2012 LAUGARDAGUR66 66
popp@frettabladid.is
Leikarinn Robert Pattinson segist
vera orðinn þreyttur á persónunni
Edward Cullen í nýju viðtali við
Shortlist Magazine. Hann segist
einnig eiga sér lífsspeki sem hann
lifir eftir.
„Ekki vera auli. Það er það besta
sem maður getur tamið sér. Þau
eru mörg augnablikin sem ég hef
hagað mér eins og auli og alltaf sé
ég eftir því. Hefurðu séð heimild-
armyndina um Mike Tyson? Hann
segist vera búinn að leggja and-
stæðing sinn áður en hann fer inn
í hringinn og það er eins með leik-
listina. Ég var alltaf svo hræddur,
en nú er ég kominn á þann stað að
ég veit að ekkert af þessu skiptir
það miklu máli,“ sagði leikarinn
geðþekki.
Með nýtt lífsmottó
Stórmyndin Prometheus verður
frumsýnd í Bretlandi um helgina
og eru gagnrýnendur þegar farn-
ir að leggja sitt mat á nýjasta verk
leikstjórans Ridleys Scott.
Ef marka má fyrstu viðbrögð
gagnrýnenda mun Prometheus
ekki marka jafn stór spor í kvik-
myndasöguna og tvær eldri mynd-
ir Scott, Alien og Blade Runner.
„Prometheus stenst ekki vænt-
ingar þegar kemur að ótta, ólíkt
Alien,“ skrifaði Justin Chang hjá
Variety. Netmiðlar virtust þó
almennt jákvæðari í garð kvik-
myndarinnar og sagði Alex Bill-
ington hjá Firstshowing.net að
myndin væri „frábær“.
Ekki jafn góð og Alien
MISJÖFN GAGNRÝNI Prometheus fær misjafna dóma frá gagnrýnendum.
NORDICPHOTOS/GETTY
NÝTT MOTTÓ Robert Pattinson segist
hættur að vera hræddur.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bobby Brown, fyrrverandi eigin-
maður söngkonunnar Whitney
Houston, telur að dóttir þeirra,
Bobbi Kristina, sé nógu skyn-
söm til að feta ekki í fótspor for-
eldra sinna hvað vímuefnanotkun
varðar. Einhverjir hafa haldið því
fram að hún noti ólögleg vímuefni
og hefur hún þurft að neita því
opinberlega.
„Allir unglingar ganga í gegn-
um hluti sem foreldrar þeirra
vilja ekki að þeir gangi í gegnum.
En þeir þroskast í burtu frá því
og það hefur stelpan mín gert. Ég
trúi því að hún sé nógu skynsöm
til að feta ekki sömu slóð og ég
eða móðir hennar,“ sagði Brown,
sem er mjög stoltur af dóttur
sinni.
Hann hefur einnig borið til
baka fregnir um að hún ætli að
losa sig við eftirnafnið Brown.
„Hún fer ekkert að breyta nafn-
inu sínu. Hún verður alltaf þekkt
sem Bobbi Kristina Brown og það
er ekkert sem fær því breytt.“
Bobbi er
skynsöm
MÆÐGUR Bobbi Kristina Brown ásamt
móður sinni sem lést fyrr á árinu.
NORDICPHOTOS/GETTY
KOMIN Á FAST Mary-Kate Olsen er komin á fast með manni að nafni Olivier
Sarkozy. Sá mun vera hálfbróðir fyrrum Frakklandsforseta, Nicolas Sarkozy.
Bíó ★★★★ ★
Tyrannosaur
Leikstjórn: Paddy Considine
Leikarar: Peter Mullan, Olivia
Colman, Eddie Marsan, Paul
Popplewell, Ned Dennehy, Sally
Carman, Samuel Bottomley
Breskar volæðismyndir eru ekki
allra og Tyrannosaur er sú grimm-
asta og grámyglulegasta sem ég
hef séð lengi. Segir hún frá ekklin-
um Joseph, drykkfelldum ofbeldis-
hrotta sem meiðir bæði menn og
dýr, en hann álpast dag einn inn
í verslun sem selur notuð föt.
Þar vinnur hin góða og afar guð-
hrædda Hannah, en smám saman
tekst með þeim vinátta þó ólík séu.
Þetta er fyrsta kvikmynd leik-
stjórans í fullri lengd og af fyrstu
mínútunum að dæma sýndist mér
hún stefna beinustu leið í Amer-
ican History X-bunkann, þar sem
samviskulausir rugguhestar hætta
fíflaskapnum og verða almennileg-
ir á afskaplega ótrúverðugan máta.
Fljótlega rann þó upp fyrir mér að
meira er spunnið í Tyrannosaur.
Considine leikur sér með tilfinn-
ingar áhorfandans í garð aðal-
persónunnar, en Joseph er marg-
slunginn karakter og maður vill
að honum gangi vel. Að sama skapi
finnst manni hann eiga skilið að
svara fyrir hegðun sína.
Peter Mullan er leikari sem
ég hef ekki veitt athygli áður, en
hann er ótrúlega sannfærandi
í hlutverkinu og frammistaðan
ein og sér gæti haldið myndinni
uppi. Olivia Colman sýnir einnig
mögnuð tilþrif og í næstsíðasta
atriði myndarinnar tókst henni
að framkalla tár á hvarmi undir-
ritaðs. Ned Dennehy er skemmti-
legur sem rasistaróninn Tommy
og tekst að lífga mann eilítið upp í
þeim örfáu senum sem hann birt-
ist í.
Þrátt fyrir alla eymdina hressti
Tyrannosaur mig við. Mér fór að
þykja vænt um Joseph og einnig
þótti mér vænt um að sjá mynd
úr þessum fyrrnefnda bunka sem
gengur upp. Volæðið tekur alltaf
enda en hér er það loksins sann-
færandi. Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Erfið en hrikalega eftir-
minnileg.
VOLÆÐIÐ TEKUR ENDA
SANNFÆRANDI Frammistaða Peters Mullan gæti ein og sér haldið myndinni uppi.