Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 10
2. júní 2012 LAUGARDAGUR10
SÝRLAND, AP „Það eru ýmsir hags-
munir í húfi í átökunum og maður
þarf að finna þau svæði þar sem
þessir hagsmunir fara saman, og
fá síðan alla aðila til að setjast að
sama borði,“ sagði Vladimír Pútín
Rússlandsforseti um ástandið í Sýr-
landi, sem farið hefur hríðversn-
andi undanfarna daga og vikur.
„Það þarf ákveðna fagmennsku
til og þolinmæði,“ bætti Pútin við
og lofaði að beita sér fyrir því að
jákvæð niðurstaða fáist.
Pútín var staddur í Þýskalandi
í opinberri heimsókn hjá Angelu
Merkel kanslara. Bandaríkin og
fleiri ríki hafa gagnrýnt Rússa
harðlega fyrir að standa í vegi
fyrir því að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna beiti Sýrlandsstjórn meiri
þrýstingi.
Mannréttindaráð Sameinuðu
þjóðanna kom saman í gær og for-
dæmdi fjöldamorðin í Houla, sem
framin voru í síðustu viku, þegar
meira en hundrað manns voru
drepnir.
Navy Pillay, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, sagði
á fundi ráðsins að aðildarríki þess
ættu að styðja kröfur um að gerð
verði óháð rannsókn á því sem
gerðist í Houla.
„Að öðrum kosti getur ástandið
í Sýrlandi snúist upp í hamslausa
styrjöld og framtíð landsins, sem
og þessa heimshluta alls, getur
verið í mikilli hættu,“ sagði hún.
Í gær fréttist svo af því að á
Pútín segir pólitíska lausn
vel mögulega í Sýrlandi
Rússlandsforseti ætlar að beita sér fyrir jákvæðri niðurstöðu í Sýrlandi. Kofi Annan segist hins vegar orð-
inn óþolinmóður út af síversnandi ástandinu í Sýrlandi. Mannréttindaráð SÞ fordæmir Sýrlandsstjórn.
Vitni, sem lifað hafa af
fjöldamorðin í Houla og
fleiri voðaverk í Sýr-
landi, segja hrottasveitir
á vegum stjórnar Assads
forseta hafa gengið hús
úr húsi og myrt alla sem
á vegi þeirra urðu, jafnt
börn sem aldraða, konur
sem karla.
Þessar sveitir vígamanna
ganga undir heitinu
„shabiha“ í Sýrlandi, en
það orð þýðir „skuggi“
eða „vofa“. Orðið hefur
í seinni tíð tekið á sig
merkinguna „hrotti“ og
notkun þess einkum
verið bundin við þessar
vígasveitir. Liðsmenn
þeirra eru málaliðar, sem
stjórnarherinn hefur oft
fengið til liðs við sig,
að því er virðist einkum
þegar ganga þarf harðar
fram en góðu hófi gegnir.
EVRÓPUMÁL Alþingi hefur úthlut-
að styrkjum að upphæð 19 millj-
ónir króna til að stuðla að „opin-
berri og upplýstri umræðu og
fræðslu“ um ESB. Styrkjum er
skipt jafnt milli ESB-sinna og
ESB-andstæðinga.
Í fyrri hópnum fær Sterkara
Ísland fimm milljónir og Evr-
ópusamtökin, Sjálfstæðir Íslend-
ingar og Ungir Evrópusinnar fá
1,5 milljónir hvert.
Í þeim seinni fær Heimssýn
4,5 milljónir, Evrópuvaktin og
Ísafold fá 1,5 milljónir hvort og
Samstaða þjóðar og Samtök um
rannsóknir á ESB fá 1 milljón
hvort.
Verkefnin eru margvísleg,
meðal annars fundaraðir, gerð
kynningarefnis og úttektir á
kostum og göllum ESB-aðildar.
- þj
Styrkir frá Alþingi:
19 milljónir í
ESB umfjöllun
FINNLAND Afbrotum sem rekja má
til Rúmena hefur fjölgað verulega
í Finnlandi eftir að Rúmenía varð
aðili að Evrópusambandinu árið
2007. Rúmensku afbrotamenn-
irnir í Finnlandi eru í mörgum til-
fellum grunaðir um vasaþjófnað,
stuld úr verslunum og svindl við
greiðslu vegna viðskipta.
Lögreglumaður frá Rúmeníu
hefur nú komið til Finnlands til
þess að aðstoða lögregluna þar
við að hafa hendur í hári rúmen-
skra afbrotamanna. Ráðgert er að
rúmenski lögreglumaðurinn verði
Finnum til aðstoðar í þrjá mán-
uði, að því er segir á vef Hufvud-
stadsbladet. - ibs
Afbrotum Rúmena fjölgar:
Finnska lögregl-
an fær aðstoð
EFNAHAGSMÁL Samhljómur var í
peningastefnunefnd Seðlabank-
ans um að myndarleg hækkun
vaxta væri nauðsynleg við síðustu
vaxtaákvörðun nefndarinnar þann
16. maí. Einn nefndarmaður vildi
hækka vexti um 0,75 prósentur en
fjórir um 0,5 prósentur.
Þetta kemur fram í fundargerð
nefndarinnar vegna vaxtaákvörð-
unarinnar. Í fundargerðinni
kemur einnig fram að versnandi
verðbólguhorfur voru meginrök-
in fyrir hækkun vaxta. Hækkun
myndi styðja við gengi krónunnar
og stemma stigu við verðbólgu-
þrýstingi frá vinnumarkaði. - mþl
Peningastefnunefnd SÍ:
Allir vildu
hækka vexti
SEÐLABANKINN Lögum samkvæmt er
fundargerð peningastefnunefndar birt
tveimur vikum eftir vaxtaákvörðun.
Hrottasveitir Assads
fimmtudag hafi enn á ný verið
framin fjöldamorð í Sýrlandi. Ell-
efu verkamenn voru myrtir úti á
götu í borginni Homs, þar sem þeir
voru á leið til vinnu sinnar.
Kofi Annan, erindreki SÞ og
Arababandalagsins, sagðist síðan í
gær vera orðinn býsna óþolinmóður
út af ástandinu í Sýrlandi, það sé
farið að valda sér skapraun hve illa
gangi að hrinda friðaráætlun Sam-
einuðu þjóðanna og Arababanda-
lagsins í framkvæmd.
Hann sagði að Assad Sýrlands-
forseti verði nú að gefa skýr merki
þess, bæði til þjóðar sinnar og
alþjóðasamfélagsins, „að hann sé
ákveðinn í að hrinda áætluninni
í framkvæmd og að hann ætli að
taka skref áfram í leit að friði“.
gudsteinn@frettabladid.is
VLADIMÍR PÚTIN Í ÞÝSKA-
LANDI Hann er nýtekinn
við forsetaembættinu
í Rússlandi á ný, en
Rússar hafa verið gagn-
rýndir fyrir að standa
gegn aðgerðum á vegum
Sameinuðu þjóðanna
gegn Sýrlandi.
NORDICPHOTOS/AFP
Landey ehf. er dótturfélag Arion banka og fer með eignarhald bankans á nýbyggingum og fasteignaþróunarverkefnum.
Hátúni 2b | 105 Reykjavík | Sími 594 4200 | Fax 594 4201 | www.landey.is
Mánatún og Lýsisreitur
GRANDAVEGUR
EIÐ
ISG
RAN
DI
H
R
IN
G
B
R
A
U
T
FRA
MN
ESV
EGU
R
Mánatún
Um er að ræða byggingarrétt
að þremur byggingum:
Mánatún 1, um 23 íbúðir (Hús C).
Mánatún 7-17, um 90 íbúðir (Hús A).
Sóltún 1-3, um 40 íbúðir (Hús D).
Lýsisreitur
Um er að ræða byggingarrétt
fyrir tvær byggingar:
Fjölbýlishús við Eiðisgranda,
stærð um 13.250 m², um 100 íbúðir.
Hjúkrunarheimili við Grandaveg,
stærð um 5.800 m².
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
félagsins að Hátúni 2b í síma 594 4210/660 4210,
netfang: landey@landey.is
Hús A
Hús D
Hús C
Leiksvæði
N
Ó
A
TÚ
N
SÓLTÚN
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S/
L
A
E
5
99
35
0
6/
12Landey býður til sölu eftirtalin lóðarréttindi:
BOLTALEIKUR Í SÆDÝRASAFNI
Tveir mjaldrar fengu mikinn áhuga á
fótbolta sem settur var út í fiskabúrið
þeirra, áhorfendum til skemmtunar í
stóra sædýrasafninu í Peking.
NORDICPHOTOS/AFP