Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 6
2. júní 2012 LAUGARDAGUR6
STJÓRNSÝSLA Iceland Express hefur
kært útboð um rammasamning
fyrir flug hins opinbera til Kæru-
nefndar útboðsmála. Félagið full-
yrðir að kjör helsta keppinautarins,
Icelandair, séu langtum lakari en
þau sem Iceland
Express hafi
boðið og að með
þeim sé auk þess
verið að bera
fé á opinbera
starfsmenn.
Útboðið tók
til flugs á Evr-
ópska efnahags-
svæðinu og var
auglýst í mars í
fyrra. Ríkiskaup tóku tilboðum frá
Iceland Express og Icelandair, þrátt
fyrir ólík kjör, og töldu þau bæði
hagstæð. Iceland Express fékk ekki
upplýsingar um tilboð Icelandair
fyrr en eftir kæru til úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál.
Í ljós kom að Icelandair hefði
að jafnaði boðið um þrefalt hærra
verð, misjafnt eftir flugleiðum, en
Iceland Express. Mesti munurinn
var 281 prósent, eða nærri fjórfalt
verð, en sá minnsti 176 prósent.
Í kærunni er furðu lýst á því að
Ríkis kaup hafi metið það tilboð hag-
stætt, þegar mun hagstæðara tilboð
Iceland Express lá fyrir.
Þá gagnrýnir Iceland Express
líka að Icelandair hafi verið leyft
að bjóða marga ólíka bókunar-
klassa, þrátt fyrir að útboðslýsingin
hafi kveðið á um að einungis mætti
bjóða flug á almennu farrými.
Heimir Már Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Iceland Express, segir
alvarlegustu athugasemdina hins
vegar snúa að því að opinberir
starfsmenn skuli fá vildarpunkta
hjá Icelandair í eigin reikning ef
þeir nota þjónustuna.
„Það heitir auðvitað bara á fínu
máli að bera fé á opinbera starfs-
menn og sums staðar er það kallað
mútur,“ segir Heimir.
„Ríkið, ólíkt mörgum öðrum rík-
isstjórnum, rekur ekki sína eigin
ferðaskrifstofu sem opinberir
starfsmenn bóka sig hjá og sér um
að finna ódýrustu kjörin, heldur
bóka þeir sig sjálfir,“ segir Heimir.
„Það gefur augaleið að sam-
keppnisstaðan er mjög skökk ef
opinber starfsmaður sér fram á
það að geta eignast sjálfur – pers-
ónulega – fjölda punkta sem duga
honum, og jafnvel fjölskyldunni ef
hann ferðast mikið fyrir ríkið, til að
fara frítt í sumarfrí og kaupa varn-
ing í flugvélum Icelandair.“
Enda hafi komið á daginn að ríkið
skipti nánast ekkert við Iceland
Express. Einungis forsetaembætt-
ið og í örfáum tilvikum utanríkis-
ráðuneytið hafi gert það. „Það þýðir
að skattborgarar eru að greiða tugi
ef ekki hundruð milljóna fyrir vild-
arpunkta opinberra starfsmanna,“
segir Heimir.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, hafði ekki séð
kæruna og kvaðst ekki vilja tjá sig
um málið að svo stöddu. Icelandair
hefði þó fylgt útboðslýsingunni í
einu og öllu. stigur@frettabladid.is
Segja ríkisstarfsfólki mútað
með punktum hjá Icelandair
Iceland Express kærir útboð á flugi hins opinbera. Icelandair bauð um þrefalt hærra verð en báðum tilboðum
var tekið. Ríkisstarfsmenn fá vildarpunkta hjá Icelandair. Express telur að með því sé verið að bera á þá fé.
VÉLAR ICELANDAIR Talsmaður Iceland Express telur að hvatinn sé augljós fyrir ríkis-
starfsmenn að panta sér far með Icelandair og fá vildarpunkta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
Reiðhjólauppboð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
verður haldið laugardaginn 9. júní nk. kl. 13
í húsnæði Vöku í Skútuvogi 8 í Reykjavík.
UPPBOÐ
KOSNINGAR „Maður er að melta
þetta. Lögreglan þarf að ná í
þennan mann og rannsaka hvað er
þarna í gangi. Þetta tengist bara
þessum eina einstaklingi,“ segir
Ástþór Magnússon.
Framboð Ástþórs til forseta
Íslands var ekki metið gilt þar
sem ekki liggur fyrir lögboðið
vottorð yfirkjörstjórnar Norðvest-
urkjördæmis á undirskriftalistum
til stuðnings Ástþóri. Innanríkis-
ráðuneytið tilkynnti þetta í gær.
Málið snýst um tugi falsaðra
undirskrifta í kjördæminu frá
einum manni sem var að vinna
fyrir Ástþór í kosningabarátt-
unni.
„Ég held að það sé búið að kæra
hann og biðja um rannsókn,“
segir Ástþór þegar hann er inntur
eftir því hvort hann ætli að kæra
málið. Hann segir málið verðfall
á lýðræðinu á Íslandi. „Það hefur
afhjúpast gat í kosningakerfinu
þannig að hvaða fólk sem er getur
ráðist á lýðræðisleg framboð,“
segir hann. „Það sem er alvarleg-
ast í þessu er að stjórnsýslan lá
lengi á listanum án þess að vinna
nokkuð úr þeim.“
Ástþór vill ekki nafngreina
manninn sem sá um að falsa und-
irskriftirnar.
„Hann kom bara óumbeðinn og
vildi vinna,“ segir hann. „Ég hef
ekki hugmynd um hvað býr að
baki.“ - sv
Framboð Ástþórs Magnússonar dæmt ógilt af kjörstjórn NV-kjördæmis:
Segir lögregluna þurfa að ná falsaranum
HÆTTUR Innanríkisráðuneytið tilkynnti í
gær að framboð Ástþórs væri ógilt.
TAÍLAND, AP „Þessa dagana verð ég
vör við það sem ég kalla glæfra-
lega bjartsýni,“ sagði Aung San
Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar í Búrma, í fyrstu ræðu sinni
á alþjóðavettvangi sem hún hélt í
Taílandi í gær.
„Ég tel að smá skammtur af heil-
brigðri tortryggni væri ekki úr
vegi,“ bætti hún við.
Hún hefur setið í stofufangelsi í
Búrma megnið af síðustu tuttugu
árum en var látin laus á síðasta ári
eftir að mannaskipti urðu í æðstu
stöðum herforingjastjórnar lands-
ins.
Vesturlönd, með Bandaríkin
í fararbroddi, hafa tekið sinna-
skiptum Búrmastjórnar fagnandi.
Refsiaðgerðum hefur verið aflétt
og boðaður er margvíslegur stuðn-
ingur við landið.
Suu Kyi lagði áherslu á að erlend
fyrirtæki, sem hafa í hyggju að
fara út í fjárfestingar í Búrma,
gæti þess að fara varlega og hafa
allt uppi á borðunum.
„Við viljum ekki að auknar fjár-
festingar þýði meiri möguleika á
spillingu,“ sagði hún í ræðu sinni í
Taílandi.
- gb
Ræða Aung San Suu Kyi í Taílandi vakti athygli:
Varar við óhóflegri
bjartsýni í Búrma
AUNG SAN SUU KYI Heldur til Evrópu síðar í mánuðinum, þar sem hún tekur meðal
annars loks við Nóbelsverðlaunum sem henni voru veitt árið 1991. NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Efnahags- og viðskipta-
ráðuneyti kannast ekki við að
ESB hafi blandað sér með beinum
hætti „með fjármunum og þátt-
töku sendiherra og sendiráðs“ í
umræður um áhrif ESB-aðildar í
hans málaflokkum.
Þetta kemur fram í svari Stein-
gríms J. Sigfússonar ráðherra
við fyrirspurn Ásmundar Einars
Daðasonar, þingmanns Fram-
sóknarflokks.
Ásmundur spurði einnig hvern-
ig tryggja ætti að starfsemi Evr-
ópustofu skekkti ekki umræðuna.
Steingrímur sagði að styrkur
Alþingis til hreyfinga og samtaka
til að kynna mismunandi sjónar-
mið ætti að tryggja að niðurstaða
þjóðaratkvæðagreiðslu verði
byggð á upplýstri ákvörðun. - þj
Svar við fyrirspurn á Alþingi:
Kannast ekki
við íhlutun ESB
HÆLISLEITENDUR Tíu af Evrópu-
sambandsríkjunum 27 taka á
móti 90 prósentum allra hælis-
leitenda í Evrópu. Cecilia Malm-
ström, innanríkismálastjóri ESB,
hvetur hin ríkin 17 til þess að
axla meiri ábyrgð.
Malmström vill umræður um
hvernig ESB eigi að takast á við
innflutning frá löndum þar sem
efnahagsvandi ríkir.
Löndin tíu sem taka á móti
flestum innflytjendum eru
Frakkland, Þýskaland, Ítalía,
Belgía, Svíþjóð, Bretland, Hol-
land, Austurríki, Grikkland og
Pólland, að því er kemur fram á
vef danska blaðsins Politiken. - ibs
Hælisleitendur í Evrópu:
Tíu taka við 90
prósentum
VIÐSKIPTI Sala ÁTVR á áfengi
það sem af er árinu hefur aukist
miðað við sama tímabil í fyrra.
Aukningin nemur 1,5% í lítrum
talið.
Sé rýnt í tölur ákveðinna vín-
tegunda kemur í ljós að sala á
rauðvíni hefur aukist um 3 pró-
sent og hvítvíni um 5 prósent.
Aftur á móti dregst sala á brenni-
víni og vodka saman um 3 pró-
sent. - bbi
Nýjar tölur frá ÁTVR:
Áfengissala
eykst nokkuð
LÖGREGLUMÁL Alls 260 lítrum af
díselolíu var stolið af tveimur
flutningabílum á Suðurnesjum.
Að sögn lögreglu var olíunni
stolið um nótt en á vettvangi
var lítill olíubrúsi og slanga sem
þjófarnir notuðu við þjófnaðinn.
Miðað við að lítrinn af dísel-
olíu kosti 248 krónur, eins og
algengast er í dag, þá stálu þjóf-
arnir olíu fyrir tæpar 65 þúsund
krónur.
Olíuþjófar á Suðurnesjum:
Stálu díselolíu
fyrir 65 þúsund
Munt þú fylgjast með Evrópu-
mótinu í knattspyrnu í sumar?
Já 56,4%
Nei 43,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Sækir þú atburði sem tengjast
sjómannadeginum?
Segðu skoðun þína á Visir.is
KJÖRKASSINN
Það hefur afhjúpast
gat í kosningakerfinu
þannig að hvaða fólk sem
er getur ráðist á lýðræðisleg
framboð.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON