Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 104
2. júní 2012 LAUGARDAGUR68
Leikarinn Leonardo DiCaprio fór
í áheyrnarprufu fyrir hlutverk í
sjónvarpsþáttunum Baywatch en
á endanum hlaut Jeremy Jackson
rulluna. Þetta segir David Has-
selhoff, sem lék strandvörðurinn
Mitch Buchannon. DiCaprio hefði
leikið son hans í þáttunum en
ekkert varð af því.
„Þetta var það besta sem gat
gerst fyrir Leonardo DiCaprio.
Ég hitti hann og sagði: „Veistu
hvað, þetta var frábært
fyrir þig. Þú hefðir
aldrei fengið hlut-
verk í Titanic og
orðið þessi stóra
stjarna. Þú værir
eins og Jeremy Jack-
son eða David
Hasselhoff
stöðugt
í leit að
vinnu,“
sagði Has-
selhoff.
Sótti um
í Baywatch
Skáldsagan The Devil Wears Prada sló
í gegn árið 2003 og nú geta aðdáendur
bókarinnar glaðst því von er á framhaldi
hennar innan skamms.
Seinni sagan ber heitið Revenge Wears
Prada og gerist átta árum eftir að aðal-
persónan Andrea segir skilið við yfirmann
sinn, Miröndu Priestly, á illu nótunum.
Lauren Weisberger, rithöfundur bókanna,
vann um tíma sem blaðamaður hjá banda-
ríska Vogue og byggði persónuna Priestly
á fyrrum yfirmanni sínum, Önnu Wintour.
Þegar Wintour var á sínum tíma spurð út
í bókina svaraði hún einfaldlega: „Ég hef
alla tíð haft gaman af góðum skáldskap.
Ég hef þó ekki gert upp við mig hvort ég
muni lesa þessa bók eður ei.“
Ný bók á leiðinni
NÝ BÓK Framhald hinnar vinsælu The Devil Wears Prada er í bígerð.
Persóna Miröndu Priestly er byggð á Önnu Wintour. NORDICPHOTOS/GETTY
KOMST
EKKI Í
BAYWATCH
Leonardo
DiCaprio
fékk ekki
að leika
son Mitch
Buchannon.
Fatahönnuðurinn Victoria Beck-
ham segist skilja vel að fólk haldi
að hún sé fúllynd, enda brosi hún
örsjaldan á myndum.
„Ég skapaði þessa persónu
þegar ég var meðlimur í Spice
Girls, en ég er ekkert eins og
hún. Ég er hamingjusöm og glað-
vær manneskja en mér finnst ég
ekki þurfa að auglýsa það fyrir
umheiminum.
Ég verð alls ekki miður mín
þegar fólk segir að ég virðist
óhamingjusöm því ég hugsa það
sama stundum þegar ég skoða
myndir af mér,“ sagði Beckham í
viðtali við sjónvarpsstöðina CNN.
Hamingjusöm og glöð
HAMINGJUSÖM Victoria Beckham er ham-
ingjusöm þó hún brosi ekki á myndum.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ástralska fyrirsætan Miranda
Kerr velur verkefni sín af kost-
gæfni eftir að hún eignaðist son-
inn Flynn. Þetta gerir hún svo
hún geti eytt meiri tíma með fjöl-
skyldu sinni.
„Ætli ég eyði ekki meiri tíma
í að sinna móðurhlutverkinu en
í vinnunni. Ég tek aðeins að mér
verkefni fyrir hönnuði sem ég er
virkilega hrifin af. Það fer mikill
tími í ferðalög og stundum verður
það of mikið því sonur minn er
auðvitað í forgangi núna. Hingað
til hefur þetta gengið ágætlega
og ég fæ að eyða miklum tíma
með manni mínum og syni,“ sagði
fyrirsætan sem er gift leikaran-
um Orlando Bloom. Sonur þeirra,
Flynn Bloom, fæddist í byrjun
janúar árið 2011.
Vill sinna
syninum
MINNKAR VINNU Miranda Kerr hefur
minnkað við sig vinnu svo hún geti verið
með syni sínum. NORDICPHOTOS/GETTY