Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 94
2. júní 2012 LAUGARDAGUR58
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
FYRIR
EFTIR
LÁRÉTT
2. hreinsiefni, 6. skammstöfun, 8.
klæðalaus, 9. garðshorn, 11. tveir
eins, 12. gengi, 14. opinber gjöld,
16. drykkur, 17. af, 18. hrópa, 20.
persónufornafn, 21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. viðartegund, 3. í röð, 4. ávaxtatré,
5. dýrahljóð, 7. holdýr, 10. tæfa,
13. kóf, 15. rótartauga, 16. skír, 19.
bardagi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sápu, 6. eh, 8. ber, 9. kot,
11. rr, 12. klíku, 14. skatt, 16. te, 17.
frá, 18. æpa, 20. ég, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. tekk, 3. áb, 4. perutré,
5. urr, 7. holsepi, 10. tík, 13. kaf, 15.
Sjúbbí
dúbbí
dúú...
Ó já! Bamm! Hvað í
helv…
Hjónaráðgjafi
Eiginmaður
minn komst
ekki þannig að
ég tók kærast-
ann minn með.
SPJALL Í PARTÍI FYRIR BARNEIGNIR SPJALL Í PARTÍI EFTIR BARNEIGNIR
Bestu leikararnir eru að fara úr
kvikmyndum í sjónvarp.
Kermit ræður algjörlega ríkjum í
prúðuleikurunum þessa dagana.
Rikki og
Anna eru
hætt saman.
Endalok Rikka
og Önnu?
Ekki séns!
Ég veit!
Það er eins og að segja að
vetni og súrefni séu hætt
saman og þess vegna sé
ekkert vatn til lengur!
Það er hljómar
reyndar frekar eins og
það gæti gerst.
Í sturlaðri umræðu um málskotsrétt og hlutverk hefur gleymst að ræða það sem
skiptir máli: Dagleg störf forseta Íslands.
HVERNIG verður opinberri heimsókn á
Vestfirði háttað sumarið 2013? Ætlar forset-
inn að þiggja gómsætar kleinur? Eða kallar
Nýja Ísland á forseta sem sneiðir hjá kol-
vetnum? Kjósendur eiga einnig skilið að vita
hvernig tekið verður á móti erlendum þjóð-
höfðingjum. Verða þeir kysstir eða verður
þétt handaband látið duga? Verður mögu-
lega tekið upp á því að bjóða upp á innileg
faðmlög?
DAGLEG störf eru nefnilega það sem
embættið snýst um, enda hefur málskots-
rétturinn bara verið notaður þrisvar í
lýðveldissögunni. Það þarf að koma út
snittum á Bessastöðum nánast daglega,
ásamt því að skrifa ræður sem þarf að
flytja við hin ýmsu tilefni, eins og
kemur í ljós þegar dagskrá for-
setans er skoðuð:
Í JANÚAR var forsetinn til
dæmis heiðursgestur við
setningu Íslandsmóts barna í
skák ásamt því að flytja ávarp
á ráðstefnu norrænna jarð-
fræðinga. Í febrúar tók hann á
móti félögum í Rótarýklúbbn-
um Görðum, sótti afmælishóf
Klúbbs matreiðslumeistara og
afhenti heiðursverðlaun Eddunnar. Í mars
var forsetinn viðstaddur lokahátíð Stóru
upplestrarkeppninnar í Hafnarborg og í
apríl flutti hann ávarp í upphafi heims-
meistaramóts í íshokkí í Skautahöllinni í
Laugardal.
Í MAÍ var lokakeppni á sundmóti í tilefni
af 85 ára afmæli Sundfélagsins Ægis meðal
annars á dagskránni ásamt því að taka á
móti hópi frá Kvenfélagasambandi Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og ræða um sögu
Bessastaða, áhrif menningar og náttúru …
ÞETTA er mjög lítill hluti af dagskrá for-
setans, sem felur að mestu í sér að sækja
keppnir og ráðstefnur, flytja fullt af ávörp-
um og taka á móti ógrynni af gestum. Málin
eru mismikilvæg en eiga þó sameiginlegt að
það er algjör óþarfi að missa sig yfir þeim.
HVORKI kjósendur né frambjóðendur þurfa
nefnilega að rífast um hvernig embættið
á að vera. Frambjóðandinn sem fær flest
atkvæði ákveður það sjálfur þegar hann
verður kosinn. Ólafur var öðruvísi for-
seti en Vigdís og það stöðvaði hann eng-
inn. Þægilegast væri að frambjóðendurnir
myndu birta einhvers konar stefnuskrá á
netinu, leyfa fólki að taka upplýsta ákvörðun
og loka á sér snittuholunum fram að kjör-
degi, svona fyrst þeir geta ekki spjallað
saman á málefnalegum nótum án dylgja og
aðdróttana.
Rifist um snittur