Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 105
LAUGARDAGUR 2. júní 2012 69
Söngkonan Gwen Stefani og eigin-
maður hennar, söngvarinn Gavin
Rossdale, eiga í hjónabands-
erfiðleikum ef marka má frétt
The Irish Independent. Parið
kynntist á tónleikaferðalagi árið
1995 og gifti sig sjö árum síðar.
„Vandamálin eru verri og þau
vita ekki hvernig þau geta lagað
þau. Þau hafa gengið í gegnum
ýmislegt saman og þó Gwen
reyni að láta sem ekkert ami að
vegna barnanna, þá er hún ekki
viss um að þau muni standa þetta
af sér,“ var haft eftir heimildar-
manni.
Stefani og Rossdale eiga saman
synina Kingston og Zuma.
Takast á við
vandamál
VANDAMÁL Gwen Stefani og Gavin
Rossdale eru sögð eiga í vandræðum
með samband sitt. NORDICPHOTOS/GETTY
Rihanna kveðst hafa lært að
hunsa athyglina sem fylgir frægð-
inni og lifir nú lífi sínu án þess
að hafa áhyggjur af umtali. Þetta
kemur fram í nýju viðtali við
söngkonuna í tímaritinu Esquire.
„Ég hef lært að hunsa athyglina
sem ég fæ. Þetta er mitt starf. Ég
lifi lífi mínu og svo er það skrá-
sett. Það er margt sem fólk veit
um mig sem ég kæri mig ekki
um að það viti, en svona er þetta
bara,“ sagði söngkonan sem hefur
verið í sviðsljósinu frá fimmtán
ára aldri.
Í viðtalinu segist Rihanna jafn-
framt vonast eftir því að hún finni
ástina á ný. „Eftir fimm ár verð
ég vonandi búin að finna mér
mann. En hvað við kemur ferlin-
um þá er það í höndum Drottins.
Ég held að ekkert eigi sér enda-
lok, hlutirnir bara þróast.“
Hunsar
athyglina
Leikkonan Keira Knightley
trúlofaðist tónlistarmanninum
James Righton fyrir skemmstu.
Að sögn talsmanns leikkonunnar
játaði hún Righton eftir fimmtán
mánaða samband.
Knightley og Righton kynntust
í gegnum sjónvarpskonuna Alexu
Chung, sem er sameiginleg vin-
kona þeirra, í fyrra og hafa nú
trúlofast hvort öðru. Nýverið sást
til parsins á gangi um London og
skartaði Knightley þá fallegum
demantshring sem sagður er vera
trúlofunarhringur hennar. Sam-
kvæmt sérfræðingum er hringur-
inn nokkuð hefðbundinn trúlofun-
arhringur með 2 karata demanti
og kostar um 5,3 milljónir króna.
Fimm millj-
ónir á fingri
HAMINGJUSÖM Keira Knightley
og James Righton eru trúlofuð og
hamingjusöm. NORDICPHOTOS/GETTY
Popparinn Justin Bieber fékk
heilahristing eftir að hann datt
baksviðs á tónleikum í París. Í
viðtali við vefsíðuna Tmz.com
sagðist Bieber hafa dottið á gler-
vegg, orðið ringlaður en náð að
klára síðasta lagið áður en hann
fór aftur baksviðs og missti
meðvitund í fimmtán sekúndur.
Skömmu síðar skrifaði Bieber á
Twitter: „Rak höfuðið í og þurfti
smá vatn. Allt í góðu samt. Ég er
frá Kanada og við erum hörð í
horn að taka. Sýningin verður að
halda áfram.“
Stutt er síðan allt varð vitlaust
í Ósló í Noregi þegar boðið var
upp á ókeypis miða á tónleika
hans í óperuhúsi borgarinnar.
Unglingar tróðust undir þegar
þeir börðust um miðana. Talið
er að 49 hafi slasast og fjórtán
þurft að fara á sjúkrahús. Svo
virðist því sem Bieber-æðið sé
hvergi nærri í rénun. „Norð-
menn. Þið verðið að hlusta á lög-
regluna. Ég vil ekki að neinn
meiðist. Til að tónleikarnir geti
átt sér stað verðið þið að hlusta á
lögregluna,“ tísti hinn átján ára
Bieber. Hann yfirgaf tónleikana
á hraðbát og einhverjir aðdáend-
ur sátu um hann og sigldu á eftir
honum.
Fékk heilahristing baksviðs
Í ÓSLÓ Justin Bieber á tónleikum í Ósló. Aðdáendur hans börðust hatrammlega um
miðana. NORDICPHOTOS/GETTY