Fréttablaðið - 02.06.2012, Síða 8
2. júní 2012 LAUGARDAGUR8
SKÁK Stærsta einkasafn lands-
ins af munum tengdum heims-
meistaraeinvígi Bobby Fischer
og Boris Spasskí í Reykjavík 1972
verður til sýnis á sýningu Lands-
sambands íslenskra frímerkja-
safnara um helgina. Sýningin var
opnuð í gær, í sal KFUM og K á
Holtavegi, og verður opin í dag og
á morgun.
Um er að ræða afar sérstaka
muni sem koma úr söfnum Sig-
urðar R. Péturssonar og Rík-
harðs Sveinssonar, auk þess sem
sýnt verður safn í eigu Banda-
ríkjamanns. Þá hefur Skáksam-
band Íslands einnig lánað muni á
sýninguna.
Meðal þess sem þar má sjá
eru veggspjöld, myndir og margt
fleira, áritað af Spasskí og
Fischer meðal annarra. - þj
Sérstakt safn til sýnis:
Einstakir mun-
ir úr „Einvígi
aldarinnar“
SPASSKÍ OG FISCHER Munir sem
tengjast heimsmeistaraeinvíginu árið
1972 verða til sýnis í húsi KFUM og K
um helgina.
VIÐSKIPTI Þórir N. Kjartansson fráfarandi
framkvæmdastjóri Víkurprjóns er undrandi
á því að íslensk ull sé send til útlanda til
framleiðslu á lopapeysum.
„Það er ekki vöntun á handprjónuðum
lopapeysum á Íslandi,“ segir Þórir.
Þórir telur að gróðavon og græðgi stjórni
því að menn flytji ullina til útlanda til fram-
leiðslu:
„Þetta er eingöngu gert af því að menn
sjá þarna tækifæri til að bjarga einhverjum
þúsundköllum.“
Hann segir að erfitt hafi verið að anna eft-
irspurn fyrir hrun, en nú sé ástandið gjör-
breytt. Nóg sé til af prjónuðum peysum.
Þórir segir að vandamálið sé frekar skort-
ur á hráefni, þar sem ullarframleiðandinn
Ístex hafi vart undan að framleiða band
handa innlendum framleiðendum.
„Okkur finnst það þess vegna skjóta svo-
lítið skökku við að á sama tíma og okkur
gengur illa að fá íslensku ullina í okkar
framleiðslu skuli ullin vera send út til Kína í
stórum stíl. Íslenska ullin er ekki til í óþrjót-
andi magni,“ segir Þórir.
- ktg
Þórir N. Kjartansson hjá Víkurprjóni segir skorta ull til framleiðslu innanlands:
Undrandi á að ullin sé send út til Kína
ÞÓRIR N. KJARTANSSON Finnst undarlegt að íslensk ull
sé send til útlanda þegar illa gengur að fá nóg magn af
henni til framleiðslu innanlands.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÓMSMÁL Héraðsdómur Vestur-
lands komst 22. maí síðastliðinn
að þeirri niðurstöðu að Arion
banka hefði verið heimilt að end-
urreikna gengislán aftur í tímann
samkvæmt vöxtum Seðlabankans
þrátt fyrir að fullnaðarkvittanir
hafi legið fyrir vegna afborgana.
Lánið sem um ræðir var veitt
til Borgarbyggðar en niður-
staða dómsins bendir til þess
að fordæmisgildi gengislána-
dóms Hæstaréttar frá 15. febrú-
ar kunni að vera lítið. Til skoð-
unar er hvort áfrýja á málinu til
Hæstaréttar.
Forsaga málsins er sú að Borg-
arbyggð tók gengislán hjá Spari-
sjóði Mýrasýslu í árslok 2006 en
síðar tók Arion banki yfir skuld-
bindingar sparisjóðsins. Í kjölfar
dóma Hæstaréttar um ólögmæti
gengislána var lán Borgarbyggð-
ar endurreiknað aftur í tímann
eins og hagstæðustu vextir Seðla-
bankans hefðu gilt um það í stað
samningsvaxta. Í málinu krafð-
ist Borgarbyggð þess hins vegar
að samningsvextir yrðu látnir
gilda þar sem afborganir sveit-
arfélagsins hefðu talist fullnað-
argreiðslur.
Sem kunnugt er komst Hæsti-
réttur að þeirri niðurstöðu í
dómi frá 15. febrúar að Frjálsa
fjárfestingarbankanum hefði í
ákveðnu máli verið óheimilt að
krefjast hærri vaxtagreiðslna
en sem nam samningsvöxtum
af gengislánum aftur í tímann
þar sem fullnaðarkvittun vegna
afborgana hefði legið fyrir.
Dómur Hæstaréttar féll í máli
einstaklinga gegn fjármálastofn-
un og við nokkuð sértæka mála-
vexti. Þá fólst í honum undan-
tekning frá þeirri meginreglu
kröfuréttar að kröfuhafi, sem
fengið hefur minna greitt en hann
átti rétt til, eigi kröfu á hendur
skuldara um það sem er van-
greitt.
Síðan dómurinn féll hefur því
verið nokkur óvissa um fordæm-
isgildi hans og þá ekki síst með
tilliti til lána fyrirtækja og opin-
berra aðila.
Dómur Héraðsdóms Vestur-
lands varpar enn frekari vafa á
fordæmisgildi dóms Hæstaréttar
en þar sem málið hefur ekki verið
tekið fyrir í Hæstarétti er óvar-
færið að draga of margar álykt-
anir af honum. Mál Borgarbyggð-
ar gegn Arion banka er það fyrsta
þar sem reynt er á fordæmisgildi
dómsins.
Sérstaka athygli vekur að í nið-
urstöðu dóms Héraðsdóms Vest-
urlands er minnst á að líta verði
til þess að stefnandi sé opinber
aðili og því þyki ekki sá aðstöðu-
munur vera á milli aðila að efni
séu til þess að bankinn beri einn
áhættuna af ólögmæti gengislán-
anna.
Að sögn Páls S. Brynjarssonar,
sveitarstjóra Borgarbyggðar, er
til skoðunar hjá sveitarfélaginu
að áfrýja dómnum til Hæstarétt-
ar en ekkert hefur verið ákveðið.
magnusl@frettabladid.is
Vafi á fordæmisgildi gengis-
lánadóms Hæstaréttar eykst
Dómur héraðsdóms eykur óvissu um fordæmisgildi gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar. Lánastofn-
anir hafa þegar afskrifað tugi milljarða vegna dómsins og gætu þurft að afskrifa tugum milljarða meira.
HÆSTIRÉTTUR Dómur Héraðsdóms Vesturlands frá því 22. maí eykur vafa á for-
dæmisgildi gengislánadóms Hæstaréttar frá 15. febrúar. Málið kann þó að koma
til kasta Hæstaréttar síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í apríl gaf Fjármálaeftirlitið út minnisblað um möguleg áhrif gengislánadóms
Hæstaréttar frá 15. febrúar. Þar kom fram að lánastofnanir landsins hefðu
þegar afskrifað ríflega 70 milljarða króna úr efnahagsreikningum sínum
vegna dómsins og þá væri þess vænst að 15 milljarðar til viðbótar yrðu brátt
afskrifaðir. Þá kom einnig fram í minnisblaðinu að yrði dómurinn fordæmis-
gefandi fyrir öll lán sem mögulega fela og fólu í sér ólöglega gengistrygg-
ingu myndi hann valda lánastofnunum landsins alls um 165 milljarða króna
höggi.
Tugir milljarða undir
Varmárskóli 50 ára
Mikil hátíðarhöld verða við Varmár-
skóla í dag, laugardag vegna fimmtíu
ára afmælis skólans. Dagskrá verður í
gangi frá klukkan ellefu um morgun-
inn til klukkan sjö um kvöldið.
MOSFELLSBÆR
1. Hver vann Íslandsmeistaratitil-
inn í skák?
2. Verður Ísland með boðsundsveit
á ÓL?
3. Hvaða íslenska flugfélag hefur
nýlega sent sína fyrstu vél í loftið?
SVÖR
1. Þröstur Þórhallsson 2. Já 3. Wow Air
23% FLEIRI GESTIR
FISKMARKAÐURINN
2012
2011
JÁKVÆÐ MERKI
ÚR ATVINNULÍFINU
Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku atvinnulífi. Fjölmörg fyrirtæki
eru að ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir krefjandi aðstæður.
Fiskmarkaðurinn er dæmi um fyrirtæki sem náði góðum árangri
árið 2011. Gestum veitingahússins fjölgaði um 23% milli ára.
Arion banki fagnar þessum góða árangri.
VEISTU SVARIÐ?