Fréttablaðið - 02.06.2012, Side 32

Fréttablaðið - 02.06.2012, Side 32
2. júní 2012 LAUGARDAGUR32 E inungis þrír af þeim 1.500 sem voru spurðir í nýjustu skoðanakönn- un Fréttablaðsins og Stöðvar 2 nefndu nafn þitt sem næsta forseta Íslands. Ertu með raunverulegar væntingar til þess í dag að komast á Bessastaði? „Já, ég vona það áfram. En það kemur mér ekkert á óvart að ég sé ekki með neitt fylgi. Þið verðið að átta ykkur á því að ég var að koma fram í fyrsta sinn í sjónvarpi nú í vikunni. Það eina sem er búið að vera í fréttum af mér er varðandi undirskriftir. Og því er kærkomið fyrir mig að tala við blaðamenn sem vilja spjalla við mig. Fyrir það fyrsta veit fólk ekki að ég er til og enn síður fyrir hvaða málefni ég stend. En þetta er aðeins að koma fram núna og þá á þetta eftir að snúast. Svo er annað mál hvort það snúist nægilega mikið til þess að ég verði forseti. En þetta á eftir að snúast. Töluvert mikið.“ En er ekki knappur tími að snúa hug þjóðarinnar þar sem forseta- kosningarnar eru eftir mánuð? „Í rauninni ekki. Því við verðum líka að átta okkur á því að ég er að bjóða fram krafta mína í þágu þjóðarinnar.“ En eru ekki allir frambjóðend- urnir að því? „Jú, vissulega. Margir virðast vera þannig að þeir vilja komast á Bessastaði. En svo ég noti orð Ólafs Ragnars: „Ég móðgast ekkert þó fólk kjósi mig ekki sem forseta.“ Ég vil bjóða fram krafta mína og svo velur þjóðin sér forseta og það er hið besta mál. Þegar við lögðum upp í þetta á sínum tíma reiknuðum við með því að ég mundi sennilega ekki mælast með neitt fylgi til að byrja með í neinum skoðanakönnunum fyrr en um miðjan júní. Mikill hluti þjóð- arinnar er enn óákveðinn.“ Ætlar ekki nakinn niður Laugaveg Hvað ætlarðu að gera til að láta fólk hætta við að kjósa hina fram- bjóðendurna og kjósa þig? „Ég er gjörsamlega óþekktur og það vekur furðu mína að fólk sé löngu búið að ákveða sig hvað það ætlar að kjósa án þess að nokk- ur frambjóðandi sé vart búinn að opna munninn. Ég get skilið það í tilviki Ólafs þar sem fólk er búið að fylgjast með honum í sextán ár. Og Ástþór er búinn að vera lengi að og er að miklum hluta með sín baráttumál ennþá. Þó er ég ekki að gagnrýna það, það vekur bara furðu mína.“ Það er væntanlega vegna þess að fólkið er þekkt… „Já, en eins og í tilviki Þóru þá hefur hún unnið í sjónvarpinu sem spurningakona. Andlit hennar er vissulega þekkt. Og maðurinn hennar er vissulega þekktur líka.“ Það verður ekki horft framhjá því að þú ert með minnst fylgi af öllum frambjóðendum samkvæmt skoðanakönnunum. Þú þarft vænt- anlega að stíga stærri skref en hinir sem eru að mælast með hvað mest fylgi? „Ég ætla rétt að vona að þú sért ekki að fara að segja mér að hlaupa nakinn niður Laugaveginn eða eitt- hvað svoleiðis?“ Nei, nei, þó þú mundir vissulega fá umfjöllun út á það. En ertu með eitthvað uppi í erminni til að láta þjóðina kjósa þig? „Nei. Og ef ég væri með eitthvað uppi í erminni þá mundi ég nú ekki segja þér það núna. En við sjáum til hvort við fáum fylgi um miðj- an júní, því þá verð ég bara assgoti góður. En ég vil árétta að öll hin sem eru í framboði eru meira og minna þekkt.“ Nema Jón Lárusson. Hefurðu óskað eftir stuðningsyfirlýsingu frá honum eftir að hann dró framboð sitt til baka? „Nei. En ég hringdi í hann þegar hann tilkynnti það og ég sagði honum að mér þætti það leitt. Af því að það er að mínu mati gott ef hans rödd hefði komist áfram. Ég tjáði honum að mín skoðun væri sú að hann hefði orðið fyrir barðinu á þessu fjölmiðlaveldi öllu hérna á Íslandi. Og þó ég hafi ekki verið sammála hans skoðunum fannst mér það mjög leitt. Við áttum ljóm- andi gott símtal. En ég óskaði ekki eftir stuðningi því ég hef trú á því að það sé hægt að vinna fyrir fram- boðinu, en ekki vera borinn fram.“ Með kosningaskrifstofu á hjólum Hvað finnst þér um ákvörðun Stöðv- ar 2 um að bjóða einungis Ólafi og Þóru í kappræður? „Mér finnst það eiginlega alveg frábært í ljósi lýðræðis- og tján- ingarfrelsisumræðunnar í landinu í dag. Þetta er mjög lítið ígrunduð ákvörðun hjá Stöð 2 og mér finnst rökin með henni ekki halda vatni.“ Þú segir að þú viljir leggja hönd á plóg og bæta samfélagið. Það eru margir sem vilja það, en fáum dett- ur í hug að bjóða sig fram til forseta, heldur fara aðrar leiðir. Hvað gerði það að verkum að þú byrjaðir ekki „smærra“? „Það er búið að blunda í mér í nokkurn tíma að koma að uppbygg- ingu Íslands síðan hrunið varð. Ég kíkti á þann möguleika að hella mér út í pólitík.“ Með hvaða flokki? „Engum. Það var málið. Ég fann ekki þann flokk sem samsvaraði mínu áliti. Þess vegna varð ekkert úr því.“ Aðhyllistu engan stjórnmálaflokk frekar en annan? „Nei. Ég er fæddur og uppalinn í Skagafirði og afi minn var þar mik- ill kaupfélagsmaður. Pabbi minn var mikill framsóknarmaður og ég elst upp í því umhverfi. Og kaus Framsóknarflokkinn hér áður fyrr. En svo finnst mér gerast eitthvað í flokknum þegar það verða for- mannsskipti, þegar Steingrímur Hermannsson hættir og Halldór Ásgrímsson tekur við, svo ég hætti að styðja hann. Ég hef verið ópóli- tískur síðan.“ En margir hafa hætt að styðja Framsóknarflokkinn, sem og aðra flokka, og fara þá í aðrar stjórn- málahreyfingar, jafnvel stofna sínar eigin. Kom það ekkert upp í þér? „Nei. Pólitíkin var ekki minn vettvangur. Fólk hefur spurt mig gagnrýnið hvort ég haldi að ég sé bara einhver riddari á hvítum hesti frá Noregi og ætli að bjarga Íslandi. Að ég hafi ekki búið hér lengi og viti því ekki hvernig hlut- irnir hafi þróast. En því fer fjarri. Ég er með lán frá íslenskum banka og veit hvernig þau hafa vaxið. Ég er búinn að fylgjast vel með málum á Íslandi allan tímann, en ég er ekki kominn til að bjarga neinu frá neinu. En fjarlægð mín gerir það að verkum að ég er ekki með hagsmunatengsl við neinn eða neitt. Ég er ótengdur pólitíkinni, hagsmunaöflum og fjármagnsöfl- um. Ég hef enga styrki fengið, þó ég hafi sótt um hjá hátt í 40 fyrir- tækjum. En þessi barátta er forréttindi og ég hef lært mikið af henni. Svo finnst börnunum okkar þetta líka gaman. Þú sérð kosningaskrifstof- una hér út um gluggann – hún er á fjórum hjólum. Í henni er fjöl- skylda mín og við erum ekki með neitt annað fólk í kringum okkur fyrir utan frænkur okkar og frændur. Ari Trausti kallar sitt framboð „Bónusframboð“ þannig ætli ég sé þá ekki með „Nettófram- boð“?“ Ekkert gott að hafa í ESB Hvað hefur þetta kostað þig? „Ég tók mér þriggja mánaða launalaust frí og með því öllu er efra þakið fjórar milljónir. Og það er gott að það komi fram. Þessi sterka „ekki-tenging“ við hags- munaöflin er kannski stóri mun- urinn á mér og öðrum frambjóð- endum. Og annað er að mér finnst mikilvægt að forsetinn hafi skoðan- ir á hlutunum og sé ekki hræddur við að tjá þær. “ Eins og núverandi forseti hefur gert? „Já, og eins og ég hef gert. Ég var fyrsti maðurinn sem tjáði mig um að ég hefði alltaf verið á móti ESB og gæti ekki séð neitt gott út úr því fyrir Íslands hönd. Mér finn- ast margir frambjóðendur fara með sínar persónulegu skoðanir eins og köttur í kringum heitan graut. Því kosningarnar snúast ekki bara um málefni, heldur jafn mikið um pers- ónuna sem fer á Bessastaði. Þetta er svo samofið og því hefur fólk rétt á því að vita hvað forsetanum finnst um hlutina.“ Mundir þú beita þér gegn aðild Íslands að ESB sem forseti? „Ég er á móti ESB. Mér finnst rétt að fólk fái að vita það. En forsetinn á samt ekki að beita sér á nokk- urn hátt því það er pólitíkin. Það er Austurvöllur sem er völlur ágrein- ings og þar á að vera tekist á.“ Hvað eru Bessastaðir þá? „Þeir eru öryggisventill. Ég mundi til dæmis beita neitunarvaldi ef ég teldi að lýðræðinu væri ógnað. Því það má ekki beita því að eigin geðþótta. Það er ekki hægt að hafa fólk á Bessastöðum sem stoppar löggjöf þannig. Neitunarvaldið á að vera algjörlega seinasta úrræðið.“ Brann í skinninu að koma heim En hvað hefur haldið þér frá Íslandi í allan þennan tíma? „Ég kynntist norskri konu á sínum tíma sem ég eignaðist með tvö börn. Svo slitnaði upp úr því sambandi og þá var sjálfgefið að vera í Noregi á meðan börnin voru að stækka. En nú eru þau á tíunda og þrettánda ári, svo nú get ég farið að snúa aftur heim til Íslands.“ Þannig að þú ert í Noregi fyrir börnin? „Já, það er ég. Ekki misskilja mig, það er mjög fínt að vera í Nor- egi, en ég brann í skinninu við að koma heim árið 2008. En þá hefði ég skilið börnin eftir svo það var ekki inni í myndinni því ég er mikill fjöl- skyldumaður.“ Ertu bjartsýnn? „Ég er bjartsýnn maður að nátt- úru og ég tel að við eigum að líta á það sem er í fortíðinni og læra af því. Ég hef trú á þessu, sama hvað fólk segir. Það eru auðvitað mörg miklu frambærilegri forsetaefni heldur en ég á landinu, en ég er ekki viss um hvort nokkurt þeirra sé í framboði.“ Var áfram í Noregi fyrir börnin sín Hannes Bjarnason lætur skoðanakannanir ekki aftra sér frá því að halda áfram í baráttunni um Bessastaði. Hann segist ekki vera að koma frá Noregi sem riddari á hvítum hesti til að bjarga Íslandi. Sunna Valgerðardóttir spurði Hannes út í bjartsýnina á bak við forsetaframboðið. BJARTSÝNN MAÐUR AÐ NÁTTÚRU Það kom Hannesi ekkert á óvart að hann mældist með lítið fylgi í síðustu skoðanakönnunum. Hann segir bjartsýnina vera honum eðlislæg og enn geti allt gerst þar sem stór hluti þjóðarinnar eigi enn eftir að ákveða sig. MYND/CHARLOTTE KVALVIK Það eru auðvitað mörg miklu frambærilegri forsetaefni heldur en ég á landinu, en ég er ekki viss um hvort nokkurt þeirra sé í framboði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.