Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 36
2. júní 2012 LAUGARDAGUR36
Þ
etta er erfitt og þetta
er hættulegt. Maður
finnur fyrir miklum
þrýstingi. En ég er
ekki hræddur, því ef
óttinn fær að ráða þá
komum við engu í verk,“ segir
David Vareba, ungur Nígeríu maður
sem heimsótti Ísland nýverið.
Hann er frá Bodo, sautján þús-
und manna bæjarfélagi á óseyr-
um Nígerfljóts. Fyrir fjórum árum
urðu þar ein mestu umhverfisspjöll
sögunnar þegar mikið magn af olíu
lak vikum saman úr olíupípum stór-
fyrirtækisins Shell.
„Þetta var blómlegt fiskveiði-
samfélag, iðandi af lífi. Upphaf-
lega flutti fólk þangað vegna þess
hve aðstæður til fiskveiða voru
góðar þarna á óseyrunum. Við
lifðum á fiski, vorum búin að þróa
upp aðferðir við fiskvinnslu og
svo seldum við fiskinn. Þetta var
allt saman eyðilagt. Það er ekkert
eftir. Enginn fiskur, engin vinna,
ekki neitt.“
Fjölskylda Varebas varð illa úti,
eins og aðrar fjölskyldur á þessu
svæði. Móðir hans flutti burt og
fyrir tveimur árum lést faðir hans:
„Ég býst við að það hafi eitthvað
haft með ástandið að gera,“ segir
Vareba um lát föður síns.
Aðstoð við íbúa
Vareba starfar nú með samtökum
sem nefnast Miðstöð umhverfis-
mála, mannréttinda og þróunar við
það að aðstoða íbúa á svæðinu við að
leita réttar síns. Hann hefur einn-
ig átt samvinnu við Amnesty Inter-
national, sem hefur lagt baráttu íbú-
anna stuðning.
„Það er mikil reiði meðal íbú-
anna. Mikil vonbrigði og örvænting.
Það hafa brotist út hörð átök víða á
þessu svæði. Það sem ég hef verið
að gera er að hitta fólkið og meðal
annars kynna þeim leiðir til að mót-
mæla með friðsam legum hætti.“
Baráttan hefur einkum beinst
gegn olíurisanum Shell, sem hefur
viðurkennt ábyrgð á tveimur stórum
olíulekum árið 2008 en segist hafa
hreinsað upp eftir sig, þótt olían sé
enn yfir öllu.
Shell segir það flækja málin, að
eftir að hreinsunarstarfinu lauk
hafi meiri olía lekið út á þessu svæði
vegna skemmdarverka og olíuþjófn-
aðar, sem er al gengur á óseyrum
Nígerfljóts. Shell segist ekki geta
tekið ábyrgð á slíku, jafnvel þótt
olíuvinnslan á svæðinu hafi verið á
þeirra vegum áratugum saman.
Málaferli í Bretlandi
Vareba segir fullyrðingar Shell
um hreinsunarstarfið ekki stand-
ast skoðun.
„Við fengum óháð matsfyrir-
tæki til að fara yfir ástandið og
það kom í ljós að þeir sem Shell
fékk til að hreinsa upp eftir sig
stóðu sig engan veginn.“
Umhverfisstofnun Sameinuðu
þjóðanna birti á síðasta ári ítar-
lega skýrslu um olíumengunina
á óseyrum Nígerfljóts, þar sem
komist er að þeirri niðurstöðu að
hreinsunarstarfið geti tekið allt
að 30 ár og kostnaðurinn verði
líklega um einn milljarður dala,
eða sem svarar nærri 130 millj-
örðum króna.
Vareba segist bera miklar
vonir til þess að málaferli gegn
Shell, sem nú standa yfir í Bret-
landi, skili árangri. „Við erum að
vonast til þess að dómstólarnir
geti litið hlutlægt á málið.“
Stjórnin hefur brugðist
Glíma íbúanna á óseyrum Níger-
fljóts er þó ekki síður við Níger-
íustjórn en olíufyrirtækjunum,
því viðbrögð stjórnvalda hafa
verið af skornum skammti og
máttlítil.
„Nígeríustjórn hefur brugðist
okkur,“ segir Vareba. „Það er á
ábyrgð stjórnvalda að tryggja
íbúunum vernd en ástandið er
þannig að stjórnin getur ekki
veitt okkur þessa vernd.“
Vareba segir mikla spillingu
viðgangast meðal stjórnvalda og
tengsl ráðamanna við fjársterk
olíufyrirtækin vera alltof náin.
„Ráðamenn eru flæktir í svo
mörg spillingarmál tengd olíu-
félögunum að þeir virðast hafa
misst alla pólitíska möguleika
til þess að setja reglur um þetta,
þannig að þessi fyrirtæki lúta
í reynd ekki nógu ströngum
reglum. Í raun og veru eru það
olíufyrirtækin sem stjórna
stjórninni.“
Skorað á almenning
Íbúarnir hafa því leitað lið-
sinnis alþjóðastofnana og mann-
réttindasamtaka og vonast
eftir því að þrýstingur þeirra
á stjórnvöld geti haft einhver
áhrif. Einnig er reynt að höfða til
almennings á Vesturlöndum og
víðar um heim.
Þess vegna hélt Vareba af stað í
ferðalag til nokkurra Evrópuríkja
í apríl síðastliðnum. Fyrst lagði
hann leið sína til Ítalíu, þaðan
til Hollands og loks hingað til
Íslands, þar sem hann flutti fyrir-
lestur á vegum Amnesty Inter-
national um áhrif olíumengunar á
mannréttindi íbúanna á óseyrum
Nígerfljóts.
„Við skorum á alþjóðasamfé-
lagið að beita Shell og hin olíu-
félögin á mengunarsvæðunum
þrýstingi, þannig að fólk geti farið
að draga andann á ný og lifa eðli-
legu lífi.“
Olían svipti alla lifibrauðinu
Blómlegt fiskveiðisamfélag á óseyrum Nígerfljóts lagðist í auðn fyrir fjórum árum þegar olía flæddi þar yfir allt. Engan fisk er lengur
að fá og íbúarnir standa ráðþrota. Einn þeirra, David Vareba, segir Guðsteini Bjarnasyni frá baráttu íbúanna gegn olíurisanum Shell.
DAVID VAREBA Hélt til Ítalíu, Hollands og Íslands að kynna ástandið á óseyrum
Nígerfljóts, þar sem hann bjó í blómlegu fiskveiðisamfélagi sem stór olíuleki lagði í
auðn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ALLT Á FLOTI Olíulekarnir í Bodo árið 2008 teljast með mestu umhverfisslysum sögunnar. Þótt mikið hafi verið hreinsað upp af yfirborðsolíunni er hún víða í grunnvatni og berst út í alla læki og ár. Vonlaust er að reyna
fiskveiðar á ný næstu árin og jafnvel áratugina. NORDICPHOTOS/AFP
© GRAPHIC NEWS
■ HREINSUNIN GÆTI TEKIÐ 30 ÁR
Olíumengun eftir hálfrar aldar starfsemi
olíufyrirtækja á borð við Shell er svo mikil,
að það tæki allt að þrjátíu ár að hreinsa upp
óþverrann. Hreinsunin gæti kostað vel á
annað hundrað milljarða króna. Þetta er mat
Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna,
sem á síðasta ári gaf út ítarlega skýrslu um
ástandið á óseyrum Nílarfljóts.
Olíuvinnslusvæði
Olíuleiðslur
Olíuhreinsistöðvar
Nígería
Kamerún
Ogoniland
Bodo
Warri
Nígerfljót
Port
Harcourt
Benínbugt
Óseyrar
Nígerfljóts Bonnybugt
Miðbaugs-Gínea
SAMANBURÐUR
OLÍULEKA
Olíulekarnir í Ogonilandi 2008 og 2009
13 milljón tunnur (hámark)
9 milljón tunnur (lágmark)
Olíulekinn í Mexíkóflóa 2010
4,9 milljón tunnur