Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.06.2012, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 02.06.2012, Qupperneq 44
KYNNING − AUGLÝSINGSumar á Norðurlandi LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is s: 512 5411| Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Það kom að því, við erum orðin miðaldra,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akur- eyri, hlæjandi þegar blaðamað- ur slær á þráðinn til hans, en um helgina verður haldið upp á 50 ára afmæli safnsins. Hann vill þó ekki kalla safnið stofnun, þó það sé komið á svo virðulegan aldur. „Nei, alls ekki. Við erum miklu frekar hluti af fjölskyldunni í samfélaginu hér á Akureyri. Þess vegna bjóðum við í garð- partý og afmæliskökur eins og í alvöru fimmtugsafmæli,“ bætir hann við. Andi sjöunda áratugarins mun svífa yfir vötnum alla helgina en afmælishátíðin stendur milli klukkan 14 og 16 í dag og á morg- un. Starfsfólk klæðir sig upp á eftir tísku ársins 1962 og sleg- ið verður upp balli í garðinum við undirleik Danshljómsveitar Snorra Guðvarðar. Dansf lokk- urinn Vefararnir mun tjútta með gestum og allar veitingar verða í anda Akureyrar sjöunda áratug- arins. „Við létum sérstaklega fram- leiða fyrir okkur Valash, app- elsínudrykk sem var framleidd- ur hér í bænum á árum áður. Þá verður auðvitað Conga- og Bragakaffi á boðstólum auk þess sem hið aldargamla Kristjáns- bakarí sér um kaffibrauðið. Á sunnudeginum verðum við með fjölskylduhátíð, kökuhlaðborð og blöðrur. Matthias Jochum- son vildi ekki missa af þessu, þó hann sé löngu farinn yfir móð- una miklu, og verður hér á rabbi við gesti,“ segir Haraldur. Ti l að f u l l kom na „nost- algíuna“ verður einnig opnuð ljósmyndasýning með 300 ljós- myndum af bæjarlífinu á Akur- eyri á tímabilinu 1862 til 2012. Haraldur vonast til að sjá sem flesta um helgina. „Þetta verður skemmtileg garðveisla og ég hvet fólk til að kíkja til okkar ef það vill fanga Akureyri.” Garðpartý og Valash Haldið verður upp á 50 ára afmæli Minjasafnsins á Akureyri um helgina. Andi sjöunda áratugarins mun svífa yfir vötnum og boðið verður upp á Valash. Skemmtilegt augnablik í miðbæ Akureyrar frá sjöunda áratugnum. MYND/MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI Minjasafnið á Akureyri á yfir þrjár milljónir ljósmynda. Í dag verður opnuð sýning á 300 myndum sem sýna bæjarlífið á tímabilinu 1862 til 2012. MYND/MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri, slær upp afmælisveislu í anda sjöunda áratugarins ásamt starfsfólki. Minjasafnið er hálfrar aldar gamalt. MYND/HEIDA.IS Byggðasafnið á Dalvík er í Hvoli við Karlsrauðatorg og er fræðandi og skemmtilegt safn. „Það er góð dagsferð frá til dæmis Akureyri að skella sér til Dalvíkur með hópa til að skoða safnið, fara í hvalaskoðun og sund eða bara að ganga um lítið fiskiþorp á norðurhjara ver- aldar. Þetta er hefðbundið minjasafn sem vinnur sam- kvæmt safnalögum í hvívetna,“ segir Íris Ólöf Sigur- jónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins. „Sumardagskrá safnsins er að fara af stað og er hún mjög girnileg. Hún samanstendur af fræðilegum er- indum og tónlist. Sem dæmi má nefna að þann 23. júní mun Kristján E. Hjartarson segja sögu gamalla húsa á Dalvík og þann 5. ágúst flytur tríóið Tvær á palli með einum kalli tónlist úr ýmsum áttum auk fjölda annarra skemmtilegra uppákoma í allt sumar.“ Auk þess að vera hefðbundið minjasafn er nátt- úrugripasafn á Hvoli. Í fuglaherbergi safnsins eru yfir hundrað tegundir uppstoppaðra fugla. Einnig eiga tveir þjóðþekktir Svarfdælingar sínar stofur á safn- inu. „Í ljósi þess að forsetakosningar eru að bresta á er skemmtilegt að nefna að hér er stofa sem tileinkuð er Kristjáni Eldjárn, fyrrverandi forseta. Hér á einnig Jó- hann Svarfdælingur, sem eitt sinn var hæsti maður heims, sína stofu. Allir eru hjartanlega velkomnir á þetta fallega safn, sem hefur verið kölluð perla norð- ursins,“ segir Íris Ólöf. Nánari upplýsingar um safnið má finna á heimasíðu þess, Dalvikurbyggð.is/byggdasafn. Perla Norðursins Byggðasafnið Hvoll er bæði hefðbundið minjasafn og náttúrugripasafn. Þar er einnig stofa tileinkuð Kristjáni Eldjárn, fyrrverandi forseta. Jóhann Svarfdælingur er annar tveggja þjóðþekktra einstaklinga sem eiga stofur tileinkaðar sér á Byggðasafninu á Dalvík. FEGURSTA FLJÓÐIÐ NORÐAN HEIÐA Akureyrska menntaskólamærin Valdís Lilja Valgeirsdóttir var krýnd Ungfrú Norðurland í Sjallanum um nýliðna hvítasunnuhelgi. Hvernig tilfinning er að vera fegurst norðlenskra kvenna? Þótt það sé hinn mesti heiður myndi ég aldrei telja mig þá fegurstu á Norðurlandi. Hér fyrir norðan eru margar gullfallegar stelpur og ég vildi að það hefði verið hægt að setja allar stelpurnar í fyrsta sæti. Hvers vegna telurðu að þú hafir staðið uppi sem sigurvegari? Ég hafði gaman af ferlinu, var jákvæð og dugleg að mæta á æfingar. Naut þess að vera í skemmtilegum félagsskap og vonandi hafði það eitt- hvað að segja um hvernig persónuleiki ég er en ekki eingöngu útlitið. Hvað lærðir þú um sjálfa þig í fegurðarsamkeppninni? Að ég get verið skipulögð þegar á reynir. Samhliða æfingum var ég í próflestri og fór í fyrsta prófið í MA daginn sem keppnin var. Ég tel að undirbúningurinn hafi hjálpað mér mjög mikið við að efla framkomu mína og tjáningu og að koma fram fyrir stóran hóp af fólki. Hvernig geturðu látið titilinn verða öðrum til góðs? Nú þegar höfum við stelpurnar sem tókum þátt í Ungfrú Norðurland látið gott af okkur leiða. Við ræddum saman um hvað við vildum gera til að kynnast betur og ákváðum að safna peningum til styrktar góðu málefni. Fyrir valinu varð Aflið, samtök gegn kynferðis-og heimilisofbeldi, en við bökuðum bollakökur og seldum við góðar undirtektir í Hlíðarfjalli á uppstigningardag. Hversu mikilvægt er að líta vel út? Það er ekki aðalmálið að vera í flottustu fötunum og mikið málaður. Ég legg meiri áherslu á að mér líði vel líkamlega og er dugleg að hreyfa mig. Það hefur áhrif andlega. Þegar þetta tvennt fer saman líður manni vel og þá lítur maður vel út. Hvað líkar þér best við að búa á Akureyri? Mér finnst þægilegt hvað er stutt á milli staða og hér hefur maður allt til alls. Stutt er í náttúruna og alls kyns afþreyingu. Bærinn hefur vinalegt yfirbragð, er mjög hlýlegur og flestir finna hvað samfélagið er stresslaust. Hvert færir þú með gestkomandi jafnaldra þína til að upplifa sem best töfra og sjarma Akureyrar? Í Kjarnaskóg sem er skemmtilegur útivistarstaður rétt fyrir utan Akureyri. Hvert er best geymda leyndarmálið á Akureyri? Brynjuísinn, en uppskriftin er einmitt leyndarmál. Hvert stefnirðu í lífinu? Ég ætla að klára stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri. Síðan langar mig að sjá heiminn og fara í nám tengt einhvers konar hönnun. Hvert er mikilvægasta verkefni ungs fólks á Íslandi í dag? Að láta sér líða vel og nýta þau tækifæri sem gefast til menntunar eða vinnu. Ertu sátt við þjóðmálin sem snúa að ungu fólki? Ég hef ekki svo mikið spáð í þau en ungt fólk hefur margs konar mögu- leika til að tjá sig og segja skoðun sína á þjóðmálunum, og er að ég held duglegra að láta í sér heyra nú en áður var. Hvað einkennir íslenskar ungar konur í dag? Þetta eru algerar kjarnakonur. Að hverju leitarðu í fari vina? Heiðarleika, gleði, trausti og að þeir vilji koma fram við mig eins og þeir vilja að ég komi fram við þá. Hvað er ást í þínum huga? Ást byggist á kærleika, trausti og heiðarleika. Að geta verið maður sjálfur í návist manneskju, skemmt sér og notið lífsins. Þá myndast sérstök tengsl sem er einfaldlega ekki hægt að útskýra; rétt eins og við kærast- inn minn höfum. Ef þú gætir komið einum skilaboðum á framfæri við heiminn, hver væru þau? Að fólk sé samkvæmt sjálfu sér, heiðarlegt í samskiptum og reyni ekki að vera annað en það er. Komi fram við náungann eins og það vill að aðrir komi fram við það. Valdís Lilja Valgeirsdóttir í sólgulri brekku fífla í hjarta Akureyrar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.