Fréttablaðið - 02.06.2012, Side 54
2. júní 2012 LAUGARDAGUR4
LÖGFRÆÐINGUR
Samtök atvinnulífsins leita að lögfræðingi til starfa á skrifstofu samtakanna.
Helstu verkefni:
Lögfræðileg ráðgjöf og þjónusta við aðildarfyrirtæki SA, einkum á sviði vinnuréttar
Gerð og túlkun kjarasamninga
Seta í nefndum og stjórnum f.h. SA
Gerð umsagna um þingmál
Málflutningur f.h. samtakanna eða aðildarfyrirtækja þeirra
Þátttaka í undirbúningi stefnumótunar samtakanna í fjöl mörgum mikilvægum málaflokkum
Aðkoma að alþjóðlegu samstarfi
Á vinnumarkaðssviði samtakanna starfa fimm lögmenn. Leitað er að öflugum einstaklingi með
embættis- eða masterspróf í lögfræði, nokkra starfsreynslu úr atvinnulífinu eða viðeigandi starfs-
reynslu á öðrum vettvangi og/eða viðbótarnám sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkom andi hafi
þekkingu á vinnu rétti og lögmannsréttindi.
Upplýsingar veitir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, í síma
821 0019
Umsóknir berist á skrifstofu SA í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, Reykjavík eða með tölvupósti
til ragnar@sa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní nk.
Samtök atvinnulífsins eru heildarsamtök íslensks atvinnu-
lífs og málsvari atvinnurekenda í hags muna málum þeirra.
Innan vébanda samtakanna eru sjö aðildarfélög sem starfa
á grunni atvinnu greina. Aðild að SA eiga um 2.000 smá
og stór fyrirtæki þar sem starfa u.þ.b. 50.000 starfsmenn
eða um helmingur launamanna á almennum vinnumarkaði
á Íslandi .
Hjá SA starfa 19 starfsmenn sem búa yfir margvíslegri sér-
fræðiþekkingu og sinna m.a. vinnumarkaðs-, efnahags-,
skatta-, umhverfis-, sam keppnis- og mennta málum auk
samstarfs við stjórnvöld og setu í margvíslegum stjórnum
og nefnd um, m.a. samninga hópum vegna aðildar umsóknar
Íslands að ESB. SA taka þátt í alþjóðlegu samstarfi atvinnu-
rekenda en samtökin reka einnig skrifstofu í Brussel.
Nánari upplýsingar um Samtök atvinnu lífsins er að finna á vef SA: www.sa.is
Þín ánægja er okkar markmið
-
vodafone.is/storf Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2012.
Vinnustaðurinn okkar er skemmtilegur og fólk sem tekst á
við krefjandi verkefni með bros á vör er okkur að skapi. Við
tökum verkefnin hátíðlega en ekki okkur sjálf og viljum
gera viðskiptavini okkar þá ánægðustu á Íslandi.
Þetta eru engar álfasögur.
Við erum frábær vinnustaður