Fréttablaðið - 02.06.2012, Page 62
2. júní 2012 LAUGARDAGUR
Yfirmaður mötuneytis í Foldaskóla
Foldaskóli óskar eftir að ráða yfirmann
í mötuneyti skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Yfirmaður mötuneytis ber ábyrgð á matseld,
innkaupum, stjórnun, skipulagningu og fram-
kvæmd starfsins í eldhúsinu í samvinnu við
skólastjóra.
Hæfniskröfur:
• Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla af
matreiðslu
• Góð þekking á næringarfræði og rekstri mötuneyta
• Þekking á rekstri
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Stundvísi
Umsóknarfrestur er til 23. júní 2012.
Allar frekari upplýsingar veitir Kristinn Breiðfjörð Guð-
mundsson, skólastjóri í síma 540 7600 eða netfangið
kristinn.breidfjord.gudmundsson@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í
störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið
Frá leikskóladeild Víkurskóla
Leikskólakennarar athugið
Laus er til umsóknar 100% staða deildarstjóra við leikskóladeild
Víkurskóla í Vík í Mýrdal. Leikskólakennaramenntunar er krafist.
Einnig er laus til umsóknar 100% staða leikskólakennara.
Víkurskóli er samrekinn leik,- grunn og tónskóli og eru spenn-
andi tímar fram undan við uppbyggingu leikskóladeildar í nýju
húsnæði að hluta. Til stendur að flytja leikskóladeildina undir
sama þak og grunn- og tónskóladeildir í ágúst komandi. Því
vantar okkur áhugasama og metnaðarfulla leikskólakennara til
starfa frá 1. ágúst næstkomandi. Laun samkvæmt kjarasamn-
ingum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Mýrdalurinn hefur að bjóða frábæra umgjörð fyrir uppeldi og
uppvöxt í formi náttúru, leik- grunn og tónskóla og íþróttamann-
virkja.
Umsóknarfrestur er til 15. júní.
Upplýsingar fást hjá:
Deildarstjóra Leikskóla
sími: 487 1241
netfang: leikskoli@vik.is
Skólastjóra Víkurskóla
sími: 487 1242/865 0307
netfang: anna@vik.is
Sjónarhóll – ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna
með sérþarfir auglýsir stöðu foreldraráðgjafa.
Ráðgjafar Sjónarhóls gæta hagsmuna fjölskyldna
barna með sérþarfir, aðstoða fjölskyldur við að finna
úrræði og fá þjónustu og veita málum eftirfylgd.
Stofnfélög Sjónarhóls eru: ADHD samtökin, Lands-
samtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum
börnum. Hjá Sjónarhóli starfa framkvæmdastjóri,
tveir ráðgjafar og móttökuritari. Stofnfélögin fjögur
og Sjónarhóll eru öll til húsa að Háaleitisbraut 13 í
Reykjavík.
Heimasíða Sjónarhóls www.sjonarholl.net
Hæfniskröfur og menntun:
- Þjónustulund, virðing fyrir þeim sem leita til
Sjónarhóls og jákvætt viðmót.
- Eldmóður og áhugi fyrir málefnum barna
með sérþarfir.
- Reynsla af málefnum barna með sérþarfir.
- Þekking á tiltækum stuðningsúrræðum og
réttindum hinna ýmsu hópa sem leita til Sjónarhóls.
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Háskólamenntun á sviði félagsráðgjafar, þroska
þjálfunar, sálfræði eða sambærileg menntun.
Um er að ræða 100% starf. Nánari upplýsingar veitir
Guðríður Hlíf Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Sjónarhóls í síma 535-1900,
netfang gudridur@sjonarholl.net
Umsóknum skal skilað á Sjónarhól – ráðgjafar-
miðstöð, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík eða á
netfangið gudridur@sjonarholl.net fyrir 17. júní nk.
Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir starfsmanni
Tanntæknir eða starfskraftur óskast á tannlækna-
stofu í Reykjavík.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá og
meðmælendum á box@frett.is fyrir 8 júní. Um er að
ræða hlutastarf í sumar en 100% starf í haust.
Matreiðslumaður óskast á sveitahótel
Matreiðslumaður óskast á Hótel Laka sem er nýuppgert glæsilegt
hótel í nágrenni Kirkjubæjarklausturs. Við rekum fjölskyldufyrir-
tæki og erum að leita að metnaðarfullum, duglegum einstaklingi
sem hefur ánægju af því að matreiða góðan og fjölbreyttan mat.
Um ársstarf getur verið að ræða, getum útvegað starf fyrir maka.
Upplýsingar gefur Eva Björk eða
Hörður í síma 487 4694 eða 899
4697. Einnig er hægt að senda
tölvupóst á netfangið
hotellaki@hotellaki.is
VERSLUNARSTJÓRI
KorpuOutlet leitar að fjölhæfum einstaklingi með góða
reynslu til að sjá um verslunarstjórn á Korputorgi.
KorpuOutlet er stærsta „outlet“ landsins. Verslun þess á
Korputorgi er tæpir 2000 fermetrar. KorpuOutlet býður upp á allt
sem fjölskyldan þarfnast í sport og tískufatnaði og svo líka
miklu meira!
Við óskum eftir starfsmanni í fullt starf sem verslunarstjóri í
KorpuOutlet á Korputorgi. Viðkomandi sér um daglega stjórn
verslunarinnar, starfsmannamál, innkaup, auglýsingar og
markaðsmál í samstarfi við rekstrarstjóra.
Viðkomandi verður að vera gæddur hæfni í mannlegum
samskiptum og skipulagsgáfu. Reynsla af verslunarstörfum er
skilyrði og reynsla af verslunarstjórn og innkaupum er mjög
æskileg. Tölvukunnátta er skilyrði og við ráðningu verður tekið
tillit til menntunar sem nýtist í starfi.
Sendu umsóknina með ferilskrá á hordur@utilif.is, merkta
„Verslunarstjóri“ fyrir 11. júní.
Öflugir
liðsmenn
óskast!
Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi. Umsóknir berist
til Sixt rent a car, Fiskislóð 18, 101 Reykjavík eða á
tölvupóstfangið sixt@sixt.is fyrir mánudaginn 11. júní.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Orri Sigurðsson.
Sixt rent a car - Fiskislóð 18 - 101 Reykjavík
540 2222 - www.sixt.is - sixt@sixt.is
Þjónustuver í Reykjavík
Starfssvið:
Bókanir og reikningagerð
Starfssvið:
Almennar hæfniskröfur:
OPUS
Sixt er stærsta bílaleiga Þýskalands, stofnuð 1912, og
hefur 3500 afgreiðslustaði í yfir 110 löndum. Sixt á Íslandi
hefur starfsstöðvar í Reykjavík og Keflavík. Fyrirtækið
hefur verið í miklum vexti undanfarin ár með hátt
þjónustustig að leiðarljósi.