Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 84
2. júní 2012 LAUGARDAGUR48
Krossgáta
Lárétt
1. Gáfnaljós, þessi klikkaði (9)
10. Löng æða samtaka í gassalegan (11)
11. Hól leysir hyllingar (8)
12. Starfsleið er streð strits stígur (12)
13. Hringja í fjölda eilíft þvaðrandi (9)
14. Ræð stefnu póla af fótabúnaði (10)
15. Legg snöru fyrir kerlingarasna (5)
16. Geymið frægðarmenni við sólarsæinn
á festingunni (12)
22. Rissi nabbi, það er lítill nagli
með hatt (10)
24. Sé karl í tölvu 9000 á leið
til Júpíters (3)
25. Þurr styrkti, staðlausi (10)
26. Elgsógeð stíflar göturæsi í hláku (10)
28. Ofsa hrópandi fyrirvinna (10)
29. Flekka fugla (10)
30. Myglumixtúra er margra meina bót (7)
31. Brjósk hleypur til er her
hittir nagdýr (6)
33. Á skjal með áletrun (7)
36. Sé kjarnakljúf flýta fimmtíu (6)
37. Hef tannviðgerðina og viðbótina (11)
38. Herma húð í fataefni fyrir
Herra Níels (8)
39. Sjást uglur fyrir höfuðföt (11)
Lóðrétt
1. Um ríkisstækkun gildir formúla um
stigmögnun (10)
2. Heilla fólkið og kuklarana (12)
3. Hylja harða með taurúllu (12)
4. Ringluð prinsessa dottar undir
óperu Puccinis um sig (8)
5. Rokvondar eldreiðar (8)
6. Þau yngstu eru í ruglinu á Gunnubar (8)
7. Hróp lauga ótrauða (8)
8. Hinn káti ættfaðir Dana sló ekki fast (8)
9. Les alþjóðalög í sjókví (7)
16. Leita hafnarbæjar og vélrænnar lífveru (8)
17. Fljótur fugl er sneggri (5)
18. Lausnin felst í nammi og líkama
frægs skipasmiðs (9)
19. Hryðjudjús mýkir kverkar (9)
20. Krókur í faldinn miðjan verður
toppurinn (13)
21. Ökutæki í agnarmanneskjur og óhófslið (11)
23. Garðasíli veiðist á línu (10)
24. Velgja vott um sótt (11)
26. Kjái við dálka og amerískar drossíur (9)
27. Bílastæðafantur þýðir tilbúna tungu (7)
32. Sársauki á vettvangi (5)
34. Kyrrð og kræklingur fyrir friðaða (5)
35. Sæmir mér ef ég drepst (5)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtast landsþekktir
Norðlendingar. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 6. júní næstkomandi á
krossgata@frettabladid.is merkt „2. júní“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og
fær vinningshafi eintak af
bókinni Leikarinn frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Áslaug Faaberg, Garðabæ.
H O L L U S T U F Æ Ð A
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10
11
12
13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24
25
26 27
28
29
30
31 32 33 34 35
36
37
38 39
G Ó Ð G Æ T I Ð V A R Ð H U N D U R
L E R H I Ó A Ó Ó
Æ F I N G A R L E I K U R G R Ö M U M
S G U F A I S S A
I I S A P Ó L I T Í S K U R
V E Ð S E T T U Ð I L Æ V B
I F A R Ú L L U S T I G A O
L S E L B I T A T M T D R
L L R Á S V H Á D A G
A Ð A L G E I R V I Ð L Í K A I
I S A N K L Ó R A N
R E K N E T G R Í S A L U N D A
Á G U A T F R L L U
P O K A P R E S T A R A S S A K Ö S T
T A I L É K G G A
U P P N Á M I Ð S Ó T R A U Ð U R T
Ð P A K T R U E U
R E N G I Ð B A S T A R Ð R E G I N
U Ó R Ú R I L G
M A G A D A N S H J A R Ð A R H A G A
Á þessum degi fyrir réttum 15 árum, 2. júní árið 1997, var
Timothy McVeigh fundinn sekur um
að hafa staðið á bak við hryðjuverk-
in í Oklahomaborg tveimur árum
áður. 168 manns létust og hundruð
slösuðust þegar bílsprengja sprakk
fyrir utan níu hæða stjórnsýslu-
byggingu og þeytti burt framhlið
hússins.
Um var að ræða mannskæðasta
hryðjuverk á bandarískri grund allt
fram að árásunum á tvíburaturnana
og Pentagon í september 2001.
McVeigh fæddist árið 1968 og ólst
upp í uppsveitum New York-ríkis.
Hann hafði meðal annars verið í
hernum um nokkurra ára skeið eftir
að hann lauk miðskólanámi og barð-
ist meðal annars í Persaflóastríð-
inu árið 1991, en vann sem öryggis-
vörður þegar hann hóf að vinna að
sprengjutilræðinu.
Hann hafði ætíð haft áhuga á skot-
vopnum og jafnframt mikla óbeit á
ríkisvaldinu, sem hann taldi þrengja
að einstaklingsfrelsi.
Einn af vendipunktunum í lífi
hans var þegar hann fór á vettvang
þar sem lögregla sat um sértrúar-
söfnuð David Koresh í Waco í Texas
árið 1993. Hann fylltist mikilli reiði
þar sem hann horfði upp á bardag-
ann þar sem 80 safnaðarmeðlimir
létu lífið og fór eftir það að sækja
innblástur í störf sjálfskipaðra her-
deilda, sem voru mjög algeng í Bandaríkjunum á þessum árum.
McVeigh og félagi hans, Terry Nichols, hófu að skipuleggja ódæðið
árið 1994 og viðuðu að sér mörgum tonnum af áburði sem þeir blönduðu
með dísilolíu og komu fyrir í sendiferðabíl.
Að morgni 19. apríl árið 1995, réttum tveimur árum frá hörmungunum
í Waco, lagði McVeigh bílnum fyrir utan Alfred P. Murrah bygginguna,
þar sem ýmsar alríkisstofnanir voru með skrifstofur. Rétt eftir klukkan
níu sprakk sprengjan og sópaði framhlið hússins af með fyrrgreindum
afleiðingum. Nítján börn voru meðal þeirra sem létust.
McVeigh var handtekinn samdægurs fyrir umferðarlagabrot en rétt
áður en honum var sleppt úr haldi beindist grunur að honum. Nichols gaf
sig fram stuttu síðar.
McVeigh var sakfelldur fyrir ellefu morð, samsæri og fyrir að beita
gereyðingavopni. Hann var síðar dæmdur til dauða og tekinn af lífi árið
2001. - þj
Heimild: Britannica
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1997
Timothy McVeigh sakfelldur
Timothy McVeigh var sakfelldur árið 1997 fyrir að hafa sprengt stjórnsýslu-
byggingu í Oklahoma-borg tveimur árum áður. 168 létust þar og hundruð
særðust. McVeigh var dæmdur til dauða og tekinn af lífi árið 2001.
RÚSTIR 168 létu lífið í sprengingunni
sem reif framhliðina af Alfred P. Murrah
byggingunni í Oklahoma árið 1995.
NORDICPHOTOS/AFP
SEKUR Timothy McVeigh var sakfelldur
fyrir að sprengja bygginguna og tekinn
af lífi árið 2001. NORDICPHOTOS/AFP
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
Landsmót hestamanna
Reykjavík 2012
25.06 – 01.07
Ógleymanleg skemmtun. Bestu gæðingar landsins etja kappi og helstu kynbótastjörnur
landsins koma fram. Troðfull dagskrá með landsþekktum skemmtikröftum, kvöldvökum
og fjölskyldustemningu. Á keppnissvæðinu er glæsilegur barnagarður.
Það styttist í ævintýrið!
Miðasala á www.landsmot.is
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D