Fréttablaðið - 02.06.2012, Síða 96
2. júní 2012 LAUGARDAGUR60 60
menning@frettabladid.is
Samsýningin Rætur opnar
í Listagilinu á Akureyri í
dag.
„Við eigum öll rætur okkar að
rekja til Akureyrar og tengjumst
heimabænum sterkum böndum,“
segir G. Viktoría J. H. Blöndal, ein
fjórtán listamanna sem eiga verk
á samsýningunni Rætur 65°41‘N
18°06‘W sem opnar í Ketilhúsinu
í Listagili í dag.
Yfirskriftin vísar í uppruna
ungu listamannanna sem hafa
numið list í Listaháskóla Íslands,
Myndlistaskólanum í Reykjavík
og Myndlistaskólanum á Akureyri.
Listamennirnir sem sýna eru
Auður Ómarsdóttir, Ari Mar-
teinsson, Arnar Ómarsson, Georg
Óskar Giannakoudakis, Guð-
rún Þórsdóttir, G. Viktoría J. H.
Blöndal, Hekla Björt Helgadóttir,
Katrín Erna Gunnarsdóttir, Lilý
Erla Adamsdóttir, Máni Sigurðs-
son, Rakel Sölvadóttir, Sara Björg
Bjarnadóttir, Vala Höskuldsdóttir
og Victor Ocares.
„Sýningin verður opnuð klukk-
an 15 og stendur til 21 um kvöld-
ið. Yfir opnunina verða eldhressir
tónleikar með nokkrum akur-
eyrskum böndum og gjörningur,
sem mun flæða um rýmið.“ Allir
eru velkomnir á opnunina og á
sýninguna, sem mun standa fram
til 1. júlí. hallfridur@frettabladid.is
AKUREYRSK OG
UPPRENNANDI
RÆTUR Listamennirnir sem standa að samsýningunni Rótum eru allir frá Akureyri.
Tónlist ★★★★★
Ljóðatónleikar
Cristoph Prégardien söng, Ulrick Eisenlohr lék á píanó
Norðurljós í Hörpu, Listahátíð í Reykjavík 27. maí
Dásamlegur söngur
Sagt er að Heilagur andi hafi yfirskyggt postulana á hvítasunnudag. Ég er ekki frá
því að hann hafi líka verið að verki á tónleikunum í Hörpu á hvítasunnudag fyrir
nokkrum dögum. Það var nefnilega enginn venjulegur söngvari sem söng þar.
Þetta var Christoph Prégardien, einn fremsti ljóða- og óratóríusöngvari heims.
Söng hans er að finna á geislaplötum frá helstu útgáfufyrirtækjunum. Svo kemur
hann reglulega fram með heimsins bestu hljómsveitum. Þar fyrir utan er hann
virtur kennari. Það var einmitt haldið með honum námskeið fyrir söngvara í
tengslum við tónleika hans hér á landi.
Strax á fyrstu tónunum var ljóst að þetta yrði skemmtileg stund. Prégardien
hefur magnaða rödd. Tónar á háa og lága tónsviðinu voru jafnskýrir; allt tón-
sviðið var í einstöku jafnvægi. Svo var sviðsframkoman skemmtilega blátt áfram
og laus við tilgerð. Auðséð var að söngvarinn elskaði að standa í sviðsljósinu.
Níu sönglög eftir Schubert við ljóð eftir Ernst Schulze voru á dagskránni fyrir
hlé. Þetta eru fremur sjaldheyrð lög miðað við margt annað eftir tónskáldið.
Sem er skrýtið, því þau eru hvert öðru fallegra. Og Prégardien söng þau dásam-
lega. Túlkunin var full af skáldskap, innileg og kraftmikil, laglínurnar unaðslega
mótaðar. Það var eitthvað skemmtilega karlmannlegt við þau, eitthvað lifandi og
ævintýralegt sem erfitt er að skilgreina.
Tónlist Schuberts er full af andagift, en túlkandi hennar þarf líka að vera inn-
blásinn. Óhætt er að fullyrða að Prégardien hafi verið það á tónleikunum.
Hinn svokallaði Söngvasveigur, Liederkreis eftir Schumann var á dagskránni
eftir hlé. Sú tónlist er nokkuð innhverfari en lög Schuberts, en Prégardien gerði
þeim alveg jafn vel skil. Þessi rómantíska óvissa, en samt ákefð, sem einkennir
tónskáldið, skilaði sér fullkomlega í vandaðri túlkuninni.
Með Prégardien lék Ulrick Eisenlohr á píanó. Hann gerði það með glæsibrag,
leikurinn var skýr og öruggur, óheftur og þróttmikill. Í svona tónlist er píanó-
leikarinn enginn undirleikari. Þvert á móti er hann meðleikari, jafnvel mótleikari.
Rödd píanósins er leikmyndin, lýsingin og stemningin; andrúmsloftið sem gefur
söngnum mikið af merkingu sinni. Píanóleikur Eisenlohrs gerði þetta allt. Það
var einfaldlega ekki hægt að hugsa sér betri meðleik. Jónas Sen
Niðurstaða: Einhverjir bestu ljóðatónleikar sem hér hafa verið haldnir.
DJASSTRÍÓ SUNNU GUNNLAUGS spilar ljúfa tóna á fyrstu stofutónleikum sumarsins á Gljúfrasteini.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er aðgangseyrir 1.000 krónur.