Fréttablaðið - 02.06.2012, Blaðsíða 118
2. júní 2012 LAUGARDAGUR82
PERSÓNAN
„Það er nokkurn veginn búið að ákveða að
þau komi í haust aftur,“ segir Snorri Þórisson
hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus.
Þriðja þáttaröð af miðaldafantasíunni
Game of Thrones verður að hluta til tekin
upp hér á landi. Aðilar frá bandarísku sjón-
varpsþáttunum komu hingað fyrripartinn
í maí og skoðuðu tökustaði í samvinnu við
Pegasus. Þeim leist vel á Norðurland og þá
sérstaklega Mývatnssvæðið. „Þetta verður
einhvers staðar þar en það er ekki búið að
negla það alveg niður. Það eru margir staðir
sem koma til greina. Menn þekkja Suðurland-
ið og það getur vel verið að það verði eitthvað
þar líka. En það eru ekki endilega jöklar sem
þeir vilja mynda núna,“ segir Snorri.
Hann er sammála því að þetta séu fín tíð-
indi fyrir Pegasus og íslenskan kvikmynda-
iðnað enda unnu á þriðja hundrað manns við
síðustu þáttaröð, þar á meðal fjöldi Íslend-
inga. Hún var að hluta til tekin upp við rætur
Vatnajökuls síðasta haust. Talið er að kostn-
aðurinn við framleiðsluna hér landi hafi
numið rúmlega 200 milljónum íslenskra
króna.
Rúmlega tíu milljónir hafa saman-
lagt fylgst með hverjum þætti af Game of
Thrones hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni
HBO. Þáttaröðin er þar með orðin sú þriðja
vinsælasta í sögu stöðvarinnar. - fb
Tökur hefjast við Mývatn í haust
GAME OF THRONES Kit Harington við tökur á Game
of Thrones 2 í fyrra. Tökur á þriðju þáttaröðinni
hefjast hér á landi í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Hlaup eru svo hentug fyrir upp-
tekið fólk sem vill vera í góðu
formi, eina sem þarf eru góðir
hlaupaskór og síðan má hlaupa
hvaðan sem er og hvenær sem er,“
segja þær Elísabet Margeirsdótt-
ir, næringarfræðingur og veður-
fréttakona og Karen Kjartans-
dóttur, bókmenntafræðingur og
fréttakona á Stöð 2.
Þær gerðu nýlega samning við
Forlagið um útgáfu á hlaupabók
sem á að nýtast byrjendum jafnt
sem ofurhlaupurum, en bókin
á að koma út á næsta ári. Karen
og Elísabet eru með misjafn-
an hlaupabakgrunn en dá báðar
íþróttina og vilja fá sem flesta á
sprett í kringum sig.
„Elísabet á slatta af maraþon-
um og ofurhlaupum að baki. Hún
tók þátt í 100 kílómetra hlaupi í
frönsku Ölpunum og skipuleggur
núna ofurhlaup á Esjunni í júní,“
segir Karen sem sjálf kynntist
hlaupum hins vegar í fyrra þegar
hún vildi grennast eftir að hafa
eignast sitt þriðja barn. „Hlaupin
virkuðu afskaplega hratt til þess
auk sem þau auka orku manns og
einbeitni til að takast á við stóra
fjölskyldu og vinnu. Það er því
ekki annað hægt en að falla fyrir
þeim.“
Það má segja að ákveðið
hlaupa æði hafi gripið þjóðina
og margir farnir að reima á sig
hlaupaskóna. Karen og Elísabet
eru sannfærðar um kosti hlaup-
anna og segja ekkert jafnast á við
að hlaupa úti í íslenskri náttúru,
sama hvernig viðrar. „Ef hægt
væri að sameina alla kosti hlaupa
í duft þá væri það dýrasta fæðu-
bótarefnið á markaðnum. Hlaup
létta þér lundina, gera þig flott-
ari og glaðari. Þeir sem byrja að
hlaupa uppfæra í rauninni stýri-
kerfi líkamans því það verður
léttara og hraðvirkara. Þú mynd-
ir ekki vilja skipta yfir í Nokia
5110 eftir að hafa prófað iPhone.“
Karen og Elísabet segja alla
geta byrjað að hlaupa. „Allir
þeir sem hafa áhuga geta byrjað.
Sumir þurfa að byrja af meiri
varfærni en aðrir, svo sem ef
þeir eiga við stoðkerfisvandamál
að etja og ef þeir glíma við offitu.
Þeir sem komast af stað kom-
ast fljótlega að því að hlaup eru
ávanabindandi og ekki auðvelt
að hætta þeim eins og skyndi-
lausnunum. Vellíðanin er bara
svo mikil,“ segja þær en hlaupa-
bókin er ætluð til að aðstoða fólk
að taka þessi fyrstu skref sam-
hliða því að vera með fræðandi
efni fyrir lengra komna. „Það má
segja að við séum svolítið eins og
hlaupatrúboðar.“ alfrun@frettabladid.is
KAREN OG ELÍSABET: HLAUP UPPFÆRA STÝRIKERFI LÍKAMANS
Hlaupatrúboðar breiða út
boðskapinn í hlaupabók
HLAUPAGARPAR Elísabet Margeirsdóttir og Karen Kjartansdóttir sameina krafta sína
og skrifa hlaupabók fyrir byrjendur jafnt og lengra komna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég er rosa spennt að getað loksins komið heim í smá
sumarfrí og haldið námskeiðið í leiðinni,“ segir ljós-
myndarinn Saga Sigurðardóttir sem ætlar að halda
námskeið í tískuljósmyndun á Lunga-listahátíðinni í
sumar.
Hátíðin fer fram í á Seyðisfirði dagana 15.-22.
júlí en þetta er í fyrsta sinn sem Saga heldur nám-
skeið hér á landi. Saga er búsett í London þar sem
hún hefur getið sér góðs orð sem ljósmyndari og hafa
myndir eftir hana birst í helstu tískumiðlum heims á
borð við Dazed and Confused, ID og Nylon.
„Ég hef áður haldið fyrirlestra um mína vinnu og
kennt einn og einn tíma í Central Saint Martins-skól-
anum í London en þetta er í fyrsta sinn sem ég held
heilt námskeið. Það er spennandi,“ segir Saga sem
er menntuð í tískuljósmyndun. „Námskeiðið verður
mjög tískutengt því þar liggur áhugasvið mitt. Ég
ætla að reyna að kenna fólki að opna fyrir sköpunar-
kraftinn og segja sögu með mynd.“
Námskeiðið er eitt af mörgum sem fara fram á
Lunga-hátíðinni. Þar er meðal annars að finna nám-
skeið í fornleifafræðilegri skúlptúrgerð, námskeið í
göldrum og námskeið í tónlistarmyndbandagerð svo
fátt eitt sé nefnt.
Saga segist ætla að nota fyrstu dagana í að kenna
fólki hugmyndavinnu. „Ég er búinn að fá Ísak Helga-
son, förðunarmeistara, til að koma og vera með mér í
nokkra daga til að fólk fái innsýn í alla vinnuna sem
liggur að baki hverri mynd. Það eru allir velkomnir
og þurfa ekkert að kunna neitt í ljósmyndun né vera
með flottar græjur. Einnota myndavél er flott,“ segir
Saga sem hefur í nógu að snúast. „Það er alltaf nóg að
gera og mikil vinna framundan. Þess vegna hlakka
ég til að koma heim í smá frí.“ - áp
Kennir að segja sögu með mynd
HELDUR NÁMSKEIÐ Ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir kemur
heim í lok júlí og ætlar að deila ljósmyndaþekkingu sinni í
fyrsta sinn á Lunga-listahátíðinni.
Þeir sem komast af
stað komast fljótlega
að því að hlaup eru ávana-
bindandi.
ELÍSABET OG KAREN
HLAUPARAR
HAFMAÐUR
Hákon Huege-
mann sat fyrir
þegar búin var til
karlkyns útgáfa af
Litlu Hafmeyjunni.
„Það voru tveir myndlistarmenn
sem báðu mig um að gera þetta.
Þeir áttu tölvugerða mynd af þess-
ari styttu og hún leit út alveg eins
og ég,“ segir Hákon Huegemann.
Hann sat fyrir þegar lista-
mannadúóið Elmgreen & Drag-
set bjó til karlkyns útgáfu af Litlu
Hafmeyjunni. Styttan verður
afhjúpuð í dag á Helsingjaeyri á
Sjálandi í Danmörku.
Hinn nítján ára Hákon á íslenska
móður og er búsettur í Eus kirchen
í Þýskalandi. Hann hefur búið í
sautján ár þar í landi en hin tvö
árin bjó hann á Nýja Sjálandi.
Hákon hefur tekið að sér fyrir-
sætustörf undanfarin ár og ákvað
að bæta „hafmanninum“ á ferils-
skrána. „Ég fór til Berlínar í þrjá
daga og þurfti að sitja á plast-
steini. Þeir settu gifs á allan lík-
amann minn og það var mjög erf-
itt að sitja í tvo til þrjá klukkutíma
í senn á steininum,“ segir Hákon.
„En þetta var samt í fínu lagi.
Aðstaðan þarna var flott og lista-
mennirnir viðkunnanlegir.“
Aðspurður segir hann styttuna
mjög fallega. „Það er dálítið fyndið
að eftir kannski þrjátíu ár get ég
farið með börnin eða barnabörnin
mín og sýnt þeim þessa styttu af
mér.“ - fb
Íslenskur „hafmað-
ur“ afhjúpaður
Daníel Bjarnason
Aldur: 26 ára.
Starf: Kvik-
myndagerðar-
maður.
Foreldrar:
Gunnhildur
Hreinsdóttir
rekstrar-
fulltrúi og
Bjarni Sveinn
Benediktsson
fiskiðnaðarmaður.
Fjölskylda: Á eitt barn, Kormák Elí.
Búseta: Í Laugardalnum.
Stjörnumerki: Steingeit.
Daníel vinnur að sjónvarpsþáttunum
Óupplýst sem fjalla um yfirnáttúru-
lega atburði.
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur