Fréttablaðið - 07.06.2012, Page 32
FÓLK|TÍSKA
■ EKKERT ÓÞÆGILEGT
Þegar amma var ung voru
eyrnalokkar annað hvort
klemmueyrnalokkar eða fyrir
göt en eyrnalokkar voru eyrna-
lokkar. Nú tilheyra þeir stórri
fjölskyldu lokka sem skreyta
hina ýmsu líkamsparta.
Fátt virðist áhugafólki um
líkamsgötun heilagt en þó eru
líklega fáir sem myndu fórna
sjóninni fyrir hégómann. Nú
er þó lausnin komin fyrir þá
sem hafa látið sig dreyma um
„augnlokka“ því hollenski
hönnuðurinn Eric Klarenbeek
hefur hannað linsur með lafandi
skarti.
Áður höfðu menn þróað
aðferð við að græða örsmáan
skartgrip inn í augað en augn-
læknar hafa gagnrýnt þá aðgerð
og sagt hana hættulega. Skart-
linsurnar hans Klarenbeeks
ættu þó að vera hættulausar
þótt deila megi um þægindin
sem þeim fylgja. Sjálfur fullyrðir
Klarenbeek að linsunum fylgi
engin erting og þær trufli hvorki
sjón né daglegt líf. Enda er
alþekkt að menn taka ekki eftir
bjálka í auga sínu, svo þetta ætti
ekki að vera alvarlegt.
LOKKANDI
AUGNARÁÐ
Linsur geta líka verið
skartgripir.
Listrænn stjórnandi og stílisti næsta innsetningarverkefnis Cedar Lake, Edda Guðmundsdóttir, var stödd á
RFF ásamt tískuljósmyndaranum Erez
Sabag en hann sér um að mynda dans-
flokkinn og búa til myndbönd. Hún hafði
samband við mig og óskaði eftir að
kaupa flíkur úr nýju línunni minni,“ segir
Hildur Yeoman fatahönnuður, sem fer í
dag út til New York í þriggja vikna hönn-
unarvinnu með Cedar Lake- ballettinum.
„Þau báðu mig um að aðstoða við upp-
setningu verksins, vinna að frekari fatn-
aði fyrir dansarana og að innsetningunni
sjálfri,“ segir Hildur. „ Sýningin mín á RFF
heillaði þau og eflaust hefur það spilað
inn í að ég er að vinna eftir svipuðum
formerkjum og þau. Ég hugsaði tísku-
sýninguna mína á RFF í ár eins og
„ happening“ þar sem listformin döðruðu
hvert við annað og blandaði saman
ýmsum miðlum svo sem dansi, söng,
sviðsmynd og tísku, með hjálp frábærra
listamanna eins og danshöfundinum
Siggu Soffíu, tónlistarmanninum Daníel
Ágústi og annarra.“
Cedar Lake-ballettinn var stofnaður
árið 2003 og þykir einn áhugaverðasti
dansflokkurinn í New York og víðar að
sögn Hildar og því um spennandi tæki-
færi að ræða fyrir ungan fatahönnuð.
„Þau eru þekkt um allan heim fyrir
fara óhefðbundnar og spennandi leiðir í
listsköpun sinni. Þau hafa meðal annars
sett upp dansinnsetningar með dans-
höfundinum Benoit-Swan Pouffer þar
sem listformum er blandað saman og
áhorfandinn getur tekið virkan þátt í
sýningunni. Þetta er afar spennandi
tækifæri fyrir mig. Ég er einnig að fara í
fyrsta sinn til New York, svo ég er mjög
spennt.“ ■ heida@365.is
HANNAR FYRIR
CEDAR LAKE
SPENNANDI TÆKIFÆRI Hildur Yeoman fatahönnuður er á leiðinni til New
York til að hanna fatnað á einn flottasta dansflokk borgarinnar.
SÖNGUR, DANS OG
TÍSKA Hildur setti upp
óhefðbundna tískusýn-
ingu á RFF.
MYND/HILDUR YEOMAN
SPENNANDI TÆKI-
FÆRI Hildur Yeoman fer
út til New York í dag til
að vinna með frægum
dansflokki. MYND/STEFÁN
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber
hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn
í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
Verð í tveggja manna herbergi.
kr. 95.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel, fararstjórn
og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Upplýsingar í síma 588 8900
Riga
Lettlandi
Stórfengleg borg
Beint flug frá Keflavík og Egilsstöðum
25. - 28. okt.
Tallinn er á minjaskrá Unesco. Miðaldastemning í Tallinn er engu öðru lík.
Hallir - kastalar - dómkirkjur - klaustur - borgarturnar og stórfenglegur
arkitektúr frá fyrri tíð.
Má nefna torgið í gamla bænum, St Olav´s kirkju, St. Catherine götu,
Maiden turninn, Toompea kastalann, Saint Mary dómkirkjuna og ráðhúsið.
Hagstætt er að versla, en í Tallinn finnurðu flest það nýjasta sem
á boðstólnum er. Þá er einkar hagstætt að fara út að borða.
Sjáum um veislur og aðra mannfagnaði fyrir fyrirtæki og hópa
í miðalda stíl. Spennandi skoðunarferðir innan borgar sem utan í boði.
Verð á mann í tveggja manna herbergi.
kr. 94.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel, fararstjórn
og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Tallinn
Beint flug frá Keflavík og Akureyri
18. - 21. okt.
Ein allra fallegasta
borg Evrópu
Miðaldaborg frá 11. öld, ein sú best varðveittasta
í Evrópu. Farðu aftur í tíma og rúmi og stígðu inn í heim miðalda.
Glæsileg borg
dæmi um merki sem eru í búðinni
2biz- Desiqual-SkunkFunk-Creme-VETO-B-Young-og fleiri góð
Framlengjum
sumarsprengjunni til 17. júní
Basicplus Háholti 13-15, við hlið Krónunar í Mos / Opið: mán-fös 12-18 og laug 12-15
Save the Children á Íslandi
■ Allir hafa séð tölur á jakkaermum en fáir vita að það var Napó-
leon Bonaparte sem kom með þá hugmyndina.
■ Barnafatatíska er orðin jafn mikilvæg nú og tíska fullorðinna en
það eru ekki nema um 200 ár síðan byrjað var að gera sérstök
barnaföt. Áður voru börn í litlum fullorðinsfötum.
■ Þar til á nítjándu öld voru engar fyrirsætur notaðar. Fyrir þann
tíma þurftu hönnuðir að nota litlar dúkkur til að sýna viðskipta-
vinum hönnun sína.
■ Konur í dag geta margar hverjar ekki lifað án skartgripa. Það voru
hins vegar karlmenn sem notuðu skartgripi fyrstir.
LEYNDARMÁL TÍSKUNNAR
Tískuheimurinn býr yfir fullt af leyndarmálum. Sum
eru fyndin, önnur eru áhugaverð. Hér eru nokkur.