Fréttablaðið - 07.06.2012, Side 46

Fréttablaðið - 07.06.2012, Side 46
7. júní 2012 FIMMTUDAGUR38 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: TÓNLISTINN Vikuna 31. maí - 06. júní 2012 LAGALISTINN Vikuna 31. maí - 06. júní 2012 Sæti Flytjandi Lag 1 Loreen ..................................................................Euphoria 2 KK ................................................................................ Frelsið 3 Jason Mraz .............................................. I Won’t Give Up 4 Tilbury ................................................................Tenderloin 5 Valdimar ............................................................ Þú ert mín 6 Carly Rae Jepsen ...................................Call Me Maybe 7 Train ........................................................................Drive By 8 The Black Keys ............................. Gold On The Ceiling 9 Maroon 5 / Wiz Khalifa .................................Payphone 10 Magnús Þór / Jónas Sigurðsson ..................................... ..............................................Ef ég gæti hugsana minna Sæti Flytjandi Plata 1 Sigur Rós ...................................................................Valtari 2 Ýmsir .................Eurovision Song Contest 2012: Baku 3 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal 4 Ýmsir ................................................................ Pottþétt 57 5 Bubbi Morthens......................................................Þorpið 6 Mugison ....................................................................Haglél 7 Ýmsir .........................Gleðibankinn: 25 ár í Eurovision 8 Gus Gus ......................................................Arabian Horse 9 Ýmsir .........................Hot Spring: Landamannalaugar 10 Bryan Ferry ......................................Best Of Bryan Ferry Síðasta laugardagskvöld voru Listahátíðartónleikar Hljómskálans í Eldborgarsal Hörpu. Þeir tókust vel og tónleikagestir gengu sáttur út úr glæsilegum salarkynnunum. Eftir það lá leið mín á tónleika sem voru haldnir á allt öðruvísi stað. Í kjallaranum á Ellefunni við Hverfis- götu voru Langi Seli og Skuggarnir að spila. Þar var stappfullt þegar ég kom á staðinn og þessir fimmtíu sem stóðu þar flestir í kös fyrir framan sviðið voru í miklu stuði. Hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir var stofnuð á rústum hinnar goðsagnarkenndu „kill‘embilly“-sveitar Oxzmá árið 1987. Hljómsveitin gerði tvær EP-plötur og eina stóra plötu áður en hún lagði upp laupana sjö árum seinna. Hún var endurvakin með nokkuð breyttri mannaskip- an og árið 2009 gaf hún út plötu númer tvö, Drullukalt. Ágætis plata að mestu leyti í svipuðum stíl og fyrri platan. Í dag er hljómsveitin fjögurra manna; sem fyrr skipuð þeim Langa Sela (gítar og söngur) og Jóni Skugga (bassi). Erik Qvick spilar svo á trommurnar og Þorgils Björgvinsson („Gilsi gítar“) á gítar. Tónleik- arnir á Ellefunni voru haldnir í tilefni af 25 ára afmæli hljómsveitar- innar. Eins og áður segir var mikil stemning. Hljómsveitin var drulluþétt og gleðin og töffaraskapurinn skein úr andlitum hljómsveitarmeð- lima. Mér er til efs að bandið hafi nokkurn tíma verið betra. Langi Seli spilar uppfærða útgáfu af rokkabillítónlist sjötta áratugarins. Hljóm- burðurinn í kjallaranum á Bar 11 var fínn og tónlistin virkaði jafn vel og hún gerði hjá Langa Sela fyrir aldarfjórðungi, nú eða hjá rokkabillí- frumkvöðlunum nokkrum áratugum fyrr. Þetta var klassísk stund þarna í kjallaranum og helst að manni væri kippt inn í nútímann þegar sveitin spilaði ofursmellinn Breiðholtsbúgí og myndavélasímarnir fóru á loft … Hafa engu gleymt ALDREI BETRI Langi Seli og Skuggarnir voru drulluþéttir á afmælistónleikunum á laugardagskvöldið. > PLATA VIKUNNAR Asonat - Love in Times of Repetition ★★★★★ „Jónas Ruxpin og Fannar úr Plastic Joy með nýja rafpopp- sveit.“ - TJ > Í SPILARANUM Hot Chip - In Our Heads Joe Dubius - Rainy Day In The Park Patti Smith - Banga Beach Boys - That‘s Why God Made The Radio Taylor Hawkins, trommari Foo Fighters, fer með hlutverk söngvarans Iggy Pop í væntanlegri kvikmynd um tónleikastaðinn fræga CBGB’s í New York. Ráðning Hawkins kemur á óvart enda er hann ekki þekktur fyrir leiklistarhæfi- leika sína en ljóst er að hann hefur útlitið með sér í hlutverkið. Áður hafði verið til- kynnt að Rupert Grint úr Harry Potter- myndunum færi með hlutverk Cheetah Chrome, úr pönksveitinni The Dead Boys, í myndinni sem heitir einfaldlega CBGB og kemur út á næsta ári. Malin Akerman leikur söngkonuna Debbie Harry og Alan Rickman leikur Hilly Kristal, eiganda staðarins. Einnig er búið að ráða í hlutverk Joeys og Johnnys Ramone. Ekki hefur verið ákveðið hverjir leika Patti Smith, David Byrne og fleiri tónlistarmenn sem voru tíðir gestir á þessum sögufræga pönkstað, sem hefur nú verið lokað. Hawkins leikur Iggy Pop Í LEIKLISTINNI Taylor Hawkins úr Foo Fighters leikur Iggy Pop. Hin hressa Hot Chip er mætt aftur til leiks með sína fimmtu plötu. Tólf ár eru síðan skólafélagarnir Alexis Taylor og Joe Godd- ard stofnuðu hljómsveitina. Ensku stuðboltarnir í Hot Chip gefa út sína fimmtu plötu eftir helgi. Hún kallast In Our Heads og er að sjálfsögðu stútfull af hressilegum popplögum með dans- vænum undirtóni. Hot Chip var stofnuð árið 2000 af skólafélögunum Alexis Taylor og Joe Goddard. Skömmu síðar bættust í hópinn þeir Owen Clarke, Felix Martin og Al Doyle. Hljóm- sveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 2004, Coming on Strong, á vegum Moshi Moshi-útgáfunnar. Til að kynna plötuna spilaði Hot Chip á Nasa á Iceland Airwaves við frábærar undirtektir. Nokkrum vikum síðar steig hljómsveitin aftur á svið á Nasa og hafa Hot Chip-liðar talað um að þeir hafi fyrst slegið í gegn í Reykjavík. Hljómsveitin samdi við risann EMI sem gaf út aðra plötu hennar, The Warning, árið 2006. Hún kom Hot Chip á kortið og var tilnefnd til hinna virtu Mercury-verðlauna í Bretlandi. Lögin Over and Over og Boy From School komust bæði á vinsældarlista en hið síðarnefnda var nýverið spilað í The Simpsons, sem er að sjálfsögðu mikill heiður. Tvö ár liðu þar til þriðja platan, Made in the Dark, leit dagsins ljós en í millitíðinni hitaði hljóm- sveitin upp fyrir Björk á tón- leikum í Laugardalshöll. Annað smáskífulagið Ready For the Floor fór í sjötta sæti breska vinsældar- listans og var einnig tilnefnt til Grammy-verðlaunanna. Árið 2010 gaf Hot Chip svo út sína fjórðu plötu, One Life Stand, og fékk hún víðast hvar mjög góða dóma. Einhverjir söknuðu þó alvöru „hittara“ og fannst tón listin full róleg á köflum. Eftir útgáfu hennar voru Hot Chip-liðar dug- legir við að sinna hliðarverkefnum sínum. Taylor starfrækti About Group, Goddard The 2 Bears og þeir Martin og Doyle spiluðu með New Build. Gítar leikarinn Owen Clarke var sá eini sem ákvað að taka því rólega. In Our Heads er fyrsta plata Hot Chip sem kemur út á á vegum Dominos-útgáfunnar. Góðir dómar halda áfram að límast við bandið því tímaritið Mojo gaf plötunni fjórar stjörnur af fimm og Uncut átta af tíu. Hljómsveit- in verður á stífri tónleikaferð um heiminn á næstu mánuðum og hefur verið bókuð fram í október. Á dagskránni er spilamennska á Sonar-hátíðinni í Barcelona, á Bestival í Bretlandi og á tónleika- staðnum fræga Hollywood Bowl, svo eitthvað sé nefnt. freyr@frettabladid.is Mættir aftur á dansgólfið Á TÓNLEIKUM Al Doyle (til vinstri) og Alexis Taylor á tónleikum með hljómsveit sinni Hot Chip. NORDICPHOTOS/GETTY b ó k a b ú ð f o r l a g s i n s

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.