Fréttablaðið - 23.06.2012, Síða 27
MINNI ÁTÖK
„Átök í stjórn-
málum eru óum-
flýjanleg en þau
eiga ekki að vera
allsráðandi. Það
tekur hins vegar
tíma að breyta
pólitískum kúltúr á
Íslandi.“
BLÓM Í BÆ
Sýningin Blóm í bæ stendur yfir í Hveragerði um
helgina. Þemað er sirkus og munu skreytingar í
bænum taka mið af því. Alls konar kynjaverur lifna
við í blómum og myndum og litagleðin tekur öll völd.
Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin.
Í SUMARSKAPI
Á æskuárunum fór Sig-
ríður Ingibjörg í árvissar
tjaldútilegur í Þjórsárdal
með foreldrum sínum.
Í fyrra endurvakti hún
útilegudraum fjölskyld-
unnar og í sumar
stendur til að gera víð-
reist með tjaldið.
MYND/GVA
Ætli ég taki því ekki rólega með börnunum í dag, fari í sund og í heimsókn til mömmu til að
athuga hvort einhver muni enn eftir mér á
þeim slóðum,“ segir Sigríður Ingibjörg og
skellir upp úr. Hún á loks rýmri tíma fyrir
sig og sína eftir að þingi var slitið í vikunni.
„Jú, víst voru þingmenn orðnir
langeygðir eftir sumarfríi. Langar tarnir
undir lok þinghalds reyna mjög á. Alþingi
minnir mig stundum á flugstöð þar sem
tíminn verður afstæður og það sem úti er
hættir að skipta máli. Lífið snýst nefnilega
um fleira en það sem gerist á Alþingi og ég
þeirrar skoðunar að þingmenn hafi alltof
lítinn tíma til að lesa, hugsa og hitta fólk.“
Sigríður Ingibjörg er þó ekki komin í
óskipt sumarfrí fyrr en um miðjan júlí því
á morgun fer hún á fund í velferðarnefnd
Norðurlandaráðs í Brussel. Þar á eftir taka
við störf tengd fjárlaganefnd og fundir með
kjósendum, sem setið hafa á hakanum.
„Þingstarfið er annasamt og þótt
maður sé kominn heim dvelur hugurinn
oft áfram við vinnuna. Ég spyr stundum
sjálfa mig hvort ég sé tilbúin að fórna svo
miklum tíma frá börnunum sem eru á mis-
jöfnum aldri og með misjafnar þarfir. Að
vera þingmaður er þó svipað því að vera
kennari; stundum er álagið mikið en svo
nýtur maður þess inn á milli að hafa meiri
yfirráð yfir tíma sínum.“
Sigríður Ingibjörg á fjögur börn, eitt
uppkomið og þrjú á grunnskólaaldri með
eiginmanni sínum, Birgi Hermannssyni
háskólakennara. „Velgengni mín í starfi og
gott heimilislíf byggja á því að eiga góðan
maka sem stendur með mér og stendur
vaktina heima,“ segir hún og brosir.
„Ég tek hlutverk mitt alvarlega og þykir
forréttindi að vera kjörin til að hafa áhrif
á landsmálin. Það er ákaflega skemmtilegt
að vera þingmaður en starfsháttum Al-
þingis þarf að breyta. Átök í stjórn málum
eru óumflýjanleg en eiga ekki að vera alls-
ráðandi og mér finnst að við gætum oft
verið skynsamari. Það tekur hins vegar
tíma að breyta pólitískum kúltúr.“
Þingið kemur aftur saman 11. sept-
ember og nefndafundir hefjast í ágúst.
„Ég ætla að njóta sumarsins í Reykjavík
en líka að fara í útilegur með fjölskyldunni.
Vestfirðir eru á dagskránni ef veðurspáin
er góð. Það er alltaf lærdómsríkt að skoða
landið sitt og átta sig betur á aðstæðum
þeirra sem ekki búa á höfuðborgar-
svæðinu.“
Í kvöld er Sigríði Ingibjörgu boðið í
stórafmæli og í gær fór hún í árlegt grill
kvenna sem áður voru í Kvennalistanum.
„Svo mæti ég að sjálfsögðu í Druslu-
gönguna í dag, en hvort ég klæði mig sér-
staklega druslulega til fararinnar á eftir að
koma í ljós.“ ■ thordis@365.is
HEPPIN MEÐ MAKA
LANGÞRÁÐ SUMARFRÍ Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður, ætlar að sofa
í tjaldi í sumarfríinu, busla í sundlaugum og njóta lífsins með sínum nánustu.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
FIMM ÚTVARPS-
STÖÐVAR Í BEINNI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag