Fréttablaðið - 23.06.2012, Page 58
23. júní 2012 LAUGARDAGUR30
Krossgáta
Lárétt
3. Karlmaður úti á rúmsjó (10)
9. Tvísöngur um rafljós (6)
11. Losaðir þig við drauma um víðáttur (13)
12. Hef borið fram beiðni um takmarkalaust (8)
13. Afrísk túristakerra gefur vökvamiklar (9)
14. Þvinga drullu með bókstafsþýðingu á
amerísku kjaftæði (8)
15. Herra reiðir og ringlaðir vilja að þú
komir þér fyrir (8)
17. Eignast einhverslags manneskjur
í strjálbýli (7)
18. Ég skil alin, segir sá fúli ruglaður (8)
19. Hér er ekki lengur öryggi (3)
21. Merki um brúsk veldur vonbrigðum (7)
22. Púlaði kolvitlaus og horuð (7)
23. Beygð hefur basa (4)
24. Dúks dunkur vísar á fögur fley (10)
25. Fabúla er fjarri sanni (8)
27. Geng galvösk til báta og blaða (4)
28. Læt sykurlíkið fyrir platfríðan (10)
30. Röng grön verður þarmur (4)
32. Utan æðir vopnuð sveit (11)
33. Ristar stekk og dilka (9)
34. Líttu nú, skjólsvæði fyrir fiskiþorp (11)
35. Andasnotur, andlitsnett (8)
36. Kynslóðabil er aldarþriðjungur en
samt heil ævi? (10)
Lóðrétt
1. Svipað álit á krufningu (9)
2. Að mæta er það sem bíður á
áfangastað (6)
3. Leikfangahempur eru dótadress (11)
4. Drápudráttur stuðlar (10)
5. Snýst tré og matarmikil kótiletta (10)
6. Flakkar fjöldi þeirra sem nýrri eru (8)
7. Elduðu einkenni við
hundrað gráður (8)
8. Fluttu skeifur og héldu fjötrum utan á
gömlum húsum (8)
10. Fjölda bindur útgerðaraðall (9)
15. Er dálkaljósið beittasti sirkúslistamaður-
inn? (14)
16. Keyrði ekki hingað heldur einhvert sem
enginn hefur farið (7)
18. Býst við blaðri samkvæmt aldri (8)
19. Passa upp á pilluna og
vinnuplanið (12)
20. Ólguílát fyrir knippi eða tuggur (7)
21. Vinning þekktum hjá kokhraustum (11)
23. Tími sorgar og sigra (8)
24. Tannhvöss þynna sneiðir snepil (9)
26. Ryk vælir vegna hvítrar (8)
29. Elskar fisk samkvæmt árbók (6)
31. Athugasemdir við reikninga (5)
34. Sérlega meitlaður samskiptamáti (3)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist
eitthvað yfirnáttúrulegt. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 27. júní
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „23. júní“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið er úr
innsendum lausnarorðum
og fær vinningshafi eintak
bókinni Dauði næturgalans frá
Forlaginu. Vinningshafi síðustu
viku var Þórhanna Guð-
mundsdóttir, Kópavogi og
getur hún vitjað vinningsins í
afgreiðslu 365, Skaftahlíð 24.
S A M F E S T I N G U R
1 2 3 4 5 6 7 8
9 10
11
12
13
14
15
16 17
18 19 20
21
22 23
24
25 26 27
28
29 30 31
32
33
34
35 36
H O L D A F A R K L E T T A S A L A T
J E Á Ó A R R Á E Ö
Á T A K A F Æ L I N T R Ú A R Þ R E F
L K E F E I A F K F
P J N Æ X L U N A R F Æ R I A
A F L A N G A R T G B T T R
R V I I E U A S T O R I A
S Í F E L L D R A R N R É R
V R E U T A N G Á T T A K
E I N K A G E I R A I T F A
I S N K M S T Ó Ð M E R I
T Ó M T H Ú S M A Ð U R U y M
U Æ K M N F S N A
N A U Ð U G U B Ú D R Ý G I N D I V
U I S U L L Ð A Í
M A G N T Ö L U R A U L Ð G
Ú R E S U K K V E I S L U R
H O R M O T T A N G A Y E E
K G T Ó A L S Y S T K I N I
S V A R A M A N N I T I Ð F
Á þessum degi fyrir réttum 49 árum komst fyrsta lagið sem samið var af hinum geysivinsælu Bítlum John Lennon og Paul McCart-
ney (lög sem þeir, eða annar hvor þeirra félaga, sömdu voru ávallt
merkt Lennon/McCartney) inn á bandaríska vinsældalistann Billbo-
ard Hot 100. Um var að ræða útgáfu Bandaríkjamannsins Del Shan-
non á Bítlalaginu From Me To You, sem kom út á smáskífu í Englandi
í apríl og í Bandaríkjunum í maí sama ár. Lagið vermdi botnsæti
listans fyrstu vikuna en hífði sig upp í 77. sæti á fjórum vikum.
Del Shannon ólst upp við sveitatónlist í Michigan og hóf tónlistar-
iðkun fyrir alvöru þegar hann gegndi herþjónustu í Þýskalandi
um miðjan 6. áratug síðustu aldar. Shannon sló í gegn með laginu
Runaway (í hverju hátóna rödd söngvarans vakti athygli, ekki síður
en býsna óvenjulegt orgelsóló) og gerði fleiri lög vinsæl á næstu
árum eins og Little Town Flirt og Hats Off to Larry. Árið 1963 höfðu
vinsældir Shannons örlítið dvínað í Bandaríkjunum en hann var þó
gríðarlega vinsæll hinum megin Atlantsála, í Bretlandi.
Þar var Shannon einmitt staddur í apríl 1963 og kom fram á tón-
leikunum Swinging Sound ’63 í Royal Albert Hall í London ásamt
téðum Bítlum. Eftir tónleikana sagði Shannon John Lennon að hann
hygðist hljóðrita From Me To You. „Á þessum tíma hafði enginn
heyrt um Bítlana í Bandaríkjunum, en ég vissi að þeir voru frábærir
lagahöfundar og valdi bara eitt laganna þeirra til að hljóðrita,“ sagði
Shannon síðar. Lennon mun hafa verið upp með sér í fyrstu, en fljót-
lega skipt um skoðun og óttast að Shannon gæti skaðað möguleika
Bítlanna á að slá í gegn í Bandaríkjunum. Lennon hefði ekki þurft að
óttast, því með tíð og tíma komu Bítlarnir alls tuttugu smáskífum á
toppinn í Bandaríkjunum.
Sjálfur barðist Del Shannon lengi við þunglyndi og framdi sjálfs-
morð á heimili sínu í Kaliforníu árið 1990. - kg
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1963
Fyrsta Lennon/McCartney-lagið
á toppinn í Bandaríkjunum
Del Shannon kom Bítlalagi á toppinn á Billboard-listanum áður en fjór-
menningunum frá Liverpool tókst það.
reddot design
winner 2011