Fréttablaðið - 14.07.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.07.2012, Blaðsíða 12
14. júlí 2012 LAUGARDAGUR12 Ég var kannski ekkert sér- staklega duglegur við að æfa mig í klassíkinni til að byrja með, maður var meira að pæla í Nirvana- lögum og reyna að pikka þau upp. Tónlistin tók yfir fyrir tilviljun Lögin Sumargestur og Leyndarmál hafa ómað í eyrum Íslendinga í sumar. Það er tvítugur tónlistarmaður sem á heiðurinn af þeim, Ásgeir Trausti Einarsson. Hann sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá því hvernig skipuleg áætlun um að sópa til sín Ís- landsmeistaratitlum í kraftlyftingum fuðraði upp eftir að hann var hvattur til dáða á tónlistarsviðinu. ÁSGEIR TRAUSTI Lærði á klassískan gítar frá sjö ára aldri og fannst hann alveg glataður til að byrja með. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI L andsmenn kynntust Ásgeiri Trausta Einarssyni í vetur þegar hann söng sig ljúf- lega inn í hug og hjörtu þeirra í Hljómskálanum. Þar mætti hann og söng lag sitt Sumargestur sem í framhaldinu naut vinsælda. Það var ekkert sérlega stressandi, fannst Ásgeiri, að syngja í einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins. „Nei, það var ekkert sérstak- lega erfitt, ég er ekki óvanur að koma fram og þarna sátum við bara og spil- uðum auk þess sem ég þurfti nokkuð að einbeita mér að því að muna textann, hann var svo nýr.“ Innilokunarkennd í bænum Ásgeir Trausti er tvítugur tónlistar- maður, nýstúdent og mikill áhugamað- ur um íþróttir. Hann er alinn upp á Laugarbakka í Húnaþingi, skammt frá Hvammstanga, af foreldrum sínum þeim Einari Georg Einarssyni kennara og Pálínu Fanney Skúladóttur kennara og organista ásamt systur sinni Berg- þóru, sem er tveimur árum eldri en hann. Þess má geta að Ásgeir á fjögur hálfsystkin en einn bræðra hans er Þor- steinn Einarsson í Hjálmum, sem ein- mitt spilaði með honum í áðurnefndri Hljómskálaupptöku. Ásgeir kunni vel við uppvöxtinn á landsbyggðinni en áður en fjölskyldan kom sér fyrir á Laugarbakka hafði hún búið í Hrísey, á Húsavík, í Garðinum og á Reykjum í Hrútafirði. „Fyrst þegar ég flutti í bæinn þá fílaði ég mig ekki hér, fékk eiginlega innilokunarkennd. Ég fór líka um hverja helgi heim. En svo eftir að ég var búinn að vera hér í þrjú ár fór mér að finnast ágætt í Reykjavík. Það var svolítið erfitt að koma sér inn í þetta borgarlíf og stress,“ segir Ásgeir sem lauk í vor stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskólanum við Ármúla. Lá í Nirvana Tónlist og íþróttir léku stórt hlutverk í uppvexti Ásgeirs Trausta. Hann hóf að læra á gítar sjö ára gamall og íþrótta- iðkun hófst um sama leyti. „Ég fór að læra á klassískan gítar og fannst hann alveg glataður satt best að segja. En eftir því sem árin liðu fór maður að sætta sig við þetta og sjá að það var kannski eitthvað vit í þessu gítarnámi. Ég var kannski ekkert sérstaklega dug- legur við að æfa mig í klassíkinni til að byrja með, maður var meira að pæla í Nirvanalögum og reyna að pikka þau upp. Kurt Cobain var goðið. Ég fékk Nirvana alveg á heilann sjö ára gam- all. Ég og vinur minn vorum alltaf að hlusta á þá og metast um hvor okkar vissi meira um hljómsveitina.“ Foreldrar Ásgeirs leika bæði á hljóð- færi. Móðir hans er organisti og faðir hans leikur á harmoniku og tónlistar- legu uppeldi var vel sinnt. „Þau vildu halda mér við efnið í gítarleiknum, síð- ustu árin í grunnskóla sótti ég einka- tíma til Páls Eyjólfssonar í Reykjavík. Þá var bara ekið þangað á hálfsmánað- arfresti,“ segir Ásgeir sem lauk loka- prófi í gítarleik fyrir ári síðan, þrátt fyrir að hafa ætlað að hætta eftir fjórða stig. „Ég hugsaði alltaf „ég hætti eftir næsta stig“ en svo var ég allt í einu kominn með það sjötta og þá gat maður ekki annað en klárað.“ Lokatónleikarnir voru haldnir á Hvammstanga en Ásgeir Trausti held- ur mikilli tryggð við sína heimabyggð, var að vinna með skólanum í vetur við tónlistarkennslu og kenndi á hin ýmsu hljóðfæri, gítar auðvitað en líka bassa og trommur. „Ég vonast til þess að geta haldið því áfram næsta vetur, það væri mjög fínt með tónlistinni,“ segir Ásgeir sem hefur í nógu að snúast í tengslum við tónlist sína um þessar mundir. „Ég er bæði mikið að spila með hljómsveitinni sem ég er í, The Lovely Lion, og svo er ég líka að koma fram með mitt efni. En ég á eftir að gera meira af því þegar platan Dýrð í dauðaþögn kemur út í ágúst.“ The Lovely Lion tók þátt í Mús- íktilraunum í vetur og að sögn Ásgeirs er stefnt á plötuútgáfu á næsta ári. Ætlaði í kraftlyftingar Þetta hljómar allt svolítið eins og Ásgeir hafi þaulskipulagt innrás sína í íslenskt tónlistarlíf en því fer fjarri. Raunar var annað á dagskrá hjá Ásgeiri Trausta í ársbyrjun, hann hugðist nefnilega taka upp þráðinn í keppnis- íþróttum. „Ég var byrjaður í kraftlyft- ingum á fullu. Ég er reyndar búinn að vera með lyftingar á heilanum í nokkur ár og ætlaði mér að keppa í kraftlyft- ingum nú í vor. Ég æfði á hverjum degi og hafði sett mér það markmið að slá Íslandsmet en svo fór tónlistin af stað á fullu og þá gafst ekki lengur tími fyrir lyftingarnar.“ Íþróttir hafa lengi skipað stóran sess hjá Ásgeiri sem var mjög efnilegur spjótkastari og á reyndar enn Íslands- met í flokki 14 ára unglinga, 63,38 metra. „Ég æfði frjálsar frá sjö ára aldri og reyndar körfubolta líka. Körfu- boltinn vék fyrst og svo fór að ég ein- beitti ég mér að spjótkastinu, á tímabili langaði mig meira til þess að leggja það fyrir mig en tónlist. En um leið og ég fór að verða góður og slá Íslandsmet þá fór ég líka að meiðast út af ofþjálfun, þetta var raunar mikil meiðslasaga.“ En eitt vetrarkvöld kom góðvinur Ásgeirs í heimsókn, Guðmundur Hólm- ar Jónsson. Ásgeir spilaði fyrir hann nokkur lög sem féllu í góðan jarðveg og úr varð að hann hringdi í Kidda í Hjálmum að áeggjan Guðmundar. „Ég er alltaf að semja, og hef verið að semja lög síðan ég var lítill. Svo gleymi ég þeim oft um leið. En þarna seint um kvöld hringdi ég sem sagt í Kidda og hann sagði mér bara að koma í heim- sókn daginn eftir. Í framhaldinu tókum við upp Sumargest og ég fór í Hljóm- skálann.“ Auk Sumargests hefur lagið Leynd- armál með Ásgeiri Trausta verið sett í spilun útvarpsstöðvanna við góðar und- irtektir. Bæði lögin verða á áðurnefndri breiðskífu Ásgeirs. Þess má geta að textar laganna beggja eru eftir föður Ásgeirs. „Pabbi hefur svo gaman af því að semja og hann hristir textana fram úr erminni,“ segir Ásgeir sem segir foreldra sína fylgjast vel með því sem hann er að gera og hvetja hann óspart áfram. Spurður hvort hann geti lýst vænt- anlegri plötu segir Ásgeir hana vera afar fjölbreytilega: „Það eru þarna lög sem svipar til Sumargests, önnur eru elektróskotin, það eru bæði áhrif frá kántrí og sálartónlist.“ Ásgeir segist sjálfur alæta á tónlist. „Ég hef reynd- ar mikið hlustað á James Blake og Bon Iver undanfarið, hef reyndar verið með mikið æði fyrir honum,“ segir hann að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.