Fréttablaðið - 14.07.2012, Blaðsíða 22
14. júlí 2012 LAUGARDAGUR22
Á þessum degi fyrir réttu 131 ári, hinn 14. júlí árið 1881, féll
vígamaðurinn William H. Bonney,
betur þekktur sem Billy the Kid
(eða Billi barnungi fyrir lesendum
bókanna um Lukku-Láka).
Billy fæddist í New York borg,
einhvern tíma í kringum 1860.
Hann hafði þrátt fyrir ungan aldur
getið sér orð sem einn kaldrifjaðasti
byssumaður í villta vestrinu.
Fyrsti maðurinn sem féll fyrir
hendi hans var járnsmiður nokkur
sem úthúðaði piltinum á krá.
Vígaferill Billys hófst fyrir alvöru
ári síðar, árið 1878 þegar hann og
félagar hans stóðu fyrir morðinu á
lögreglustjóra nokkrum sem Billy
taldi að hefði staðið fyrir morðinu
á John Tunstall, vinnuveitanda og
vini Billys. Sögur herma að Billy
hafi þá þegar haft sautján líf á sam-
viskunni, einungis 18 ára gamall.
Það er þó nokkrum vafa undirorpið
og líklegra talið að hann hafi á ferli
sínum drepið níu menn.
Eftir að hafa verið á flótta um
nokkurra mánaða skeið gaf Billy
sig fram við lögreglu, en ríkisstjóri
hafði áður gefið í skyn að honum
yrði hlíft við dauðadómi.
Þegar Billy varð síðar ljóst að
ríkis stjórinn ætlaði ekki að standa
við það, flúði hann úr prísundinni.
Lögreglustjórinn Pat Garrett
stýrði umfangsmikilli leit þar sem
Billy og klíka hans voru á endanum
umkringdir og gáfust upp. Billy var
dæmdur til dauða og við uppkvaðn-
inguna sagði dómarinn að hann yrði
hengdur þar til hann væri „dauður,
dauður, dauður!“ Billy svaraði því
til að dómarinn mætti sjálfur „fara
til helvítis, helvítis, helvítis“.
Tveimur vikum áður en aftakan
átti að fara fram, flúði Billy á ný og
drap tvo fangaverði á flóttanum.
Garrett fór aftur á stúfana og
þremur mánuðum síðar hafði hann
uppi á Billy, sem var í felum hjá
vinafólki. Garrett komst inn í vist-
arverur Billys og beið þar í myrkr-
inu. Flóttamaðurinn var grandalaus
þegar hann gekk síðar inn í herberg-
ið og Garrett skaut hann til bana um
leið. Garrett var ekki kærður fyrir
drápið enda var Billy útlagi.
Goðsögn Billys hefur lifað góðu
lífi frá dauða hans, ekki síst þar sem
Garrett sjálfur ritaði ævisögu hans.
Skemmtilegar útfærslur hafa þó
gengið um afdrif Billys og hermir
ein þeirra að Billy og Garrett hafi
verið vinir. Vel þekkt kvikmynd var
gerð um þeirra samband þar sem
tónlist Bobs Dylan var í einu aðal-
hlutverkanna. Önnur saga segir að
Billy hafi alls ekki verið drepinn
heldur hafi hann lifað undir öðru
nafni til ársins 1950.
- þj
Heimildir: History.com,
Britannica.com og Vísindavefur HÍ
ÚTLAGINN Billy the Kid var skotinn til
bana fyrir 131 ári.
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1881
„Billy the Kid“ veginn á æsileg-
um flótta undan réttvísinni
Pat Garrett skaut útlagann annálaða William H. Bonney, Billy the Kid, sem
var á flótta undan réttvísinni eftir fjölda manndrápa í Villta vestrinu.
Krossgáta
Lárétt
1. Ógnum með kyrrviðri og kossum (10)
6. Þeir óðu eru frjálsir en svívirðilegir (9)
10. Grefst fyrir um hluta björgunarsveita (12)
11. Ræð við róleg, enda framsýn (7)
13. Fljót verður og vex (7)
14. Úrvalsklíkan tryggir framboðsréttinn (10)
15. Stúkulappar vilja stilltar stúlkur (10)
17. Iðnu nemarnir lesa um belju,
háaloft og annir (11)
20. Gums og guðfaðir gefa gin eða
kjaftforan sjónvarpskokk (6)
21. Rífleg renna í dansinn (7)
24. Tón temur, eru það börn? (6)
27. Meyjamerki boðar kynlegt hátterni karla (9)
29. Hraðfæðing og læti (6)
30. Málsháttur er talsmáti og tölugerð (8)
31. Kynfruma og rok mynda beitt orð (9)
33. Brunaklukka er svaka súr (6)
36. Marri kaus áverka (8)
38. Reyklaus fær óveðursleyfi (8)
39. Sé skussa leita raufa (6)
40. Sá natni öðlast leikni (8)
41. Leysir úr flækju borgar (7)
43. Á þessum bæ er gröf við gröf (6)
44. Dásömuð kom að er þess var óskað (8)
45. Miðlungshreyfing er lausnin (7)
46. Æla svona tertu sannar komu geimvera (6)
Lóðrétt
1. Dans og tafl boða kúlur og kjuða (8)
2. Guð lími för með fallegum (10)
3. Lið dreifbýlisins verst árás
stríðsflokkanna (12)
4. Andlegur leiðtogi Makka og Pésa (9)
5. Kyrrð hjá frekri og latri (8)
6. Vaða bein með nál í æð (7)
7. Þjáðumst sem börn með flokksæsku (8)
8. Hoppi grúppa yfir reipi (9)
9. Vélar fyrir stormker (6)
12. Nefni dráttinn séra doktor magister (10)
16. Er pláneta sár eða áll milli
lands og eyja? (9)
18. Þúfa geymir safn í Örlygshöfn (7)
19. Sníkillinn snertir ótal lög (12)
22. Fiskveiðibransi drepur að innan (7)
23. Má nefna forboðnu frídagana tabúið? (11)
25. Mánaðarveigar fyrir hvali og nagdýr (7)
26. Gæsi með guðs hjálp (4)
28. Festa og fjarlægja (4)
29. Ruglað mengi kóra og lygara (9)
32. Mjaka viðbiti segir sá ofurþykki (7)
34. Fyrst spark, glefsa svo í þann sem tefur (7)
35. Geri varg tímans úr mýflugu (7)
37. Kassi ber ávexti kryddviðar (6)
38. Beygjum með beygjum (5)
42. Ölduskafl er þrep og sveifla (3)
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist niðrandi
orð um kærkomna sumargesti. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 18. júlí
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „14. júlí“.
Lausnarorð síðustu viku var
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Dauðadjúp frá Forlaginu.
Vinningshafi síðustu viku var
Hanna Lilja Guðleifsdóttir,
Reykjavík, og getur hún
vitjað vinningsins í afgreiðslu
365, Skaftahlíð 24.
H E I M A K L E T T U R
1 2 3 4 5 6 7 8 9
10 11 12
13
14
15 16
17 18
19 20
21 22 23 24
25 26
27 28 29
30
31 32 33 34 35
36 37
38 39
40
41 42 43
44
45 46
F L Ó R S Y K U R Ó L Ö A G
E L E O Æ R S L A D R A U G U R
N Á S T S Æ T V Ð I
G Ö T U S T R Á K A R Í S A F J Ö R Ð
I A U O T Ð N N Ö A
T G N S V I T A B A N D F S
Í R A B A K K I E L I Ð U R Ó T
M R U I N N I L E G A R A
A U Ð É T I N N K I l E S P I Ð
U N U N N U K L Æ Ð I L U
S É R G Ó Ð A N I J t T Ó R
V F n N U X A H R Y G G I
E I N H Y R N I N G A R U F N
I O N Ý A N E M A N D A N N
T Á R A D A L U R A A R
A Ð I I Á K Æ R U R É T T I N N
B R U N N I Ð S T Ö Í
A R I U N G V E R J A L A N D
L J Á B R Ý N I Ð Ö U D
L L N U M F E R Ð A R R Á Ð I
Styrkir frá SORPU/
Góða hirðinum
Ágóði af sölu nytjahluta í Góða hirðinum rennur til góðra
málefna. Styrkirnir eru veittir til líknar- og félagasamtaka
og er markmiðið að styðja fólk til sjálfshjálpar. Verkefnin
geta til dæmis snúist um menntun, endurhæfingu og
sjálfsbjörg og er sérstaklega leitast við að styrkir nýtist
efnaminni börnum og ungmennum.
Nánari upplýsingar eru á vef SORPU, www.sorpa.is.
Umsóknarfrestur fyrir haustúthlutun er til 31.júlí.
FÍ
TO
N
/
SÍ
A