Fréttablaðið - 14.07.2012, Blaðsíða 23
Kynningarblað Öryggiskerfi, sinueldar,
stórbrunar, eldur í fatnaði, sumarhúsum og ferðahýsum.
ELDVARNIR
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2012
&ÖRYGGISBÚNAÐUR
Eldur og reykur eru ein mesta ógn sem getur steðjað að fólki á heimilum þess. Eldur getur
valdið stórtjóni á íbúðum og innan-
stokksmunum og í verstu tilfellun-
um verður fólk fyrir miklu heilsutjóni
og týnir jafnvel lífi. Því er afskaplega
mikilvægt að gera allt sem hægt er til
að minnka líkur á að eldur kvikni. Ef
svo illa vill til að kviknar í er nauð-
synlegt að hafa eldvarnir í lagi. Eld-
varnir miða fyrst og fremst að því að
tryggja líf og heilsu fólks. Í öðru lagi
geta eldvarnir dregið verulega úr
tjóni á eignum.
Eitt mikilvægasta eldvarnartækið
er reykskynjari. „Reykskynjarar eru
lífsnauðsynlegir. Það er margsannað
að þeir eru ódýr lífs- og eignavernd.
Því f leiri reykskynjarar sem eru á
heimilinu því betra,“ segir Ólafur R.
Magnússon, deildarstjóri á forvarn-
arsviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins.
Reykskynjarar þurfa að vera nægj-
anlega margir, rétt staðsettir, vera af
réttri gerð, vera í lagi og hafa góða
rafhlöðu. Á nútímaheimili ætti að
vera einn reykskynjari í hverju her-
bergi. Sérstaklega á þetta við um
barnaherbergi þar sem tölva, sjón-
varp og hljómflutningstæki eru til
staðar. Einnig þarf reykskynjara í
stofuna, við eldhúsið, við þvotta-
húsið, á ganga og í bílskúrinn. Reyk-
skynjarar eiga að vera staðsettir eins
hátt uppi og hægt er vegna þess að
reykur stígur upp. „Það er góð regla
að skipta árlega um rafhlöður í reyk-
skynjurunum og gera það alltaf á
sama tíma, til dæmis 1. desember,“
segir Ólafur.
Gott er að hafa eldvarnateppi og
handslökkvitæki á heimilinu. Þessi
tæki geta komið í veg fyrir stórtjón sé
þeim beitt tímanlega og með réttum
hætti. Slökkvitækið á að vera staðsett
á vegg nærri útgangi og eldvarnatepp-
ið á vegg í eða nærri eldhúsi. Slökkvi-
tæki þarf að yfirfara árlega.
Flóttaleiðir verða að vera fullnægj-
andi og allir íbúar verða að þekkja
þær. „Ekki reikna með að allir viti
hvert þeir eigi að fara og hvernig á að
komast út ef kviknar í. Farið yfir leið-
irnar og æfið flótta,“ segir Ólafur.
Flestir þeir eldar sem kvikna á
heimilum eru út frá rafmagni.
Slökkvið á sjónvarpi, látið ekki
rauða ljósið framan á tækinu
loga. Notið aðeins fjöltengi með
rofa, varist að hlaða of miklu af
rafmagnstækjum á eitt fjöltengi.
Nánari upplýsingar um for-
varnir og notkun eldvarnartækja
má finna á heimasíðu Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins, shs.is.
Eldvarnir eru lífsnauðsynlegar
Reykskynjarar, slökkvitæki og eldvarnarteppi eru allt tæki sem geta komið í veg fyrir stórtjón.