Fréttablaðið - 14.07.2012, Blaðsíða 31
Afgreiðsla í apóteki
Lyfjaver ehf óskar eftir starfsmönnum til afgreiðslu-
starfa í apóteki. Viðkomandi þarf að hafa góða
þjónustulund og hreint sakavottorð.
Lágmarksaldur er 20 ár.
Reynsla af sambærilegum störfum mikill kostur.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á
netfangið alli@lyfjaver.is fyrir 22. júlí n.k.
Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann með flugkennslu
Starfssvið
Starfið felst einkum í að skipuleggja og annast eftirlit með starfsemi flugskóla sem og umsjón með gerð og framkvæmd
bóklegra prófa. Viðkomandi annast samskipti við flugskóla og einstaklinga og leiðbeinir umsækjendum um heimildir í
flugtengdri starfsemi.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Gerð er krafa um bóklegt atvinnuflugmannspróf og kostur ef viðkomandi er eða hefur verið handhafi atvinnuflug-
mannsskírteinis
• Viðeigandi kennslureynsla er kostur sem og háskólanám sem nýtist í starfi
• Hæfileiki til að túlka, útskýra og setja reglugerðarkröfur fram með skýrum hætti
• Skilyrði er að viðkomandi hafi mjög góð tök á íslensku og ensku
• Kostur er að umsækjendur hafi lokið viðurkenndu úttektarnámskeiði og hafi þekkingu á gæðakerfum
• Góð tölvuþekking og skipulagshæfileikar
Við leitum að starfsmanni með góða samstarfshæfileika, þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf
að sýna af sér frumkvæði, sjálfstæði og fagmennsku í starfi, vera skipulagður og agaður í verkum sínum og geta unnið
undir álagi. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur
sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.
Vinsamlegast sendið umsókn og ferilskrá til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir
9. ágúst n.k. merkt „Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns með flugkennslu“.
Nánari upplýsingar veitir Valdís Á. Aðalsteinsdóttir staðgengill framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs
í síma 569 4124 / t-póstur: valdis@caa.is.
Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með rúmlega 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innan-
lands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan.
Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.
Herbergisþerna
Óskum eftir að ráða herbergisþernu í fullt starf.
Æskilegt er að umsækjendur:
• Hafi ríka þjónustulund og góða framkomu
• Séu stundvísir, vandvirkir og hafi metnað
• Tali íslensku og/eða ensku
• Starfsreynsla er kostur
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsækjendur sendi umsókn ásamt ferilskrá og
mynd á lilja@odinsve.is fyrir 20. júlí nk. merkt
starfsumsókn.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Óbyggðanefnd óskar eftir að ráða til starfa framkvæmdastjóra.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt að viðkomandi hefji störf
1. október. Óbyggðanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, skipuð
af forsætisráðherra, sem hefur það hlutverk að skera úr um
eignarréttarlega stöðu lands á grundvelli laga nr. 58/1998.
Starfssvið
• Undirbúningur að úrskurðum óbyggðanefndar
• Stjórnun og umsjón á skrifstofu óbyggðanefndar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
• Reynsla af dómsstörfum æskileg
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipuleg vinnubrögð
• Samstarfshæfni og mjög góð færni í töluðu og rituðu máli
• Hæfileikar til að vinna að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi
starfsumhverfi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Sif Guðjónsdóttir, kl. 9.00-12.00, í síma 563 7000.
Vinsamlegast sendið umsóknir og greinargóðar upplýsingar um
menntun og fyrri störf til „Óbyggðanefnd, Hverfisgötu 4A, 101
Reykjavík“ eða á netfangið postur@obyggdanefnd.is, fyrir 15. ágúst
næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
Óbyggðanefnd
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur