Fréttablaðið - 14.07.2012, Side 31

Fréttablaðið - 14.07.2012, Side 31
Afgreiðsla í apóteki Lyfjaver ehf óskar eftir starfsmönnum til afgreiðslu- starfa í apóteki. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund og hreint sakavottorð. Lágmarksaldur er 20 ár. Reynsla af sambærilegum störfum mikill kostur. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið alli@lyfjaver.is fyrir 22. júlí n.k. Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða eftirlitsmann með flugkennslu Starfssvið Starfið felst einkum í að skipuleggja og annast eftirlit með starfsemi flugskóla sem og umsjón með gerð og framkvæmd bóklegra prófa. Viðkomandi annast samskipti við flugskóla og einstaklinga og leiðbeinir umsækjendum um heimildir í flugtengdri starfsemi. Menntunar- og hæfnikröfur • Gerð er krafa um bóklegt atvinnuflugmannspróf og kostur ef viðkomandi er eða hefur verið handhafi atvinnuflug- mannsskírteinis • Viðeigandi kennslureynsla er kostur sem og háskólanám sem nýtist í starfi • Hæfileiki til að túlka, útskýra og setja reglugerðarkröfur fram með skýrum hætti • Skilyrði er að viðkomandi hafi mjög góð tök á íslensku og ensku • Kostur er að umsækjendur hafi lokið viðurkenndu úttektarnámskeiði og hafi þekkingu á gæðakerfum • Góð tölvuþekking og skipulagshæfileikar Við leitum að starfsmanni með góða samstarfshæfileika, þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að sýna af sér frumkvæði, sjálfstæði og fagmennsku í starfi, vera skipulagður og agaður í verkum sínum og geta unnið undir álagi. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum. Vinsamlegast sendið umsókn og ferilskrá til Flugmálastjórnar Íslands, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík fyrir 9. ágúst n.k. merkt „Flugmálastjórn – umsókn um starf eftirlitsmanns með flugkennslu“. Nánari upplýsingar veitir Valdís Á. Aðalsteinsdóttir staðgengill framkvæmdastjóra stjórnsýslusviðs í síma 569 4124 / t-póstur: valdis@caa.is. Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með rúmlega 40 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innan- lands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa. Herbergisþerna Óskum eftir að ráða herbergisþernu í fullt starf. Æskilegt er að umsækjendur: • Hafi ríka þjónustulund og góða framkomu • Séu stundvísir, vandvirkir og hafi metnað • Tali íslensku og/eða ensku • Starfsreynsla er kostur Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsækjendur sendi umsókn ásamt ferilskrá og mynd á lilja@odinsve.is fyrir 20. júlí nk. merkt starfsumsókn. FRAMKVÆMDASTJÓRI Óbyggðanefnd óskar eftir að ráða til starfa framkvæmdastjóra. Um er að ræða fullt starf og æskilegt að viðkomandi hefji störf 1. október. Óbyggðanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, skipuð af forsætisráðherra, sem hefur það hlutverk að skera úr um eignarréttarlega stöðu lands á grundvelli laga nr. 58/1998. Starfssvið • Undirbúningur að úrskurðum óbyggðanefndar • Stjórnun og umsjón á skrifstofu óbyggðanefndar Menntunar- og hæfniskröfur • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði • Reynsla af dómsstörfum æskileg • Sjálfstæði, frumkvæði og skipuleg vinnubrögð • Samstarfshæfni og mjög góð færni í töluðu og rituðu máli • Hæfileikar til að vinna að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi starfsumhverfi Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir: Sif Guðjónsdóttir, kl. 9.00-12.00, í síma 563 7000. Vinsamlegast sendið umsóknir og greinargóðar upplýsingar um menntun og fyrri störf til „Óbyggðanefnd, Hverfisgötu 4A, 101 Reykjavík“ eða á netfangið postur@obyggdanefnd.is, fyrir 15. ágúst næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Óbyggðanefnd Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.