Fréttablaðið - 14.07.2012, Blaðsíða 4
14. júlí 2012 LAUGARDAGUR4
SJÁVARÚTVEGUR Heimilt verður að veiða
195.400 tonn af þorski á fiskveiðiárinu
2012/13. Það er aukning um tæp 20 þús-
und tonn, en aflamark á yfirstandandi
fiskveiðiári nam 177.000 tonnum. Ákvörð-
unin er í samræmi við ráðgjöf Hafrann-
sóknarstofnunar sem kynnt var í síðasta
mánuði.
Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra
sjávarútvegsmála, kynnti í gær ákvörð-
un sína um heildaraflamark. Hann seg-
ist mjög sáttur við niðurstöðuna og sér-
staklega það hve þorskstofninn sé í góðu
standi. Hann vonast til þess að 250 þús-
und tonna markið náist innan tíðar. „Þetta
er afrakstur af ströngum ákvörðunum og
sýnir árangur þess að
hafa sjálfbæra nýtingu í
öndvegi.“
Steingrímur vonast til
að verðmætaaukning á
næsta fiskveiðiári nemi
um 10 milljörðum króna.
„Þetta er veruleg búbót
fyrir greinina og á að
hjálpa henni að ráða enn
betur en ella við veiði-
gjaldið.“
Ástand ýsustofnsins er slæmt vegna
nýliðunarbrests undanfarinna ára. Leyfi-
legur heildarafli hennar verður 36 þúsund
tonn, en var 45 þúsund tonn í fyrra. - kóp
Vonast til að verðmætaaukning í fiskveiðiafla hjálpi útgerðinni við að ráða betur við veiðigjaldið:
Mega veiða tæp 200 þúsund tonn af þorski
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
GENGIÐ 13.07.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,0518
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,68 129,3
198,8 199,76
157,01 157,89
21,106 21,23
21,11 21,234
18,303 18,411
1,6236 1,633
192,98 194,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
SÝRLAND, AP Uppreisnarmenn í
Sýrlandi segja að stjórnarher-
inn hafi drepið á þriðja hundrað
manns í bænum Tremseh í Hama-
héraði í Sýrlandi á fimmtudag. Ef
rétt reynist var gærdagurinn því
einn sá blóðugasti í borgarastyrj-
öldinni í landinu.
Mismunandi fréttir bárust
af árásinni í gær, en erfitt er
að sannreyna fréttir þar sem
erlendir blaðamenn fá ekki að
starfa frjálsir í landinu. Upp-
reisnarmenn segja að stjórnar-
herinn hafi látið sprengjum rigna
yfir bæinn úr lofti og í kjölfarið
hafi árásarmenn á vegum stjórn-
valda farið inn í bæinn og skotið
og stungið fólk til bana.
Yfirmaður eftirlitssveitar Sam-
einuðu þjóðanna í landinu, Robert
Mood, kenndi stjórnvöldum um
árásina. Hann sagði fréttamönn-
um í Damaskus að hópur eftir-
litsmanna hefði verið í um fimm
kílómetra fjarlægð frá árásinni.
Þeir hefðu staðfest sprengjur úr
lofti og mikla skothríð og vopna-
notkun. Eftirlitsmennirnir 300
sem eru í landinu geta nánast
ekkert athafnað sig lengur vegna
sívaxandi ofbeldis.
Myndbönd hafa verið sett á
netið sem eiga að sýna lík fólks
sem var drepið í árásinni á
Tremseh. Misjafnt er hversu
margir eru sagðir hafa fallið, en
margir sem fréttamiðlar hafa
rætt við segja töluna yfir 200. Sú
tala hafði þó ekki enn verið studd
með nafnalistum eða öðru í gær-
kvöldi.
Mannréttindasamtök sögðu
fjöldann vera 160 manns, þar af
tugir uppreisnarmanna.
Stjórnvöld í Damaskus höfðu
aðra sögu að segja. Þau segja yfir
50 manns hafa látið lífið þegar
stjórnarherinn lenti í átökum við
vopnuð gengi hryðjuverkamanna
sem hefðu ráðist á þorpsbúa.
Kofi Annan, sérstakur erindreki
Sameinuðu þjóðanna og Araba-
bandalagsins í málefnum Sýr-
lands, sagðist hneykslaður á frétt-
unum af morðunum. Hann sagði
gríðarlega brýnt að ofbeldinu og
hrottaskapnum linnti.
Talið er að um sextán þúsund
manns hafi látið lífið í Sýrlandi
frá því að uppreisnin gegn Bas-
har al-Assad forseta hófst í mars í
fyrra. thorunn@frettabladid.is
Mestu fjöldamorðin
frá upphafi átaka
Uppreisnarmenn og mannréttindasamtök segja hundruð hafa látist í árásum
sýrlenska stjórnarhersins á bæinn Tremseh á fimmtudag. Kofi Annan, sérstakur
erindreki SÞ, segist hneykslaður og að nauðsynlegt sé að ofbeldinu linni strax.
FRÁ TREMSEH Þessi mynd er sögð sýna fórnarlamb árásarinnar í Tremseh á fimmtu-
dag. Um 200 manns féllu að sögn uppreisnarmanna. Stjórnvöld segja mannfallið
um 50 manns. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
eftirlitsmenn
Sameinuðu
þjóðanna í
Sýrlandi hafa lítið getað athafst
vegna þess hversu ofbeldi
færist í aukana í landinu.
300
Heildaraflamark 2012/13
Tegund Lestir
Þorskur 195.400
Gullkarfi 45.000
Djúpkarfi 10.000
Ýsa 36.000
Ufsi 50.000
Grálúða 14.700
Steinbítur 8.500
Skrápflúra 200
Tegund Lestir
Skarkoli 6.500
Sandkoli 800
Keila 6.400
Langa 11.500
Þykkvalúra 1.400
Skötuselur 1.800
Langlúra 1.100
Humar 1.900
Íslensk sumargotsíld 64.000
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
32°
28°
18°
19°
19°
21°
17°
17°
25°
18°
32°
28°
32°
19°
21°
20°
19°Á MORGUN
Strekkingur með A-
ströndinni, annars hægur
vindur eða hafgola.
MÁNUDAGUR
Hægviðri eða hafgola
víða um land.
16 17
13
1516
18 16
15
14
14
14
14
14
13
1311
9
12
14
16
11
6
8
3
4
3
3
33
3
6
4
ÞURRT ÁFRAM
Með þeirri undan-
tekningu að á
morgun gæti rignt
um tíma allra aust-
ast á landinu lítur
út fyrir þurrviðri
fram eftir næstu
viku og jafnvel
lengur. Hiti breytist
lítið og vindur
verður að mestu
leyti hægur nema
þar sem hafgolu
gætir.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
SJÁVARÚTVEGUR Umhverfisráð-
herra hefur úrskurðað að fyrir-
hugað laxeldi Arnarlax, sem
nýverið fékk rekstrarleyfi fyrir
3.000 tonna laxeldi í Arnarfirði,
sé háð umhverfismati.
Í apríl í fyrra hafði Skipulags-
stofnun hins vegar ákveðið að
laxeldið væri ekki bundið slíku
mati. Fjarðarlax, sem einnig er
með laxeldi í Arnarfirði, kærði
þá ákvörðun Skipulagsstofnunar
þar sem Fjarðarlaxmenn töldu að
fyrirhugað laxeldi Arnarlax gæti
haft sammögnunaráhrif, það er
að segja verið ögrun við uppvöxt
annarra laxa í firðinum. - jse
Áform um laxeldi í Arnarfirði:
Leyfið skal háð
umhverfismati
FISKELDI Í ARNARFIRÐI Tíu hafa leyfi fyrir
fiskeldi í Arnarfirði. MYND/JÓN ÞÓRÐARSON
Styrkja líkan af Þorláki ÁR 5
Bæjarráð Ölfuss hefur samþykkt
beiðni Árna Johnsen fyrir hönd
Þorláksbúðarfélagsins að greiða 300
þúsund króna styrk til gerðar líkans
af Þorláki ÁR 5. Skilyrði fyrir styrknum
er að líkanið, sem komið verður fyrir
í Þorláksbúð við Skálholt, verði merkt
sem gjöf frá sveitarfélaginu.
SVEITARFÉLÖG
ERLENT Íbúar á grísku eyjunni
Ikaríu teljast með mestu lífslíkur
í heimi. Þar er yfir eitt prósent
eyjaskeggja eldri en 90 ára og
einn af hverjum þremur getur
búist við að geta fagnað níræðu.
Gríski fréttavefurinn Ta Nea
greinir frá því að íbúar Ikaríu
þakki heilsuhreystina góðri fæðu.
Ógrynni af grænmeti er ræktað á
eyjunni og ólífuolía óspart notuð.
Eyjaskeggjar ganga einnig mikið
sem getur verið nokkur þraut þar
sem margir búa í bröttum hlíðum.
Eins lofa gamalmennin síðdegis-
blundinn sem skipar nær heilagan
sess í hugum eyjaskeggja. - jse
Þriðji hver nær 90 ára aldri:
Langlífið mest
á grískri eyju
SVEITARSTJÓRNARMÁL Kattavina-
félag Íslands vill gera samkomu-
lag við Kópavogsbæ varðandi
óskilaketti í bænum.
Á fundi bæjarráðs á fimmtudag
lagði Ómar Stefánsson, fulltrúi
Framsóknarflokks, hins vegar til
að leitað yrði tilboða víðar en frá
Kattavinafélaginu vegna geymslu,
aflífunar og eyðingu óskilakatta.
Bæjarráð vísar erindi Kattavina-
félagsins til úrvinnslu hjá Heil-
brigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og
Kópavogssvæðis og óskaði jafn-
framt eftir því að heilbrigðiseft-
irlitið setti reglur um gjaldtöku
vegna handsömunar og geymslu
óskilakatta. - gar
Vilja geyma ketti úr Kópavogi:
Leiti tilboða í
óskilakettina
KÖTTUR Umstang fylgir óskilaköttum.
Aflífa þarf hryssu
Aflífa þarf vanhirta hryssu í Austur-
umdæmi, að því er frá er greint á Vísi.
is. Hjörtur Magnason héraðsdýra-
læknir segir slíka vanrækslu ekkert
einsdæmi, tilfellið sé það þriðja sem
kemur inn á hans borð í sumar.
DÝRAVERNDARMÁL