Fréttablaðið - 30.08.2012, Side 6
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR6
NÁTTÚRA Síðustu nætur hafa verið kaldar á
Norður- og Austurlandi og víða í Reykjavík
mátti sjá hrímaða palla í gærmorgun. Flest
grænmeti sem ræktað er hér á landi þolir þó
stöku næturfrost og sammælast garðyrkju-
fræðingar um að ein og ein frostanótt geti
jafnvel gert berjauppskeru betri. Þó er nauð-
synlegt að uppskera rótargrænmeti áður en
frostið fer að læsast í jörðu.
Magnús Ásgeirsson, garðyrkjuráðunautur
hjá Bændasamtökunum, segir sjálfsagt að
tína upp allt sem tilbúið er til uppskeru. En
óþarfi sé að óttast að stöku næturfrost eyði-
leggi uppskeru haustsins, nema þau verði
tíð og mikil. Hann segir tíðarfar síðustu ára
hafa verið óvenjulegt. „Í Þykkvabænum var
alltaf talað um að 13. september væri hættan
á næturfrostum orðin veruleg, en það hefur
breyst,“ segir hann. „Þau eru farin að koma
fyrr. Öfgarnar eru orðnar meiri í veður-
farinu.“ Hann bendir á að með því fái plönt-
urnar styttri tíma til að þroskast, en aftur
á móti gera sólrík sumur eins og í ár það að
verkum að gróðurinn vex mun hraðar.
Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands, segir ekki fátítt að
byrji að frysta í lok ágúst. Hins vegar hafi
þurrkar sumarsins gert það að verkum að
uppskerubrestur geti orðið meiri hjá bændum
en ella. Þá hafi liðið nokkur ár síðan það tók
að frysta svona snemma, þar sem síðustu
haust hafa verið tiltölulega hlý.
Hún segir heitari tölur í kortunum fyrir
helgina og næstu viku. „Það verður hiti bæði
á degi og nóttu, svo hættan er frá í bili,“ segir
Kristín. sunna@frettabladid.is
Frostanótt gerir berin betri
Stöku næturfrost eyðileggja ekki uppskeru grænmetis og berja. Fallin kartöflugrös geta jafnvel gefið betri
kartöflur. Ein frostanótt gerir þó sveppi óæta. Gott er að verja plöntur með akríldúk þegar frysta tekur.
Ber og ávextir
Ekki þarf að örvænta um uppskeru þó
kartöflugrös falli í næturfrostum. Þvert á
móti er talið æskilegt að grösin falli áður en
kartöflurnar eru teknar upp. Á meðan frostið
nær ekki til kartaflnanna sjálfra, eyðir plantan
meiri krafti í hýðisvöxt eftir að grösin visna,
svo uppskeran verður betri fyrir vikið. Þó má
ekki líða meiri tími en vika til hálfur mánuður
áður en ráðist er í upptöku.
Magnús Ásgeirsson garðyrkjuráðunautur
segir áhættuna mesta ef kartöflurnar sjálfar
eru stutt komnar í vexti. Hægt sé að minnka
tjón með því að úða grösin vatni á meðan
frostið gengur yfir. Þá myndast klakaskel á
blöðunum sem gerir skemmdirnar minni
og gerir að verkum að klakinn bráðnar
fyrst, sem dregur úr hraðanum á þiðnun
blaðanna. Þó ber að forðast þær kartöflur
sem liggja nær ofan á moldinni og verða
grænar og þar með óætar eftir næturfrost.
Kartöflur
■ Gulrætur, radísur, næpur, rófur
Þó að von sé á næturfrostum er ekki þörf á að drífa
sig strax út í garð og kippa öllu upp. Yfirbreiðsla
með akríldúk gerir mikið fyrir plönturnar og
kemur í veg fyrir að blöðin þiðni of hratt þegar
sólin rís að morgni. Þumalputtareglan er sú að
leyfa grænmetinu að þroskast eins lengi í jörðinni
og kostur er. Ekki er ráðlagt að uppskera rótar-
grænmeti í frosti.
Rótargrænmeti
■ Grænkál, lambhagasalat, klettasalat,
mynta, steinselja, timjan, oreganó
Flestar salat- og kryddtegundir sem ræktaðar eru í
görðum hérlendis þola væg næturfrost. Harðgerustu
tegundirnar, eins og grænkál og mynta, styrkjast jafnvel
og verða bragðmeiri. Ef krydd eru ræktuð í pottum er þó
ágætt að kippa þeim inn fyrir yfir nóttina ef næturfrost eru tíð.
„Vandamálið er hvernig hitastigið þróast,“ segir Magnús. „Ef
sólin kemur upp og þíðir blöðin hratt geta þau skemmst.“ Ef
von er á frosti er betra að breiða akríldúk yfir.
Salat og kryddplöntur
■ Bláber, krækiber, hrútaber, hindber, stikilsber,
rifsber, sólber, epli, perur
„Það er gömul og lífseig saga að næturfrostin bindi enda á
berjavertíðina. Auðvitað gera þau það fyrr eða síðar, en ekki
eins hratt og maður skyldi halda,“ segir Sveinn Rúnar Hauks-
son, læknir og berjaáhugamaður. Sveinn segir bláber þola
frostin furðuvel og halda sér, en krækiberin séu aftur á móti
viðkvæmari. „Þau breytast strax við næturfrost, bæði í viðkomu
og bragði. En á hinn bóginn eru þau ekki ónýt eftir eina eða
tvær frostnætur, heldur er einmitt ágætt að tína þau þá í saft
því þá er bragðið mildara og minni sykur þarf í saftina.“ Hið
sama gildir um bláber og flest ber sem ræktuð eru í
görðum hérlendis, það er að þau þola frost nokkuð vel
og skiptir litlu þó geri næturfrost tvær
eða þrjár nætur. Aldinin verða
jafnvel bragðsterkari fyrir vikið.
Hindber eru þó heldur viðkvæmari
yfir vetrartímann og því þarf að
huga að svo ekki verði kal á
sprotum. Uppskerutími ársins
fyrir flestar tegundir berja er um
þessar mundir.
Segja má að sprenging hafi
orðið í ávaxtarækt á landinu á
síðustu árum. Það er eins með
ávextina og berin, að væg næturfrost
hafa ekki áhrif á þá þegar þeir eru á
annað borð byrjaðir að þroskast. Hins
vegar geta frost snemma sumars eyðilagt blómin,
sem veldur því að engin aldin koma fram að hausti. Jón Guð-
mundsson ávaxtabóndi segir eplin til að mynda þola frost vel
í nokkur skipti. „Blómin eyðileggjast hins vegar við eina til tvær
gráður í eitt skipti,“ segir hann. „En stöku næturfrost hafa ekki
áhrif á ávextina eins og plómur, perur, epli, kirsuber og fleiri.
Þetta snýr meira að því hversu kalt verður, ekki hversu oft.“
Uppskerutími ávaxta hér á landi í meðalári er frá fyrstu viku í
september og fram í miðjan október.
Sveppir eru viðkvæmir fyrir frostaveðrum og ein köld nótt er
nóg til að gera þá ónothæfa til matar. Guðríður Gyða Eyj-
ólfsdóttir, sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun,
segir ekki æskilegt að tína sveppi til matar eftir að
næturfrost hafa orðið, en þó svo að aldinin eyði-
leggist, helst sveppurinn sjálfur heill, þar sem
hann er neðanjarðar. „Almennt má reikna með
því að það sem er ofanjarðar skemmist í nætur-
frosti,“ segir hún. „Ef almennilegt veður kemur eftir
frostið, geta ný aldin komið upp frá sveppnum.“
Sveppir
Hvaða áhrif hefur frost á ávexti og grænmeti?
KJÖRKASSINN
blús djass sönglögpopp
BRETLAND „Ekki gleyma að
rannsaka þetta ef ég dey
skyndilega,“ skrifaði Eva
Rausing í tölvupósti til sænska
blaðamannsins Gunnars Wall.
Svo bætti hún við: „Bara grín,
vona ég!“
Þetta sagði hún í júní á
síðasta ári eftir að hafa trúað
Wall fyrir því að eiginmaður
hennar, sænski auðkýfingurinn
Hans Kristian Rausing, hefði
fyrir mörgum árum komist að
því hver stóð fyrir morðinu á
sænska stjórnmálamanninum
Olof Palme, sem var skotinn á
götu úti í Stokkhólmi árið 1986.
Hún fullyrti að þekktur
sænskur kaupsýslumaður hefði
talið Palme ógna viðskipta-
hagsmunum sínum og látið
myrða hann. „Ég held að ég
viti hvar morðvopnið er falið,“
sagði hún.
Eva Rausing dó síðan skyndi-
lega í sumar á heimili sínu í
London. Eiginmaður hennar,
sænski auðkýfingurinn Hans
Kristian Rausing, var dæmdur
í skilorðsbundið fangelsi
fyrir að láta lík hennar liggja
óhreyft vikum saman undir
fatahrúgu í svefnherbergi
þeirra þangað til það fannst.
Þau höfðu bæði lengi verið háð
fíkniefnum.
Sænska dagblaðið Expressen
fullyrðir að Eva Rausing hafi
haft samband við sænsku lög-
regluna strax árið 2010, en
grunur hennar hafi ekki þótt
trúverðugur.
Nú hyggst sænska lög reglan
kanna betur hvað hæft er í
þessu og ætlar að yfirheyra
Hans Kristian Rausing. Það
verður gert í London.
- gb
Sænska lögreglan kannar fullyrðingar konu sem fannst látin í London í sumar:
Sagðist vita hver myrti Palme
HANS KRISTIAN OG EVA RAUSING Sænska
lögreglan ætlar til London að yfirheyra Hans
Kristian Rausing. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Þrír pólskir amfetamínsmyglarar
neituðu því fyrir dómi í gær að þekkjast nema
mjög lauslega, þótt þeir séu allir frá sama smá-
bænum í Póllandi, hafi ferðast saman til Var-
sjár á leið í smyglleiðangurinn fyrr í sumar og
að tveir þeirra hafi líka komið til landsins með
sömu flugvél í fyrra.
Mennirnir voru handteknir eftir að tæp
þrjú kíló af amfetamíni fundust í farangri eins
þeirra í Leifsstöð. Hinir voru í kjölfarið stöðv-
aðir í leigubíl á leiðinni inn í Reykjavík og
fannst svipað magn í farangri hvors um sig.
Mennirnir hafa játað brotið að hluta. Að sögn
allra þeirra hafði maður sem þeir vita ekki
hver er samband við þá, ýmist um tölvupóst eða
símleiðis, og bauð þeim þúsund evrur hverjum
fyrir að fara með ferðatösku til Íslands. Þeir
segjast ekki hafa vitað hvað töskurnar inni-
héldu, þótt tveir þeirra viðurkenni að þeir hafi
gert sér grein fyrir að í þeim hlytu að vera
fíkniefni eða eitthvað annað ólöglegt.
Fyrir dómnum var því einkum tekist á um
það hvort mennirnir hefðu staðið saman að inn-
flutningi á tæpum níu kílóum af amfetamíni,
eða hvort aðeins skyldi dæma hvern og einn
fyrir að flytja hingað tæp þrjú kíló.
Mennirnir sögðust allir iðrast gjörða sinna
mjög, en þeir hafi hins vegar sætt hótunum
og því verið nauðbeygðir til að fara í ferðina.
Aðalmeðferðinni lauk ekki í gær þar sem eitt
vitnanna – sá sem stýrði lögreglurannsókninni
– er statt erlendis. - sh
Tveir af þremur amfetamínsmyglurum komu líka til Íslands með sömu flugvél í fyrra:
Þrír smábæjarbúar neita því að þekkjast
IÐRAST Mennirnir segjast allir sjá mjög eftir ferðalaginu
hingað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÚSSLAND, AP Mannréttindaráð
Rússlands gagnrýnir dóminn yfir
þremur konum úr pönkhljóm-
sveitinni Pussy Riot, sem fengu
tveggja ára fangelsi fyrir að efna
til mótmæla gegn Vladimír Pútín
forseta í helstu kirkju landsins.
Ráðið, sem er skipað af forseta
landsins, segir það gagnrýni-
vert að almenn hegningarlög hafi
verið notuð til að dæma háttsemi
sem einungis fellur undir stjórn-
sýslulög. Þá spyr ráðið hvers
vegna tvær kvennanna hafi ekki
fengið skilorðsbundna dóma á
þeirri forsendu að þær séu báðar
mæður ungra barna. Úrskurðir
ráðsins eru einungis ráðgefandi.
- gb
Ráðgjafar Pútíns ósáttir:
Gagnrýna dóm
yfir Pussy Riot
HOLLAND, AP Schiphol-flugvelli við
Amsterdam var lokað að hluta í
gær og tvær F-16 orrustuþotur
sendar af stað vegna gruns um
að flugræningjar hefðu tekið far-
þegaflugvél á sitt vald.
Síðar kom í ljós að sambands-
leysi milli flugturns og flug-
manns vélarinnar varð til þess að
varúðar ráðstafanir voru gerðar.
Aldrei var nein hætta á ferðum.
Dagurinn var annasamur á Schip-
hol því fyrr um morguninn þurfti
að loka hluta vallarins vegna
gruns um að sprengja frá seinni
heimsstyrjöld hefði fundist þar. - gb
Viðbúnaður á Schiphol:
Sambandsleysi
vakti illan grun
HÆTTUÁSTANDI AFLÝST Eftir langa bið
fengu farþegar að fara frá borði.
NORDICPHOTOS/AFP
Ferðast þú með bíl í og úr vinnu
eða skóla?
JÁ 75,6%
NEI 24,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Finnst þér það skipta máli hver
mun reka hótel við Hörpu?
Segðu þína skoðun á Vísir.is