Fréttablaðið - 30.08.2012, Síða 10
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR10
Meðaleyðsla aðeins
3,8 lítrar á hverja 100 km**
www.volkswagen.is
Sparnaðarráð
frá Þýskalandi
Volkswagen Golf BlueMotion
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Golf
** Miðað við blandaðan akstur á beinskiptum
Volkswagen Golf BlueMotion 1.6
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
8”
á
lfe
lg
ur
Golf k ostar ða eins frá
3.290.000 kr.
Sigurvegari
í sparakstri *
* Volkswagen Golf var sigurvegari í árlegri sparaksturskeppni Atlantsolíu 2012, í flokki dísilbíla 1.4-1.6 cc.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Úlpur 50% afsláttur
Krakkaúlpur 50% afsláttur
Útivistarjakkar 30% til 60% afsláttur
og fleira og fleira...
Ekki missa af þessu
Takmarkað magn!
BANDARÍKIN, AP Meðan fellibylurinn
Ísak herjaði á íbúa New Orleans
fylgdust repúblikanar almennt
í Bandaríkjunum spenntir með
landsþingi flokksins í Tampa, þar
sem allir helstu leiðtogar flokksins
flytja ræður.
Mikið úrhelli fylgdi felli bylnum
en hvassviðrið varð aldrei jafn
mikið og íbúar á þessum slóðum
kynntust fyrir sjö árum, þegar
fellibylurinn Katrína reið þar yfir.
Hundruð þúsunda yfirgáfu engu
að síður heimili sín í öryggisskyni,
en fellibylurinn fór hægt yfir og
hellti ógrynni vatns yfir íbúa í
Louisiana-ríki.
Á landsþingi repúblikana var
röðin í gær komin að ræðu Pauls
Ryan, varaforsetaefnis flokksins,
sem afar skiptar skoðanir eru um
meðal Bandaríkjamanna. Íhalds-
samir frjálshyggjumenn hafa
fagnað honum ákaft, en umdeildar
fjárlagahugmyndir hans hafa farið
misjafnlega í kjósendur.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
frá Pew-rannsóknarmiðstöðinni og
dagblaðinu The Washington Post er
algengast að Bandaríkjamenn telji
hann bæði íhaldssaman og gáfaðan,
en jafnframt hálfgerðan loddara og
þykjustumann.
Í ræðu sinni í gærkvöld þurfti
Ryan að tryggja sér og Mitt Rom-
ney, forsetaefni flokksins, stuðning
sem flestra óákveðinna kjósenda
sem geta ráðið úrslitum í forseta-
kosningunum í nóvember.
Stuðningsmenn Baracks Obama
forseta notuðu hins vegar daginn í
gær til að birta myndband þar sem
dregin er upp sú mynd af Ryan
að hann sé stjórnmálamaður frá
löngu liðnum tíma, sem vilji meðal
annars rústa heilbrigðistrygginga-
kerfi eldri borgara.
Í gær skaut svo upp kollinum
Condoleezza Rice, fyrrverandi
utanríkisráðherra úr stjórn George
W. Bush, sem flutti ræðu á lands-
þinginu. Þetta er í fyrsta sinn sem
hún blandar sér að ráði í bandarísk
stjórnmál eftir að hún lét af ráð-
herraembætti.
Í dag flytur svo Romney, forseta-
efnið sjálft, sína ræðu þar. Eigin-
kona hans, Ann Romney, ávarpaði
þingið á miðvikudagskvöld þar sem
hún talaði meðal annars um 43 ára
hjónaband þeirra og þá margvís-
legu erfiðleika sem verkalýðsfjöl-
skyldur eiga við að stríða: „Ef þið
hlustið vandlega, þá heyrið þið að
konurnar andvarpa aðeins hærra
en karlarnir. Svona er það bara, er
það ekki? Það eru mæðurnar sem
alltaf þurfa að leggja aðeins meira
á sig til að koma öllu í rétt horf,“
sagði hún.
Skoðanakannanir sýna að mjótt
er á mununum. Kjósendur virðast
treysta Romney betur í efnahags-
málum, en kunna almennt betur við
Obama. gudsteinn@frettabladid.is
Repúblikanar þinga
í skugga fellibyls
Rúmlega tveir mánuðir eru til forsetakosninga í Bandaríkjunum. Repúblikanar
hafa þingað í þessari viku, en í næstu viku er röðin komin að demókrötum.
MITT ROMNEY OG ANN EIGINKONA HANS Í dag er röðin komin að Romney að flytja
ræðu, en Ann ávarpaði landsþing repúblikana á þriðjudag. NORDICPHOTOS/AFP
SÝRLAND, AP „Við eigum í stríði sem
nær til heimshlutans og heimsins
alls, þannig að við þurfum tíma til
að ná sigri,“ sagði Bashar al-Assad
Sýrlandsforseti í útvarpsviðtali í
gær.
Þetta er í fyrsta sinn sem hann
viðurkennir að her sinn eigi í
erfiðu stríði. Hann sagði þó utan-
aðkomandi öfl eiga mesta sök á
því hve stjórnarhernum gengur
erfiðlega að sigrast á uppreisnar-
mönnum, sem hann hefur jafnan
kallað hryðjuverkamenn.
Hann gerði lítið úr brotthlaupi
bæði háttsettra ráðamanna og
óbreyttra hermanna, sem margir
hafa gengið til liðs við uppreisnar-
herinn: „Brotthlaup er sjálf-
hreinsibúnaður þjóðarinnar,“
sagði Assad. „Ef sýrlenskur
borgari veit um einhvern sem vill
flýja en hikar við það þá ætti hann
að hvetja hann til þess.“
Átök hersins við uppreisnar-
menn hafa kostað meira en 20 þús-
und manns lífið frá því fyrstu mót-
mælin gegn stjórn Assads hófust
snemma á síðasta ári. Átök voru
í gær í borgunum Aleppo, Homs
og Hama og einnig í úthverfum
höfuð borgarinnar Damaskus. - gb
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti viðurkennir að her sinn eigi í erfiðu stríði:
Hvetur landsmenn til að flýja
Á SJÚKRAHÚSI Í ALEPPO Særður drengur
ásamt uppreisnarmanni. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Tólf mánaða verð-
bólga mældist 4,1% í ágúst og
lækkaði um hálft prósentu-
stig á milli mánaða. Verðbólga
hefur ekki mælst minni síðan í
maí í fyrra. Vísitala neysluverðs
lækkaði í mánuðinum um 0,15%.
Þessi lækkun kom nokkuð á
óvart enda höfðu spár helstu
greiningar aðila gert ráð fyrir því
að verðbólga myndi hækka í mán-
uðinum. Eins og áður sagði er tólf
mánaða taktur verðbólgunnar 4,1%
og þá er tólf mánaða verðbólga án
áhrifa húsnæðisverðs 4,3%. - mþl
Þvert á spár greiningaraðila:
Verðbólga
lækkaði talsvert
Air Crash Investigation
Flugslys krufin til mergjar og orsökin fundin
NATIONAL GEOGRAPHIC CHANNEL ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
KASTALI Í GARÐINUM Þýsk hjón
hafa reist 14 metra háa eftirlíkingu
af kastala í bakgarði sínum í bænum
Dudweiler í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP