Fréttablaðið - 30.08.2012, Blaðsíða 25
SVART Í VETUR
Tískuhönnuðir hafa flestir sýnt ýmsar útfærslur buxna-
dragta á haust- og vetrarsýningum sínum fyrir 2012-13.
Hér er sænska fyrirsætan Frida Gustavsson í svörtum
samfestingi hönnuðum af Jean-Paul Gaultier en vetrar-
lína hans var öll í dökkum litum.
Elísabet Inga Sigurðardóttir er tæplega 17 ára Kvennaskólapía, en hún er að hefja sitt annað ár í
skólanum. Hún stundar auk þess dans-
nám í Dansskóla Birnu Björns og kennir
sjálf dans í söng- og leiklistarskólanum
Sönglist. Jafnframt afgreiðir hún í Body
Shop, svo það er nóg að gera hjá henni.
Varðandi fatastíl sinn segir hún þæg-
indin skipta mestu máli. Peysuna sem
hún klæðist á myndinni keypti hún í Lin-
dex og buxur kaupir hún yfirleitt í Júnik
í Smáralindinni. „Þær eru teygjanlegar
og þægilegar,“ segir hún. Annars segist
hún ekki fara í ákveðnar búðir þegar
hún kaupir sér föt. „Ef ég sé flott föt í
búðum, þá fer ég inn.“ Hálsmenið sem
hún ber þykir henni vænt um en það er
þó í eigu mömmu hennar: „Hún fékk það
í Namibíu þegar við fórum þangað að
heimsækja ömmu, en hún bjó þar þegar
ég var lítil,“ segir Elísabet.
PEYSUFATADAGURINN NÁLGAST
Þessa dagana er Elísabet upptekin við
að undirbúa hinn árlega Peysufatadag í
Kvennó, ásamt þremur öðrum meðlim-
um Peysufatanefndar. „Þetta er líklega
skemmtilegasti dagur annars árs,“ segir
Elísabet, en þann 28. september munu
nemendur á öðru ári klæða sig upp í
hinum þjóðlega stíl, dansa þjóðdansa,
borða vöfflur og halda svo á ball um
kvöldið. Þeim sem ekki eiga þeim
mun þjóðlegri fjölskyldur getur reynst
þrautin þyngri að útvega sér peysuföt
fyrir herlegheitin, en hægt er að leigja
föt meðal annars hjá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur.
HUGURINN REIKAR VÍÐA
Elísabet segist ekki viss um hvort hún
ætli að taka Kvennó á þremur eða
fjórum árum. Varðandi framhaldið er
hún einnig tvístígandi: „Mig langar
annað hvort í blaða- og fréttamennsku
í Háskóla Íslands eða framhaldsnám í
lýðheilsuvísindum. Ég hef reyndar líka
velt fyrir mér að fara í lögfræði.“ Elísa-
bet hefur þó nógan tíma til að velta
þessu fyrir sér og nýtur í bili mennta-
skólaáranna. ■ halla@365.is
VELUR ÞÆGINDIN
UNDIRBÝR PEYSUFATADAG Elísabet Inga Sigurðardóttir hefur nóg að gera.
Fyrir utan að stunda fullt nám í Kvennaskólanum kennir hún dans, afgreiðir í
Body Shop og undirbýr árlegan Peysufatadag ásamt félögum úr skólanum.
HVERSDAGSLEGI
FATASTÍLLINN
Elísabet Inga klæðist
helst þægilegum buxum
úr teygjanlegu efni og
notalegum peysum
dagsdaglega. MYND/GVA
HLAKKAR
TIL PEYSU-
FATADAGS
„Ég hugsa að
þetta sé örugglega
skemmtilegasti
dagur annars árs.“
Létt fylltur bh á AÐEINS KR. 2.500,- buxur við
á AÐEINS KR. 1.000,-
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*
Gerið gæða- og verðsamanburð
*3,5% lántökugjald
Ný sending
af hágæða
sængurverasettum
i
BOAS RAFDRIFNIR
Leður hægindasófar
og stólar
i
l
NÝT
T
Vertu vinur okkar á Facebook
Ný sending frá
Vandaðir
og þægilegir
leðurskór
Laugardaga kl. 11-16 virka daga kl. 9 -18 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is
Opið á
laugardögum