Fréttablaðið - 30.08.2012, Side 46
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR30
Síðsumartónleikar í Þjóðmenningarhúsinu er
yfirskrift tónleikaraðar sem hafin er í Þjóð-
menningarhúsinu og stendur til 4. september
næstkomandi auk tónleika 23. september.
Á tónleikunum koma fram evrópskir lista-
menn sem eiga það sameiginlegt að vera skipu-
leggjendur tónleika og forsvarsmenn tónlistar-
hátíða í sínum heimalöndum. „Tónleikaröðin
er kærkomið tækifæri fyrir íslenska tónlistar-
menn að hitta kollega sína erlenda sem hafa
skipulagt tónlistarhátíðir og mynda tengsl
og sambönd sem geta verið ómetanleg fyrir
ferilinn,“ segir Sigurður Bragason, söngvari og
einn listrænna stjórnenda tónleikaraðarinnar.
„Ég hef sjálfur komið fram á fjölda listahátíða
og fór að velta fyrir mér hvernig ég gæti nýtt
þau sambönd sem ég er kominn með, þannig
kom þessi tónleikaröð til.“
Tónlistarmennirnir eru allir í fremstu röð
að sögn Sigurðar. Á tónleikum kvöldsins, sem
hefjast klukkan átta, stíga á svið Norðmenn-
irnir Michael Süssmann fiðluleikari og Signe
Bakke píanóleikari. Þá taka einleikstónleikar
á píanó við: Peter Bortfeldt frá Þýskalandi
leikur næsta sunnudag klukkan átta, Sebas-
tiano Brusco frá Ítalíu kemur fram þriðju-
daginn 4. september á sama tíma og loks heldur
íslensk-bandaríski píanóleikarinn Kristín Jón-
ína Taylor tónleika sunnudaginn 23. september
klukkan átta.
Auk Sigurðar eru listrænir stjórnendur tón-
leikanna Guðrún Birgisdóttir og Guðni Braga-
son. - sbt
Kærkomið tækifæri fyrir tónlistarmenn
MIKAEL SÜSSMANN Fiðluleikarinn norski kemur fram á
tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu í kvöld.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 30. ágúst 2012
➜ Sýningar
21.00 Óperuverkið Ráðskonuríki verð-
ur frumsýnt á Café Rosenberg. Verkið er
sett upp af Alþýðuóperunni með upp-
færsluformi sem aldrei áður hefur verið
reynt á Íslandi. Miðaverð er kr. 2.500.
➜ Fræðslufundir
14.00 Áttundi opni fræðslufundurinn
í tilefni af 30 ára afmæli stoðtækja-
fyrirtækisins Stoðar hf. verður haldinn í
hjálpartækjasal Stoðar að Trönuhrauni 8
í Hafnarfirði. Fundurinn ber yfirskriftina
Magnaðir hjólastólar og þar fjallar Borg-
þór Sveinsson tæknimaður um mis-
munandi gerðir rafmagnshjólastóla og
hvað þarf að hafa í huga við val á þeim.
➜ Uppákomur
21.00 Mánaðarlegt Bingó fer fram á
Glaumbar. 100.000 krónur eru í aðal-
verðlaun. Hvert spjald á 500 krónur. DJ
Atli spilar að bingóinu loknu.
➜ Kynningar
17.00 Haldin verður lifandi kynning á
öllum þeim fjölmörgu fræðslumögu-
leikum sem í boði eru fyrir skóla hjá
Listasafni Reykjavíkur. Kynningin verður
haldin á Kjarvalsstöðum og er aðgangur
ókeypis. Kennarar eru sérstaklega hvattir
til að mæta.
➜ Dans
20.00 SalsaIceland býður í frían
prufutíma í salsa á Thorvaldsen bar.
SIST meðlimir bjóða einnig í prufu-
tíma í Taxi dönsum fyrir byrjendur. Að
prufu tímunum loknum verður dans-
gólfið laust og salsatónlist spiluð. Allir
velkomnir og tilboð á barnum.
➜ Tónlist
12.15 Ítalska sópransöngkonan
Antonia Maria Emanuela Palazzo og
píanóleikarinn Paolo Scibilla hefja nýja
hádegistónleikaröð í Salnum, Kópavogi.
Þau flytja sönglög frá Suður-Ítalíu á
tónleikaröðinni sem ber yfirskriftina
Líttu inn í hádeginu.
16.30 Hljómsveitin Árstíðir leikur fyrir
gesti á tónleikum í Pikknikk-tónleikaröð
Norræna hússins. Frítt er á tónleikana
sem haldnir eru í gróðurhúsi Norræna
hússins.
21.00 Sóley og danska sveitin My
Bubba and Mi spilar á Græna Hattinum,
Akureyri. Miðaverð er kr. 2.000.
21.30 Andrés Thor spilar með norr-
ænum kvartett á KEX Hostel. Tónleik-
arnir eru hluti af Jazzhátíð Reykjavíkur.
22.00 Sísý Ey
og Dj Margeir
verða í kjallar-
anum á Ellefunni.
Aðgangseyrir er
kr. 1.000.
22.00 Bítla-
drengirnir blíðu
halda tónleika á
Ob-La-Dí-Ob-La-
Da Frakkastíg 8.
Aðgangseyrir er
kr. 1.000.
Upplýsingar
um viðburði
sendist á hvar@
frettabladid.is