Fréttablaðið - 30.08.2012, Side 62
30. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR46
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Það var gaman að flétta saman þessa tvo
heima sem við hjá Farmers Market lifum og
hrærumst í, tónlistar- og hönnunarheiminn,“
segir Jóel Pálsson tónlistarmaður um sam-
starfsverkefni Farmers Market og hljómsveit-
arinnar Sigur Rósar. Jóel rekur hönnunarfyrir-
tækið ásamt eiginkonu sinni, fatahönnuðinum
Bergþóru Guðnadóttur, og höfðu meðlimir
Sigur Rósar samband við þau snemma í vor og
báðu þau um að hanna teppi sem hægt væri að
bjóða samhliða hinni hefðbundnu geisladiska-
og bolasölu á tónleikaferðalagi sínu sem nú
stendur yfir.
„Við ákváðum að nota íslenska ull í teppin
og hanna þau með tilliti til þess að hægt væri
að framleiða þau hér heima. Bergþóra lagðist
í smá grúsk og gerði svo eins konar abstrakt
útgáfu af plötuumslagi Valtara. Við gerðum
frumgerð, mynduðum hana og Sigur Rós setti á
vefinn sinn. Það er skemmst frá því að segja að
öll 300 teppin seldust upp í forsölu á
nokkrum klukkutímum,“ segir Jóel.
Í kjölfarið var ákveðið að framleiða
önnur 300 teppi en í annarri lita-
samsetningu og seldust þau einnig
strax upp. Fleiri teppi verða ekki
framleidd og því um takmarkað upp-
lag að ræða en framleiðslan hefur
verið í gangi í allt sumar.
Inntur eftir því hvort þau hafi í
huga að vinna frekar með Sigur
Rós útilokar Jóel það ekki.
„Fáir vita að fyrirtæki okkar
byrjaði sem plötuútgáfa þó
fatahönnunin hafi tekið yfir
síðustu árin.“ - sm
Sigur Rósar teppi uppseld á örskotsstundu
UPPSELT Um 700 kíló af íslenskri
ull voru notuð í teppin. Jóel Páls-
son er annar eigenda Farmers
Market.
Linda Ósk Valdimarsdóttir dans-
ari kom fram í hæfileikakeppninni
Rampljuset sem sýnd var í sænska
ríkissjónvarpinu í maí. Þættirnir
njóta mikilla vinsælda og í kjölfar
þeirra var Lindu Ósk boðið starf
yfirkennara hjá Dansakademíunni
í Malmö.
„Þetta er enginn smá heiður
fyrir mig, aðeins tvítuga stelpuna,“
segir Linda Ósk og bætir við: „Ég
hef gengið frá öllum samningum
við skólann og flyt út á morgun
[í gær]. Fyrsta verkefnið mitt er
strax á sunnudag en þá verð ég einn
af þremur dómurum í áheyrnar-
prufum fyrir sýningarhóp skólans.“
Að sögn Lindu bar flutningana
skjótt að og hefur hún til að mynda
aldrei hitt skólastjóra skólans. Hún
kveðst þó spennt fyrir vinnunni og
segir þetta ævintýri líkast. „Ég
er búin að selja allt dótið mitt og
fer út með aðeins eina 20 kílóa
ferðatösku. Það er engin eftirsjá
að dótinu mínu, mér finnst þetta
allt bara ótrúlega spennandi og ég
hlakka til að upplifa ný ævintýri,
nýtt land og nýtt tungumál.“
Linda Ósk gerði samning til sex
mánaða við skólann en telur líklegt
að hún dvelji í það minnsta í tvö ár
í Svíþjóð. Hún segir jafnframt að
óalgengt sé að yfirkennarar séu
ráðnir á þennan hátt. „Bæði hefur
skólastjórinn ekki hitt mig og það
er líka óalgengt að yfirkennarar
séu svona ungir.“
Linda Ósk er eigandi dans skólans
Rebel Dance Studio og dansar að
auki með Rebel-dans flokknum.
Hún segir dansskólann vera í
góðum höndum í hennar fjarveru
því meðeigandi hennar, Helga Ásta
Ólafsdóttir, tekur við rekstrinum.
- sm
Bauðst starf eftir danskeppni
Á LEIÐ ÚT Lindu Ósk Valdimarsdóttur
bauðst starf yfirkennara við Dansaka-
demíuna í Malmö eftir frammistöðu
sína í Rampljuset. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Mér finnst óviðunandi að mann-
eskja geti horfið sporlaust í okkar
litla samfélagi,“ segir fréttakonan
Helga Arnardóttir sem er að fara
af stað með nýja þætti á Stöð 2 þar
sem umfjöllunarefnið er manns-
hvörf á Íslandi.
Þættirnir bera vinnuheitið
Horfið fólk og fara í loftið í kring-
um áramótin en þeir verða alls
átta talsins. Um ólík mál er að
ræða þar sem elsta málið er um
fimmtíu ára gamalt og það yngsta
tveggja ára. Björn Brynjúlfur
Björnsson sér um framleiðslu
þáttanna en hann framleiddi Sönn
íslensk sakamál á sínum tíma.
Helga hefur lengi gengið
með hugmyndina að þáttunum
í maganum en hún hlaut blaða-
mannaverðlaunin í ár fyrir
umfjöllun sína um Guð mundar- og
Geirfinnsmálin, frægustu manns-
hvarfsmál á Íslandi. „Þegar ég
vann þá umfjöllun kviknaði áhugi
minn á að fjalla um óleyst manns-
hvörf hér á landi. Mér finnst þessir
einstaklingar eiga það skilið hvort
sem hvörf þeirra eru sjálfskipuð,
slys eða saknæm. Ég finn líka að
það er mikill áhugi í íslensku sam-
félagi fyrir mannshvörfum,“ segir
Helga sem er rétt byrjuð að vinna
þættina og hefur fengið gríðar-
lega góð viðbrögð frá aðstandend-
um og lögreglu. „Mér hefur verið
mjög vel tekið. Aðstandendur,
sama hversu langur tími er liðinn
frá hvarfinu, eru alltaf að bíða og
leita að svörum um afdrif einstak-
lingsins.“
Helga vill ekki fara nánar út
í hvaða mál verða tekin fyrir í
þáttunum. Hún segir að hvert
mál verði að nálgast af virðingu
og er vongóð um að einhver svör
finnist. „Sum mál eru þess eðlis að
erfiðara er að leita svara, en það
er alltaf einhver sem veit eitthvað
þarna úti. Eitthvert smáatriði sem
hefur ekki fengið athygli,“ segir
Helga og bætir við að aldrei sé of
seint að veita upplýsingar.
Helga ætlar einnig að varpa
ljósi á vinnu lögreglunnar og
björgunarsveitar í tengslum við
mannshvörf, ásamt sviðsettum
atriðum inn á milli.
„Ég veit að ég á eftir að reka
mig á veggi enda er ég að feta
ótroðnar slóðir. Ég hef góða til-
finningu fyrir þessu verkefni og
vonast til að fá góð viðbrögð,“
segir Helga og hvetur þá sem vilja
setja sig í samband við hana vegna
þáttarins að senda sér póst á net-
fangið helga@stod2.is.
alfrun@frettabladid.is
HELGA ARNARDÓTTIR: ÞAÐ ER ALLTAF EINHVER SEM VEIT EITTHVAÐ
Hefur leit að horfnu fólki
Neyðarlínan: Þættir sem hefjast á Stöð 2 í september. Fréttakonan Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir fylgir eftir sögum fólks sem hringt hefur í Neyðarlínuna. Símtalið
er spilað og talað við sjúkraflutningamenn og lækna sem aðstoðuðu sjúk-
lingana á sínum tíma. Kastljósinu beint að sögum sem enda vel.
Óupplýst: Hefjast á Skjá Einum í september. Þættirnir verða sex talsins og eru
byggðir á sögum Íslendinga af óútskýranlegum atburðum sem hafa átt sér stað.
Daníel Bjarnason og Erlendur Sveinsson standa að þáttunum.
Sönn íslensk sakamál: Hefjast í október á Skjá Einum. Þar verður hulunni
svipt af gömlum og nýjum íslenskum sakamálum. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins verður meðal annars fjallað um líkfundarmálið, morðið á Sri
Rahmawati, vændisstarfsemi Catalinu og morðið á Einari Erni Birgissyni.
Sigursteinn Másson er þulur þáttanna og leikstjóri er Sævar Guðmundsson.
SAKAMÁL, SLYS OG MANNSHVÖRF Á SKJÁINN
FER ÓTROÐNAR SLÓÐIR Helga Arnardóttir ætlar að kafa ofan í mannshvörf á Íslandi
í nýjum þáttum sem fara í loftið um áramótin. Helga er vongóð um að finna einhver
svör og hvetur fólk til að setja sig í samband við hana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Subway er bestur í skyndibita;
fátt betra en góður bræðingur.
Laundromat er bestur í brunch,
Sushisamba ef maður ætlar að
gera vel við sig og Gló þegar
maður ræktar líkama og sál.“
Jón Gunnar Geirdal, eigandi markaðs-
setningarfyrirtækisins Ysland.
WWW.SM.IS
32 LCD SJÓNVARP"
Einfalt en vandað 32" Finlux
sjónvarp með stafrænum
DVBT móttakara, USB
tengi og innbyggðum
margmiðlunarspilara.
69.990
Finlux 32FLX905U