Fréttablaðið - 06.10.2012, Blaðsíða 6
6. október 2012 LAUGARDAGUR6
SKAPAÐU ÞÍNA
EIGIN FRAMTÍÐ
TAKTU SKREFIÐ
Námsráðgjöf og upplýsingar:
sími 525 4444 endurmenntun.is
HUGRÆN ATFERLISMEÐFERÐ
– NÁM Í UNDIRSTÖÐUATRIÐUM
HAGNÝTT NÁM SEM VEITIR ÞEKKINGU
OG INNSÝN Í AÐFERÐIR
HUGRÆNNAR ATFERLISMEÐFERÐAR
FYRIR:
· HÁSKÓLAMENNTAÐ FAGFÓLK INNAN
HEILBRIGÐIS-, FÉLAGS- OG MENNTAVÍSINDA
· STJÓRNENDUR STOFNANA OG FYRIRTÆKJA
HELGARLOTUR - ÍGILDI 10 ECTS EININGA
HEFST 12. OKTÓBER
KJARNORKA Niðurstöður af álags-
prófi kjarnorkuvera í aðildarríkj-
um Evrópusambandsins sýna að
öryggismálum þar er víða ábóta-
vant.
„Almennt séð er ástandið þol-
anlegt en hvergi er svigrúm til
andvaraleysis,“ segir Günther
Oettinger, orkumálastjóri Evrópu-
sambandsins, í breska dagblaðinu
The Guardian.
Framkvæmdastjórn ESB krefst
þess að orkufyrirtækin, sem reka
kjarnorkuverin, skuldbindi sig til
þess að gera nauðsynlegar lagfær-
ingar, en talið er að heildarkostn-
aðurinn við úrbætur geti numið
allt að 25 milljörðum evra, eða
nálægt 4.000 milljörðum króna.
Alls eru 64 kjarnorkuver með
samtals 145 virka kjarnaofna í
fimmtán aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins. Að auki tóku Sviss
og Úkraína, sem ekki eru í Evr-
ópusambandinu, fullan þátt í
álagsprófinu. Í þessum tveimur
löndum eru átta starfandi kjarn-
orkuver með samtals 20 kjarna-
ofna.
Álagsprófið var gert í kjöl-
far kjarnorkuslyssins sem varð í
Fukushima í Japan á síðasta ári
eftir að harður jarðskjálfti reið
þar yfir og mikil flóðbylgja fylgdi.
Í ljós kom meðal annars að
ekki höfðu verið gerðar fullnægj-
andi öryggisráðstafanir varðandi
jarðskjálftahættu í 37 prósent-
um evrópskra kjarnorkuvera, og
ekki höfðu verið gerðar fullnægj-
andi öryggisráðstafanir varðandi
flóðahættu í 43 prósentum þeirra.
Þá kom í ljós að þær úrbætur
í öryggismálum sem samþykkt
var að gera í kjölfar fyrri kjarn-
orkuslysa, nefnilega Tsjernóbyl-
slyssins í Úkraínu og óhappsins á
Þriggja mílna eyju í Bandaríkjun-
um, hafa ekki allar komist í fram-
kvæmd. gudsteinn@frettabladid.is
42
78
18
32
54
19
33
54
40
Forsmark Olkiluoto
Helstu niðurstöður
Öryggisbúnaði ábótavant
Áætlaður kostnaður við nauðsynlegar umbætur á öryggisbúnaði í evrópskum
kjarnorkuverum nemur allt að 25 milljörðum evra, eða nálægt 4.000 milljörðum
króna.
Kjarnaofnar í notkun 134
Í byggingu 6
Bretland
Belgía
Frakkland
Spánn
Slóvenía
Ungverjaland Búlgaría
Þýskaland
Svíþjóð
Holland
Slóvakía 54%
Tékkland 33%
Finnland 32%
18%
54%
78%
18%
40%
4%
20%
2%
43% 33%
19%
Hlutfall kjarnorku af
allri orkuframleiðslu
HEIMILDIR: EUROPEAN COMMISION, IAEA, WNA ©GRAPHIC NEWS
■ Fjórir kjarnaofnar í Olkiluoto,
Finnlandi, og í Forsmark, Svíþjóð,
eru ekki með sjálfvirk varakerfi til
að endurræsa öryggiskerfi innan
klukkustundar ef rafmagnsleysi
verður.
■ Í tíu breskum og fimm spænskum
kjarnorkuverum vantar búnað
sem endurtengir vetnissameindir
til að koma í veg fyrir vetnis-
sprengingar.
■ Í flest bresk kjarnorkuver vantar
varastjórnstöð sem grípa mætti til
ef stjórnstöð versins mengast af
geislavirkni.
■ Í 19 frönsk kjarnorkuver vantar
öryggisbúnað sem ver gegn
miklum flóðum eða jarðskjálftum.
■ Í nágrenni 47 kjarnorkuvera, með
samtals 111 kjarnaofna, búa meira
en 100 þúsund manns í innan við
30 km fjarlægð.
Gallar í evrópskum
kjarnorkuverum
Flest kjarnorkuver í Evrópu eru með ófullnægjandi öryggisbúnað, samkvæmt
skýrslu frá Evrópusambandinu. Verja þarf miklu fé í endurbætur til að koma í
veg fyrir slys. Ekki er þó talið nauðsynlegt að loka neinu veranna.
Borðar þú fisk í hverri viku?
JÁ 74,9%
NEI 25,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Líkar þér nýtt útlit á frétta-
vefnum Vísir.is?
Segðu þína skoðun á Vísir.is
VENESÚELA, AP Henrique Capriles, forsetaframbjóð-
andi í Venesúela, sakar Hugo Chavez forseta um að
hafa gefið ríkisstarfsmönnum bæði rauðan bol og
frí í vinnunni einn dag til að taka þátt í kosninga-
samkomu á fimmtudaginn. Þeim hafi verið gert
skylt að mæta á fundinn.
Forsetakosningar verða haldnar á morgun og
skoðanakannanir hafa undanfarið spáð Capriles
nokkrum líkum á sigri, þótt Chavez njóti enn mik-
illa vinsælda og stjórni landinu nánast eins og pers-
ónulegri eign sinni.
Á fimmtudaginn voru ríkisstofnanir lokaðar og
tugir þúsunda ríkisstarfsmanna flykktust út á götur
höfuðborgarinnar Caracas, ásamt fjölmörgum
öðrum stuðningsmönnum forsetans.
Alls er talið að þátttakendur í samkomunni hafi
skipt hundruðum þúsunda. Þátttakan varð þar með
meiri en á stuðningsfundi mótframbjóðandans
Capriles um síðustu helgi.
Capriles nýtur, eins og Chavez, mikilla vinsælda
í landinu. Hann er leiðtogi flokks frjálslyndra, fyrr-
verandi ríkisstjóri í Miranda og hefur heitið því að
berjast gegn glæpum, spillingu og þunglamalegu
embættismannakerfi.
Hann sat í fangelsi um skeið árið 2004 vegna
gruns um aðild að valdaránstilraun gegn Chavez
árið 2002. - gb
Hugo Chavez gaf ríkisstarfsmönnum frí til að mæta á stuðningsfund:
Beitir sér af alefli gegn Capriles
HUGO CHAVEZ Lét ekki rigninguna stöðva sig á kosningafundi
á fimmtudag. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Ekkert verður af
lokun sýsluskrifstofunnar í
Grindavík eins og sýslumaðurinn
í Keflavík boðaði í síðustu viku.
Þórólfur Halldórsson sýslumað-
ur mætti á fund bæjarráðs Grinda-
víkur síðasta miðvikudag og til-
kynnti að hann hefði sagt upp eina
starfsmanni útibús embættisins í
Grindavík. Ástæðan var skortur á
fjárheimildum í fjárlagafrumvarpi
næsta árs. Bæjarráðið brást hart
við; sagði reglugerðir gera ráð
fyrir sýsluskrifstofu í Grindavík
og fól bæjarstjóranunm að ræða
málið við innanríkisráðherra.
„Ég átti fund með þeim klukk-
an fimm síðdegis og morguninn
eftir um hálfníuleytið var þetta
komið í lag, það var aukið við fjár-
veitinguna,“ útskýrir Þórólfur
atburðarásina eftir bæjarráðs-
fundinn. Uppsögn starfsmannsins
var sem sagt dregin til baka.
„Sýslumaðurinn sagði að ráð-
herra hefði ákveðið að leggja til
meira fjármagn,“ segir Róbert
Ragnarsson bæjarstjóri. Hann
kveður sýsluskrifstofuna mikil-
væga fyrir Grindvíkinga. „Hér
eru þrjú þúsund manns og nokkur
af stærri fyrirtækjum landsins.
Það gefur augaleið hversu mikið
óhagræði það er að þurfa að fara
25 kílómetra til Keflavíkur til að
þinglýsa öllu.“ - gar
Hætt við lokun sýsluskrifstofu í Grindavík eftir hörð viðbrögð heimamanna:
Sýslumaðurinn dró uppsögn til baka
ÞÓRÓLFUR
HALLDÓRSSON
RÓBERT
RAGNARSSON
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært 23 ára mann fyrir tilraun til
manndráps. Honum er gefið að sök
að hafa ráðist á jafnaldra sinn með
hnífi á gatnamótum Höfðatúns og
Skúlagötu í lok júlí síðastliðins.
Hnífurinn gekk inn í vinstra
lunga þolandans og olli loftbrjósti.
Þá fékk hann skurð langsum á
hryggsúlu.
Ákærði neitaði sök við þingfest-
ingu á miðvikudag. Hann hefur
sætt gæsluvarðhaldi síðan málið
kom upp og hefur það verið fram-
lengt til 31. október. - sh
Situr í varðhaldi en neitar sök:
Ákært fyrir lífs-
hættulega árás
KJÖRKASSINN