Fréttablaðið - 06.10.2012, Blaðsíða 8
6. október 2012 LAUGARDAGUR8
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
1
21
81
6
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
LÁTTU FAGMENN
META GULLIÐ
Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt
gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku
á þessu sviði.
Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla
og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri
skartgripagæðum.
Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og
framleiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri.
Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega
ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum.
Það skiptir mestu máli.
Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.
Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18.
Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.
Mánudaginn 8. október kl. 12:00-13:00 í Lögbergi, L-101
Fyrirlestrarröð Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa og
Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands
Umræða um fyrirætlanir kínverska fjárfestisins Huang Nubo, um
uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum, hefur verið
fyrirferðamikil í íslenskum fjölmiðlum. Í fyrirlestri sínum sem nefnist
„Tilraun kínversks einkafyrirtækis til að fjárfesta á Íslandi“ mun
Halldór Jóhannson varpa nýju ljósi á fyrirhugaða uppbyggingu og
fjárfestingar.
Halldór Jóhannsson er framkvæmdastjóri Zhongkun á Íslandi og talsmaður
Huang Nubo hér á landi.
Konfúsíusarstofnunin norðurljós og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
standa fyrir sameiginlegri fyrirlestraröð á haustmisseri 2012 um viðskipti við
Kína frá ýmsum sjónarhornum.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
Halldór Jóhannson
Hver eru uppbyggingaráform
Huang Nubo á Íslandi?
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
MEIRA SKÚBB
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
ALÞINGI Líkur eru á að lögreglu
berist í hrönnum tilkynningar um
áburðarkaup bænda verði nýtt
frumvarp til vopnalaga að veru-
leika. Til stendur að leggja frum-
varpið fram á þingi eftir helgina. Í
því er miðað við að tilkynna þurfi
um sölu á áburði sem nota megi til
að búa til sprengiefni fari magnið
yfir 500 kíló á sex mánaða tímabili.
„Þetta gengur ekki upp,“ segir
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands. „Meðalbú
kaupir aldrei undir 20 tonnum.“
Haraldur segir umræðuna um
aukið eftirlit með áburðarkaupum
þekkta erlendis frá og hafi til að
mynda komið upp í Noregi eftir
ódæði Breiviks þar í landi. Hann
varar hins vegar við því þjóðir láti
hrekja sig út í „eftirlits- og leyfa-
fargan“, bændur verði illa sett-
ir undir vopnalög. „500 kíló sam-
svara einum sekk af áburði og það
kaupir enginn minna en það.“
Haraldur hefur ekki séð frum-
varpið, en gerir ráð fyrir að
Bændasamtökin veiti Alþingi
umsögn sína vegna þess. Hann
segir samtökin þó geta sætt sig
við beitingu vægustu úrræða, líkt
og lagt er til í frumvarpinu sem
gerir ráð fyrir að áburðarsalar
afhendi lögreglu lista yfir þá sem
hafi undir höndum tiltekið magn
af áburði. Eftir nokkra umræðu í
Noregi hafi einmitt verið raunin að
fara þá leið, fremur en að leggja á
bændur íþyngjandi reglur um
meðferð áburðar. „Og við getum
kannski ekki sagt neitt við því.“
Hertar reglur um vopnaeign
og meðferð skotvopna eru hins
vegar fagnaðarefni, að mati Ívars
Erlendssonar, félaga í Skotveiði-
félagi Íslands (Skotvís) en hann
sat í nefnd um endurskoðun vopna-
laga. „Mér líst vel á þetta, að megn-
inu til er þetta það sem við lögð-
um til á sínum tíma,“ segir hann
og kveður félagsmenn vona að
frumvarpið fari að mestu óbreytt
í gegnum þingið.
Þó segir Ívar að í heildarend-
urskoðun á vopnalögunum hefðu
félagsmenn viljað sjá meiri til-
slakanir í sambandi við vopna-
eign. Hafi einhverjum verið treyst
til þess að fara með skotvopn, ætti
ekki að skipta máli hvers lags vopn
er um að ræða, svo fremi sem í
lagi sé með meðferðina á þeim og
geymsluaðferðir. „Þannig ætti ekki
að skipta máli hvort viðkomandi er
með skammbyssu, riffil eða hagla-
byssu.“
Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra segir að með frum-
varpinu sé reynt að þræða gullinn
meðalveg þannig að auknar skorð-
ur í vopnaeign þrengi ekki að skot-
veiðimönnum eða íþróttamönnum
á sviði skotfimi.
olikr@frettabladid.is
ÁBURÐARSEKKIR Liðin er sú tíð að áburður fáist í 50 kílóa pokum. Núna fer öll
afhending fram í stórsekkjum sem taka fimm til sex hundruð kíló. Sekkirnir hér að
ofan fundust heima hjá Anders Behring Breivik í Noregi. NORDICPHOTOS/AFP
Bændur enda
flestir á skrá
lögreglunnar
Magn áburðar sem í nýju vopnalagafrumvarpi er
gert ráð fyrir að verði tilkynningaskylt til lögreglu
er bara brot af því sem meðalbú notar. Bændasam-
tökin eiga eftir að skoða frumvarpið betur.