Fréttablaðið - 06.10.2012, Blaðsíða 78
KYNNING − AUGLÝSINGSpeglar & innrömmun LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 20124
FÆST DÝR GREINA SPEGILMYND SÍNA
Langt er síðan maðurinn uppgötvaði
spegilmynd sína og að öllum líkindum
hefur hann speglað sig í ám og lygnum
vötnum fyrst um sinn. Síðari rannsóknir
hafa leitt í ljós að þessi hæfileiki kemur
fram við nokkurra mánaða aldur.
Maðurinn er ein af fáum dýrategundum
sem greina spegilmynd sína en hann
deilir þeim hæfileika með öpum, fílum,
háhyrningum, höfrungum og örfáum
öðrum tegundum.
Hundar og kettir eru ekki þessum hæfileika
gæddir. Ef þeir sjá sig í spegli líta þeir svo
á að þarna sé annað dýr á ferð og reyna
yfirleitt að hrekja það á brott með afar
takmörkuðum en spaugilegum árangri.
Það má ímynda sér að manninum hafi brugðið í brún þegar hann greindi
spegilmynd sína fyrst og snemma tengdu menn hana alls kyns hjátrú.
Lengi var talið að hægt væri að komast yfir á annað tilverustig og spá fyrir
um framtíð sína með því að stara á spegilmynd sína. Aftur á móti var það
talið boða ógæfu ef spegilmyndin skekktist eða brenglaðist á meðan horft
væri á hana.
Speglar eru órjúfanlegur hluti tilverunnar og fara fæstir út úr húsi án stuttrar
viðkomu fyrir framan spegilinn,
í það minnsta til að lagfæra hár
og fatnað. Margir myndu jafn-
vel segja að spegill væri ómiss-
andi nytjahlutur og eru fá heimili
sem ekki eru búin í það minnsta
einum baðherbergisspegli.
Speglar eru þó nýttir til ann-
ars en að kanna ásýndina og er
til að mynda löng hefð fyrir því
að nota þá við innanhúshönnun.
Í Feng Shui-fræðum eru þeir not-
aðir til að ná fram ákveðnu jafn-
vægi í hvers kyns vistarverum.
Stórir speglar stækka lítil rými
og í fallegum ramma eru þeir auk
þess stakasta prýði.
Hin síðari ár hefur verið sér-
staklega vinsælt að hengja vold-
ugan spegil fyrir ofan sófa í stað
málverks. Oft er liturinn á ramm-
anum látinn tóna við annað í stof-
unni, sem gerir oftast mikið fyrir
heildarmyndina.
Í litlum svefnherbergjum og
í forstofum er algengt að klæða
skápahurðir með speglum. Þetta
eru staðir þar sem gott er að
spegla sig en gólfsíðir speglar í
slíkum vistarverum hafa auk þess
góð áhrif á rýmið.
Stækka rými og skapa jafnvægi
Löng hefð er fyrir því að nota spegla við innanhússhönnun enda geta þeir gert kraftaverk fyrir lítil rými. Þeir eru sömuleiðis
órjúfanlegur hluti af daglegu lífi flestra þó að fæstir velti því fyrir sér.
Algengt er að klæða skápahurðir
speglum. Yfirleitt er um að ræða gólfsíða
spegla á svefnherbergisskápum og í
forstofu en möguleikarnir eru óþrjótandi
eins og þessi antikskápur ber með sér.
Löng hefð er fyrir því að nota spegla
við innanhúshönnun. Í Feng Shui-
fræðum eru þeir notaðir til að ná
fram ákveðnu jafnvægi í hvers kyns
vistarverum. Stórir speglar stækka
lítil rými.
Hægt er að nota spegla á ýmsan hátt. Góð
hugmynd er að útbúa snyrtiborð með því
að setja spegil ofan á skrifborð. Hægt er að
nýta gamalt skrifborð, lakka það upp á nýtt
og raða fallegum hlutum ofan á það, eins
og gert er á myndinni. Litlir hlutir geta gert
ótrúlega mikið fyrir umhverfið. Ljósir litir,
stór spegill og fallegur stóll geta gjörbreytt
herbergi.
Gólfspeglar eru ákaflega þægilegir þegar
föt eru mátuð. Gólfspegill á fæti er auk
þess fallegt húsgagn sem setur svip sinn á
herbergið.
Þá eru til litlir speglar með mikla stækkunarmöguleika sem er ákaflega
gott að hafa við höndina, til dæmis þegar augabrúnir eru plokkaðar eða
nostrað er við förðun.
Myndin er frá versluninni Pottery Barn í Bandaríkjunum, en hægt er að
versla hjá henni í gegnum netið til Íslands. Slóðin er Potterybarn.com og
gaman er að skoða hina ýmsu fallegu muni sem þar eru á boðstólum.
SPEGLAR FEGRA UMHVERFIÐ
Hin síðari ár hefur verið sérstaklega
vinsælt að hengja voldugan spegil
fyrir ofan sófa í stað málverks.
25% afsláttur í Skemmtigarðinum Smáralind á sunnudögum.
NÝTT OG ÖFLUGRA
FRÍÐINDAKERFI
sjálfvirkur afsláttur frá samstarfsaðilum
beint í vasa áskrifenda
25%
afsláttur
Virkjaðu kreditkortið þitt og annarra fjölskyldumeðlima á mínar síður
á www.stod2.is. Ört vaxandi hópur samstarfsaðila. Fylgstu með!