Fréttablaðið - 06.10.2012, Blaðsíða 86
6. október 2012 LAUGARDAGUR50
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
THEODÓR STEINAR MARINÓSSON
forstjóri,
andaðist á heimili sínu 3. október. Útförin fer
fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn
10. október kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Karitas eða önnur líknarfélög.
Magdalena S Elíasdóttir
Guðrún H Theodórsdóttir Jón Hilmarsson
Elías Theodórsson Ester Ólafsdóttir
Steinunn H Theodórsdóttir Örn Jónsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Okkar ástkæra fóstursystir og frænka,
HJÖRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Skógarbæ
23. september síðastliðinn. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á líknarstofnanir. Þökkum starfsfólki
Skógarbæjar fyrir einstaka umhyggju.
Ásdís Anna Ásmundsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS ÓSKARSSONAR
fyrrv. flugumferðarstjóra,
Kristnibraut 41, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11-E
og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi
fyrir nærgætna og góða umönnun.
Sigdís Sigmundsdóttir
Anna Björg Jónsdóttir Sigurður Hinrik Teitsson
Hafliði Jónsson Agnes Stefánsdóttir
Sandra Mjöll Sigurðardóttir Ásta Guðrún Sigurðardóttir
Sigdís Lind Sigurðardóttir
Þorsteinn Már Hafliðason Andrea Sif Hafliðadóttir
Óskar Páll Hafliðason
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
EVU ÚLFARSDÓTTUR LÍNDAL
Sléttuvegi 13, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Landspítala fyrir auðsýnda alúð og
umönnun, einkum starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi,
öldrunardeildar L 2 á Landakoti og öldrunardeildar B 3 í
Fossvogi.
Þórhildur Líndal Eiríkur Tómasson
Jón Úlfar Líndal
Björn Líndal Sólveig Eiríksdóttir
börn og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa,
HJARTAR JÓNASSONAR
bóksala,
áður til heimilis að Bjargartanga 18,
Mosfellsbæ.
Starfsfólk hjúkrunarheimilisins Eirar fær
sérstakar þakkir fyrir góða umönnun og hlýju.
Sturla Hjartarson
Hermann Hjartarson
Sóley Hjartardóttir Axel Blöndal
Oddvar Örn Hjartarson
og barnabörn.
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
VIÐAR KORNERUP-HANSEN
Birkihæð 2, Garðabæ,
lést í faðmi ástvina sinna á Landspítalanum
þann 3. október. Útförin mun fara fram í
kyrrþey að viðstaddri fjölskyldu og vinum.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningarsjóð krabbameinslækningadeildar Landspítalans.
Hólmfríður Egilsdóttir
Halldóra Viðarsdóttir Jóhann Úlfarsson
Kristín Viðarsdóttir Timothy H. Spanos
Björn Leví Viðarsson Ásta Lára Sigurðardóttir
Erik Hirt Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GÍSLÍNA MARGRÉT ÓSKARSDÓTTIR
Dvergagili 30, Akureyri,
lést þann 3. október. Útförin fer fram
frá Glerárkirkju fimmtudaginn 11. október
kl. 13.30.
Tryggvi Valsteinsson
Agnea Tryggvadóttir
Ólöf Tryggvadóttir Hermann Daðason
Jóhanna Jessen Rainer Jessen
Óskar Valsteinn Tryggvason
Júlíus Þór Tryggvason Gyða Jóna Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við
andlát og útför móðursystur okkar
og stjúpmóður,
KRISTÍNAR S. KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Heynesi,
Munkaþverárstræti 44, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heimahlynningar á Akureyri sem og
starfsfólks lyfja- og dagdeildar sjúkrahússins.
Óskar Líndal, Þórður Gíslason, Sesselja Gísladóttir,
Kristín Jónsdóttir, Rudolf Ágúst Jónsson,
Hermann Jón Jónsson, Karl Friedrick Jónsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og dóttir,
GUÐRÚN RÓSA GUÐMUNDSDÓTTIR
Vesturgötu 15,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
þriðjudaginn 2. október. Útförin fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju, þriðjudaginn 9. október
kl. 13.00.
Hólmar Magnússon
Anna Steinunn Hólmarsdóttir Björn Briem
Ingibjörg Lilja Hólmarsdóttir Sigurgeir Ásgeirsson
Ásberg Hólmarsson
barnabörn
Anna Karólína Gústafsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vináttu, hlýju og samúð við andlát
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
FREYJU ANTONSDÓTTUR
ljósmóður.
Hafsteinn Sigurjónsson
Ólöf G. Hafsteinsdóttir
Sólveig S. Hafsteinsdóttir Rannver H. Hannesson
Jórunn I. Hafsteinsdóttir Ólafur G. Magnússon
Marteinn Már Hafsteinsson
og barnabörn.
Ímyndunaraflinu verður fagnað í dag
þegar börn um allan heim munu hittast
til að búa til leikföng, hús, geimskip,
leiki og annað slíkt úr pappakössum.
Á Íslandi verður opið hús í Frístunda-
miðstöðinni Kringlumýri og eru öll
börn velkomin þangað til að taka þátt.
Að sögn Kristínar Evu Þórhallsdóttur
útvarpskonu er hugmyndin sú að börn
og foreldrar komi saman og hjálpist að
við að skapa eitthvað skemmtilegt úr
pappakössum. Eitthvað af pappaköss-
um og límbandi verður á staðnum, en
þó er mælst til þess að þátttakendur
kippi með sér einhverju að heiman,
til dæmis afgangspappa, skærum og
límbandi.
Það eru samtökin Imagination
Foundation sem standa fyrir þessum
degi, en þau voru stofnuð fyrir ári
þegar stuttmynd um 9 ára dreng í Los
Angeles sem hafði búið til heilan leik-
tækjasal úr pappakössum sló í gegn á
Internetinu og fór eins og eldur í sinu
í fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Í kjöl-
far athyglinnar var ákveðið að safna í
námssjóð handa drengnum, sem heit-
ir Caine, og tók það rúma tvo daga,
að sögn Kristínar Evu. Þá var ákveð-
ið að stofna samtökin og hvetja börn
um allan heim til að uppgötva hæfi-
leika sína með því að nota ímyndun-
araflið og námssjóður samtakanna
stefnir á að styrkja börn víða um
heim til náms. Á vefsíðunni Imagina-
tion.is er hægt að skoða hvað krakk-
arnir hafa smíðað úr pappakössum
og fá hugmyndir þaðan. Þar er einn-
ig hægt að sjá myndina um Caine og
skrá sig til þátttöku í viðburðinum á
Íslandi. Íslenskir krakkar geta einnig
sent myndir af sínum sköpunarverk-
um þangað.
Fjörið hefst í Kringlumýri klukkan
tólf og stendur til klukkan þrjú og eru
allir velkomnir.
FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐIN KRINGLUMÝRI: ALÞJÓÐLEGUR DAGUR ÍMYNDUNARAFLSINS
Smíðað úr pappakössum
til að efla sköpunargáfuna
PAPPAKASSASKÖPUN Ímyndunaraflið er það eina sem setur mörkin í sköpun barnanna á hinum alþjóðlega degi ímyndunaraflsins.
FJÖLBREYTNI
Það er hægt að
smíða ótrúleg-
ustu hluti úr
pappakössum.