Fréttablaðið - 06.10.2012, Blaðsíða 12
12 6. október 2012 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
U
mfangsmikil aðgerð lögreglu og tollgæzlu gegn glæpa-
samtökunum Outlaws á miðvikudagskvöldið ber vott
um að löggæzluyfirvöld hyggist ekki sýna þessum
félagsskap neina linkind.
Það er klárlega rétt stefna. Samtökin eru talin
ástunda skipulagða glæpastarfsemi á mörgum sviðum. Stað-
fest var í gær að ástæða þess að lögreglan gerði atlögu að fundi
Outlaws og stuðningsmanna þeirra var rökstuddur grunur um að
meðlimir samtakanna hygðust
ráðast inn á heimili tiltekinna
lögreglumanna til að koma fram
hefndum. Það er andstyggilegur
ásetningur og hárrétt af lögregl-
unni að láta til skarar skríða á
þessum tímapunkti.
Rassía lögreglunnar er ein
stærsta lögregluaðgerð sögunn-
ar á Íslandi og það er traustvekjandi að hún skyldi ganga jafn vel
og snurðulaust fyrir sig og raun ber vitni. Það breytir ekki því
að allir sem vilja á annað borð vita það, átta sig á að lögreglan
er vanbúin að taka á vaxandi skipulagðri glæpastarfsemi sem
skyldi.
Í öllum niðurskurðinum undanfarin ár hefur það gleymzt að
það er verkefni ríkisvaldsins númer eitt að gæta öryggis og eigna
borgaranna. Fækkun lögreglumanna veikir það hlutverk og er
ekki forsvaranleg til langframa.
Lögreglan hefur heldur ekki fengið þær heimildir sem hún þarf
til að fylgjast með skipulagðri glæpastarfsemi. Sú starfsemi er í
eðli sínu alþjóðleg og til að mæta henni þurfa löggæzlustofnanir
eins og lögregla og tollgæzla að eiga náið samstarf við yfirvöld í
nágrannalöndunum. Þá er auðvitað alveg fráleitt að lögreglan hér
hafi ekki sömu heimildir til að taka á meinsemdinni og lögregla í
nágrannalöndunum. Það getur leitt til þess að Ísland verði veik-
asti hlekkurinn í vörnunum; að glæpasamtök nýti sér glufurnar
sem þannig verða til.
Yfirlýsingar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að
hvergi verði slegið af gagnvart skipulögðum glæpasamtökum lofa
hins vegar góðu. Frumvarp ráðherrans til nýrra vopnalaga er í
þessum anda; þar er til dæmis lagt til að menn með tengsl við
skipulögð brotasamtök geti ekki fengið byssuleyfi. „Til þess eru
lögin að koma í veg fyrir að aðilar sem hafa ofbeldi gagnvart öðru
fólki á stefnuskránni fái ekki vopn í hendur. Að það sé refsivert
gagnvart þeim að hafa vopn,“ sagði Ögmundur í Fréttablaðinu í
gær.
Það á að styrkja lögregluna þannig að hún geti tekið á þeim
ófögnuði sem skipulögð glæpasamtök eru. Það á að halda áfram
að nýta til hins ýtrasta allar heimildir laga til að gera þeim lífið
leitt, til dæmis með því að meina erlendum félögum Outlaws og
annarra glæpaklúbba að koma inn í landið. Og það á að halda því
til streitu að banna starfsemi tiltekinna samtaka, sem tengjast
glæpastarfsemi.
Markmiðið á að vera að uppræta þetta ógeð úr samfélagi okkar.
Ímyndum okkur sem snöggv-ast verkalýðsfélag. Kjara-samningar þess eru lausir. Formaðurinn á í viðræðum
við atvinnurekendur um hófsam-
ar launahækkanir. Þær ganga vel.
Varaformaðurinn styður formann-
inn til slíkra samtala en gerir
honum um leið ljóst að hann muni
standa í vegi hvers þess samnings
sem út úr þeim komi. Hann telur
vænlegra að fara gömlu leiðina með
verkföllum og verðbólgu.
Leiðtogar verkalýðsfélagsins
eru eldri en tvævetur í baráttunni
og vita sem er að ágreiningur um
markmið og leið-
ir má ekki verða
til þess að sundra
einingu þeirra
og stöðu. Þeir
sammælast því
um að ræða ekki
við félagsmenn
sína um leiðir til
kjarabóta.
Eina umræðu-
efnið á næsta
félagsfundi er því hugmynd um
ýmiss konar breytingar á sam-
þykktum félagsins sem er rökstudd
með nokkrum sígildum slagorðum
frá árdögum stéttabaráttunnar.
Gamli kjarninn upplyftist í and-
anum en þorri félagsmanna situr
heima og veit ekki sitt rjúkandi ráð.
Ætli flestir myndu ekki segja að
slík ímyndun væri fjarstæðukennd
í nútímanum. Engum liðist slíkt
vinnulag. Víst er að þetta ímyndaða
verkalýðsfélag gæti ekki bætt hag
félagsmanna sinna.
Hvað sem því líður er það svo
að draga þarf upp óraunverulega
ímynd af þessu tagi til að finna hlið-
stæðu við þann veruleika sem menn
horfa á við stjórn landsins um þess-
ar mundir.
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
Upplyfting andans!
Viðfangsefni á sviði efna-hagsmála og utanríkis-mála eru svo samofin að þau verða ekki í sundur
greind. Aðildin að Atlantshafs-
bandalaginu var lengi vel grund-
völlur utanríkisstefnunnar. Í
nærri tvo áratugi hefur aðildin að
innri markaði Evrópusambands-
ins verið hvort tveggja í senn:
Uppistaða utanríkisstefnunnar og
umgjörð efnahagslífsins.
Með öðrum orðum: Efnahags-
stefnan byggist á virkri þátt-
töku í samstarfi Evrópuþjóða um
frjáls viðskipti með vörur og þjón-
ustu, frjálst streymi fjármagns og
frelsi fólks til búsetu og atvinnu.
Um þessar undirstöður efnahags-
starfseminnar gilda sameiginleg-
ar reglur. Á þeim byggist atvinnu-
frelsið.
Í ríkisstjórninni hefur Sam-
fylkingin með höndum viðræður
við Evrópusambandið um frek-
ari dýpkun Evrópusamvinnunn-
ar til að verja viðskiptafrelsið og
tryggja að Ísland standi jafnfætis
öðrum þjóðum. VG ber pólitíska
ábyrgð á þeim viðræðum um leið
og flokkurinn hefur lýst því yfir
að hann muni snúast gegn hverjum
þeim samningi sem þær kunna að
leiða til.
Það var unnt að hefja aðildar-
viðræður á þessum pólitísku for-
sendum. Öllum má hins vegar vera
ljóst að útilokað er að ljúka þeim
að óbreyttu. Verkalýðsforingjar
þurfa að ræða við fólkið sitt sam-
hliða viðræðum við atvinnurek-
endur þegar kjarasamningar eru
á döfinni. Eins er með ríkisstjórn-
ina. Hún þarf samtímis samtölum í
Brussel að eiga viðræður við fólkið
í landinu um samningana.
Þá pólitísku forystu getur ríkis-
stjórnin ekki veitt fyrir þá sök að
stjórnarflokkarnir vilja fara hvor í
sína áttina. Þingmenn Samfylking-
arinnar vilja ekki horfast í augu
við þann veruleika. Þeir eru því
uppteknir við að gera aukaatriði að
aðalatriðum í umræðunni. Stjórn-
arflokkarnir hafa því brugðist
þeim fyrirheitum sem þeir gáfu,
hvor með sínum hætti. Stjórnar-
andstöðuflokkarnir vilja svo báðir
útiloka fyrir fram að Ísland taki
upp stöðugri gjaldmiðil.
Aukaatriði verða aðalatriði
Að öllu óbreyttu á þjóðin því ekki annarra kosta völ en að rífa hár sitt. Sættir fólk sig við það?
Hin spurningin er hvort ekki er
kominn tími til að finna leiðir til
að brúa þau pólitísku bil sem nú
hindra að mynda megi ríkisstjórn
á næsta kjörtímabili sem geti
veitt raunhæfa pólitíska forystu.
Í vikunni kom saman fólk úr
röðum verkalýðsfélaga, sam-
taka atvinnufyrirtækja og ólíkra
stjórnmálaflokka. Boðskapur
fundarins var skýr: Það gengur
ekki að klofin ríkisstjórn eigi í
viðræðum um aðild að Evrópu-
sambandinu. Það stenst ekki
að boða í ríkisstjórn stöðugan
gjaldmiðil en framfylgja stefnu í
efnahags- og atvinnumálum sem
útilokar þann kost. Það kemur
ekki heim og saman í stjórnar-
andstöðu að boða breytta efna-
hagsstefnu en hafna fyrir fram
möguleikanum á upptöku stöðugs
gjaldmiðils.
Í þessum hópi voru stjórnend-
ur margra framsæknustu fyr-
irtækja landsins sem eiga allt
undir stöðugleika og jafnri sam-
keppnisstöðu. Þarna voru for-
ystumenn launafólksins sem
starfar í þessum fyrirtækjum.
Það er óvenjulegt að fólk úr svo
ólíkum áttum þingi í þeim til-
gangi að senda frá sér sameigin-
legan boðskap. Það gat því aðeins
gerst að alvaran er mikil og und-
iraldan þung.
Efnahagsstefnunni þarf að
breyta strax. Síðan þarf að gefa
rýmri tíma fyrir aðildarviðræð-
urnar. Pólitíkin skuldar svar við
þessu ákalli.
Í skuld með svar
Þarfar og tímabærar aðgerðir
lögreglunnar gegn glæpasamtökum:
Upprætum ógeðið