Fréttablaðið - 06.10.2012, Qupperneq 38
6. október 2012 LAUGARDAGUR38
Fjölskylduvænir réttir kvölds, morgna og um miðjan dag …
1 www.bakersroyale.com Þetta blogg er í
miklu uppáhaldi og ekki
að ástæðulausu. Naomi,
sem heldur blogginu úti,
heillar með skemmti-
legum texta, girnilegum
uppskriftum og dásam-
lega fallegum myndum.
Mig langar að baka allt
sem hún setur inn og læt
enga færslu fram hjá mér
fara.
2 www.call-me-cupcake.blogspot.com Æðis-
legt blogg sem er skrifað
bæði á sænsku og ensku.
Kökurnar eru jafn glæsi-
legar og þær eru góðar
og myndirnar eru sérlega
fallegar. Ég missi ekki af
neinu sem er sett inn.
3 www.loveandoliveoil.com Blogg sem er búið
að vera í uppáhaldi síðan
ég bakaði æðislega góða
súkkulaði- og bananaböku
af því. Fallegar myndir og
spennandi uppskriftir.
4 www.joythebaker.com Skemmtilegt
blogg, girnilegar upp-
skriftir og góðar myndir.
5 www.smittenkitchen.com Eflaust eitt
stærsta og þekktasta
matarblogg í heiminum.
Mér finnst þetta blogg
hafa allt sem til þarf,
góðar myndir, skemmti-
legan texta og frábærar
uppskriftir.
Bloggsíður í sérstöku uppáhaldi hjá Svövu
ELDHÚSIÐ ER MIÐPUNKTUR HEIMILISINS Tvíburasynir Svövu, Jakob og Gunnar, leggja hér lokahönd á kanilsnúðaköku sem er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. MYND/ÖRLYGUR SMÁRI
Þ
að má segja að ég
hafi fengið matar-
áhugann með móður-
mjólkinni. Mamma
hefur mikið dálæti á
eldamennsku,“ segir
Svava Gunnarsdóttir, sem held-
ur út vinsælu matarbloggi, Ljúf-
meti og lekkerheit. „Ég ræð ríkj-
um í eldhúsinu og hef frá því að ég
eignaðist mitt heimili sinnt elda-
mennskunni á heimilinu með mik-
illi gleði. Þessu fylgir að ég hef
mjög mikinn áhuga á því að skoða
matarblogg og matreiðslubækur.“
Svava, sem á þrjú börn ásamt
eiginmanni sínum Örlygi Smára,
hina fjórtán ára Malín og tví-
burana Gunnar og Jakob, vandi
sig á það að skipuleggja matseld-
ina viku fram í tímann. „Mér þykir
svo gott að vera bara búin að því
að kaupa inn fyrir vikuna og þurfa
ekki að koma við í búð eftir vinnu.
Fyrir utan að það er hagstæðara að
skipuleggja sig,“ segir Svava.
Eitt er að hafa áhuga á því að
elda, annað að blogga um mat-
reiðsluna. Hvernig kom bloggsíðan
til? „Maðurinn minn átti eiginlega
hugmyndina að henni. Og það tók
hann nokkra mánuði að tala mig
til. Svo eitt kvöldið var hann bara
búinn að gera bloggsíðu, spurði
mig hvað hún ætti að heita og
þannig fór síðan í loftið. Svo kom
á daginn að mér þykir þetta mjög
skemmtilegt.“
Viðbrögðin hafa verið mjög góð.
„Fyrsta daginn sem hún kom í loft-
ið fékk ég 40 heimsóknir inn á síð-
una og mér fannst það bara nokkuð
gott. En núna skipta heimsóknirnar
þúsundum á hverjum degi,“ segir
Svava. „Ég elda fjölskylduvænan
mat sem hentar öllum og svo leit-
ast ég við að hafa hráefnið ekki of
dýrt og réttina ekki of flókna.“
Eldhúsið er vinsælasti staður-
inn hjá Svövu og fjölskyldu. Þar
er lært, leikið og auðvitað eldað.
„Matartíminn er svo heilög stund
hjá okkur. Þá setjumst við öll niður,
slökkvum á sjónvarpinu, kveikjum
á kertum og njótum stundarinnar.
Við sitjum yfirleitt heillengi og
spjöllum um daginn,“ segir Svava
að lokum.
Ræður ríkjum í eldhúsinu
Svava Gunnarsdóttir heldur úti síðunni Ljúfmeti og lekkerheit. Fyrsta daginn sóttu 40 manns síðuna heim. Nú skipta þeir
þúsundum sem kíkja á síðuna, þar sem fjölskylduvænar uppskriftir eru í fyrirrúmi. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Svövu.
Granóla með pekanhnetum
Þetta granóla er í algjöru uppáhaldi hjá okkur. Á morgnana
bætum við rúsínum við það og setjum út á ab-mjólkina.
Um helgar setjum við það út á gríska jógúrt með berjum og
hlynsýrópi og á kvöldin borðar maðurinn minn það sem snakk.
3 bollar tröllahafrar
1 bolli grófsaxaðar pekan-
hnetur
2 tsk. kanill
¼ tsk. salt
½ bolli ljós púðursykur
½ bolli vatn
2 msk. bragðlaus olía
1 msk. vanillusykur
Hitið ofninn í 150° og leggið
bökunarpappír á tvær ofnplötur.
Blandið tröllahöfrum, pekan-
hnetum, kanil, vanillusykri og
salti í skál. Blandið ljósum
púðursykri og ¼ bolla af vatni
saman í pott og hitið að suðu
yfir miðlungsháum hita. Hrærið
í þar til sykurinn hefur bráðnað.
Bætið olíunni saman við. Takið
pottinn af hitanum og hellið yfir
þurrefnin. Hrærið í blöndunni
þar til allt hefur blandast vel.
Skiptið blöndunni á bökunar-
plöturnar og dreifið úr þeim.
Bakið í 15 mínútur, hrærið í
granólanu og færið plöturnar
þannig að sú sem var ofar í ofn-
inum fari fyrir neðan og öfugt.
Bakið áfram í 10-15 mínútur til
viðbótar eða þar til granólað
er komið með fallegan lit.
Tröllahafrarnir geta verið mjúkir
þegar þeir koma úr ofninum
en þeir verða stökkir þegar
þeir kólna. Látið kólna alveg á
bökunarplötunum.
Ofnbakaðar kjötbollur
Eftir að hafa búið í Svíþjóð fáum við reglulega löngun í
kjötbollur. Heimagerðar kjötbollur eru langbestar og helst
með alvöru kartöflumús og rjómasósu. Þessar kjötbollur eru í
uppáhaldi hjá okkur. Þær eru bæði einfaldar og stórgóðar.
450 g nautahakk
2 egg
½ bolli mjólk
½ bolli rifinn
parmesanostur
1 bolli brauð-
mylsna
1 lítill laukur, hakk-
aður smátt (ég
mauka hann með
töfrasprota)
2 pressuð
hvítlauksrif
½ tsk. oreganó
1 tsk. salt
Nýmalaður pipar
¼ bolli hökkuð fersk basilíka
eða u.þ.b. ½ msk. þurrkuð
Hrærið eggjum
og mjólk
saman og
setjið brauð-
mylsnuna út í.
Setjið öll hráefnin
saman í skál og
bætið eggjablönd-
unni við. Blandið öllu
vel saman með höndunum
eða með hnoðaranum á
hrærivél. Mótið bollur og
raðið á smjörpappírsklædda
bökunarplötu.
Bakið við 180° í u.þ.b. 30
mínútur eða þar til bollurnar
eru eldaðar í gegn og komnar
með fallega húð.
Mjúk kanilsnúðakaka
Mér þykir mikill fjársjóður að eiga þessa uppskrift. Kakan
er svo mjúk og góð að það er draumi líkast. Ég baka hana
reglulega og hún klárast alltaf eins og skot. Hrein dásemd.
175 g smjör
2½ dl sykur
2 egg
3 dl sýrður rjómi eða súrmjólk
4½ dl hveiti
2 tsk. vanillusykur
1 msk. lyftiduft
Smá salt
Slóðin á síðu Svövu er ljufmeti.com og á Facebook er
hægt að fylgjast með henni á Facebook.com/ljufmeti
Fylling
1 dl sykur
3 msk. kanill
Yfir kökuna
2 msk. smjör
Hitið ofninn í 175°. Hrærið
smjör og sykur mjúkt og ljóst.
Bætið eggjunum saman við,
einu í einu, og þar á eftir sýrða
rjómanum. Bætið þurrefnunum
við og hrærið vel saman.
Blandið saman í sérskál sykri
og kanil í fyllinguna. Smyrjið
formkökuform. Látið helming-
inn af deiginu í formið, stráið
helmingnum af fyllingunni
yfir, látið seinni helminginn
af deiginu yfir og endið á að
strá restinni af fyllingunni yfir
kökuna. Leggið smjörklípur
yfir kökuna og bakið í 45-60
mínútur (eftir stærð á formi).