Fréttablaðið - 06.10.2012, Page 46

Fréttablaðið - 06.10.2012, Page 46
FÓLK| SKEMMTIKRAFTUR AF GUÐS NÁÐ Svavar heitinn Gestsson var einn ágætasti útvarpsmaður sem þjóðin hefur átt. Í kvöld og næstu 20 laugardagskvöld gefst tækifæri til að hlusta á endurflutning þátta hans á Rás 1. útvarpsþætti. Það var í anda sams konar sönghóps sem var hrikalega vinsæll í bandarísku sjónvarpi og hét Midge Millers Singers en syrpurnar urðu svo vinsælar að Svavar ákvað að gefa þær út á plötu.” Jónatan segir Svavar hafa verið hörku- duglegan og merkilegan mann; afkasta- mikinn skemmtikraft á mörgum sviðum og vinsælan bingóstjórnanda. „Svavar varð formaður Félags ís- lenskra hljómlistamanna (FÍH) áður en hann varð tvítugur, þá nýkominn úr námi hjá Juilliard í New York. Þangað fóru þeir KK saman í nám og stofnuðu KK Sextett þegar þeir komu heim. Skömmu síðar rak KK Svavar úr hljómsveitinni því báðir vildu ráða og svoleiðis gengur aldrei upp. Þá stofnaði Svavar Hljóm- sveit Svavars Gests sem varð ein af allra vinsælustu hljómsveitum landsins.“ Um næstu helgi verða haldnir minn- ingartónleikar í Laugardalshöll um söng- konuna Ellý Vilhjálms, eiginkonu Svavars Gests. Ellý lést árið 1995 og Svavar ári síðar. Bæði eru aftur í eldlínunni nú; hún vegna tónleikanna og ævisögu sem kem- ur út fyrir jólin og hann vegna endur- flutnings þáttanna á Rás 1. En hvað ætlar Jónatan að gera um helgina, fyrir utan að hlusta á Svavar? „Í dag verð ég kynnir á trommu- hátíð FÍH og á morgun ætlum við hjónin í haustlitaferð til Þingvalla. Við erum dugleg að fara á söfn um helgar og njóta útivistar þess á milli,“ segir Jónatan, sem er iðulega leiðsögumaður um Reykjanes og höfuðborgarsvæðið um helgar. „Ég spila ekki sjálfur á trommur en hef gaman af nördalegu starfi kynnisins. Í FÍH verður opið hús fyrir alla sem vilja komast í tæri við lifandi tónlist og bestu trommara landsins og í dag heiðrum við Pétur Östlund sem kemur sérstaklega frá Svíþjóð. Hann er einn af okkar bestu trommurum fyrr og síðar.“ (Sjá nánar á www.trommari.is.) Jónatan heldur utan um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hjá RÚV. „Skilafrestur laga í forkeppnina rennur út á miðnætti á mánudagskvöld. Allir geta sent inn lag og eiga sömu mögu- leika,“ segir Jónatan um keppnina sem hefst í janúar en úrslitakvöldið verður 9. febrúar á nýju ári. Jónatan vaknar með hlustendum Rásar eitt aðra hvora viku frá klukkan hálfsjö til átta á morgnana. „Morgunstund gefur gull í mund og mér finnst gott að vera í útvarpinu svo árla dags. Ég vakna hvort eð er klukkan fjögur á morgnana og hefur lengi þótt duga að sofa í fjóra til fimm tíma að nóttu. Ætli þetta sé ekki í ættinni? Pabbi hefur alltaf verið árrisull og vinnusamur, en sennilega er þetta bara gamla bænda- blóðið.“ ■ thordis@365.is ■ FRAMHALD AF FORSÍÐU FJÖLHÆFUR Jónatan er með mörg járn í eldinum. HELGIN Göngum til góðs er söfnun sem Rauði krossinn stendur fyrir og munu sjálf- boðaliðar að öllum líkindum banka á dyr landsmanna í dag. Þórir Guð- mundsson, sviðsstjóri Rauða krossins, var spurður nokkurra spurninga sem margir spyrja sig þegar beðið er um stuðning. Er verið að safna fyrir einhverju sérstöku? Við söfnum fyrir börnum í neyð. Núna er Rauði krossinn á Ís- landi að styðja börn sem búa við afar erfiðar aðstæður í Sómalíu, Malaví, Síerra Leóne, Gambíu, Haítí, Palestínu og Hvíta-Rússlandi. Eitt af hverjum átta börnum í Afríku lifir ekki fram að fimmta afmælisdegi sínum þannig að þörfin er knýjandi. Sums staðar er bein- línis verið að bjarga börnum frá hungri en annars staðar er verið að gefa þeim tækifæri til að komast út úr aðstæðum vonleysis til bjargálna. Er þetta árleg söfnun? Við Göngum til góðs annað hvert ár og þetta er í sjöunda sinn. Gengur vel að fá fólk til að ganga til góðs? Já, svo sannarlega, og margar fjölskyldur hafa það nánast sem lífsstíl að ganga saman um hverfið sitt fyrir Rauða krossinn annað hvert ár. Núna eru starfsmenn ýmissa fyrirtækja að hópa sig saman, saumaklúbbar, vina- hópar og aðrir. Við þurfum þrjú þúsund sjálfboðaliða til að geta boðið öllum heimilum á landinu að styðja gott mál- efni. Eitthvað sérstakt sem þarf að minna á? Þetta gengur með góða skapinu! Þrátt fyrir allt þá höfum við Íslendingar það almennt gott og viljum hjálpa öðrum. Getur fólk greitt með korti? Já, með því að fylla út greiðslukortaseðla sem sjálfboðaliðar eru með. Sjálfboðaliðar á fjölförnum stöðum verða með korta- vélar. GENGIÐ TIL GÓÐS FYRIR BÖRN Rauði krossinn stendur fyrir söfnun í dag er sjálfboðaliðar ganga í hús. Safnað er fyrir börn í Afríku, Haítí, Palestínu og Hvíta-Rússlandi. GÓÐVERK Þórir Guðmunds- son segir að það þurfi 3.000 sjálfboðaliða í söfnunina. 15% AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Skipholti 29b • S. 551 0770 Karlakórinn Stefnir í Mosfellsbæ vill bæta við söngmönnum Söngskrá Stefnis byggir á metnaði og skemmtilegu lagavali. Söngstjórinn okkar, Julian Hewlett, tók við kórnum í haust og verður með okkur í leik og starfi í vetur. Æfingar eru á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í Krikaskóla. Raddæfingar eru annað hvert mánudagskvöld á sama tíma. Fyrirhuguð er söngferð til Færeyja í vor. Nýliðar borga engin félagsgjöld fyrsta árið. Við tökum vel á móti þér! Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.