Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 28
28 18. október 2012 FIMMTUDAGUR
Í kosningum þeim sem fram fara næstkomandi laugardag,
þann 20. október, um tillögur
stjórnlagaráðs að nýrri stjórn-
arskrá, hljóðar fyrsta spurning-
in sem kosið er um þannig:
Vilt þú að tillögur stjórnlaga-
ráðs verði lagðar til grundvall-
ar frumvarpi að nýrri stjórnar-
skrá?
Einhverjir kjósenda vilja ekki
sjá neina endurskoðun á stjórn-
arskránni og segja einfaldlega
nei eða tjá afstöðu sína með
því að sitja heima. Síðan eru
þeir án efa margir sem hugnast
gæti einhver ákvæði í tillögum
stjórnlagaráðs en greiða engu
að síður gegn tillögunum, svo
ekki megi túlka atkvæði þeirra
sem stuðning við einhverja
þvælu.
Segi meirihluti kjósenda nei
við þessari spurningu, er ekki
hægt að túlka þá niðurstöðu
öðruvísi en svo að ekkert af
þeim atriðum sem lögð eru til í
hugmyndum stjórnlagaráðsins
eigi að koma við sögu í hugs-
anlegri endurskoðun stjórnar-
skrárinnar, jafnvel þótt sumir
þeirra sem svo greiddu atkvæði
gætu hugsað sér að styðja eitt-
hvað í tillögunum. Sama má
í raun segja ef þeir sem segja
nei og þeir sem sitja heima
eru meirihluti kosningabærra.
Málið er þá komið á upphafsreit.
Ef meirihluti kjósenda segir
já við þessari spurningu, hvaða
ályktun er hægt að draga af
því? Úr tveimur mikilvægum
spurningum þarf þá að leysa.
1. Er hægt að slá því föstu,
að þeir sem segi já við þessari
spurningu séu að ljá hverri ein-
ustu grein tillagnanna atkvæði
sitt (undanskilin þau álita-
efni sem greitt er sérstaklega
atkvæði um) eða er hugsanlegt
að með atkvæði sínu sé viðkom-
andi aðeins að lýsa yfir stuðn-
ingi við hluta tillagnanna?
Út frá sjónarmiðum aðferða-
fræði og almennri rökhyggju
er ógerlegt að segja til um það
hvert ef eitthvert af ákvæð-
um tillagnanna nýtur almenns
stuðnings. Miðað við það hversu
margar greinar er um að ræða
og sem taka á mismunandi
atriðum er augljóst að ekki er
hægt að lesa út úr já-atkvæðum
þann skilning að allar greinar
tillagnanna njóti meirihluta-
stuðnings þjóðarinnar. Vega-
nestið fyrir tilvonandi höfunda
frumvarps að stjórnarskrá er
því lítið sem ekkert.
2. Hvað þýðir orðasambandið
„að leggja til grundvallar“?
Þorvaldur Gylfason hagfræði-
prófessor og fulltrúi í stjórn-
lagaráði hefur látið hafa það
eftir sér að verði niðurstaðan já
eigi frumvarpið að fara orðrétt í
gegnum Alþingi. Þetta er alger-
lega fráleitt því það eina sem er
alveg ljóst af orðalagi spurning-
arinnar er að tillögur stjórnlaga-
ráðs eiga ekki að verða lagðar
fram í óbreyttri mynd sem frum-
varp fyrir Alþingi, því þá hefði
verið spurt hvort leggja ætti til-
lögurnar fram sem frumvarp.
Formaður stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis kvað
hins vegar upp úr með það að
nefndin ætti að leggja það fram
efnislega eins fyrir Alþingi, þó
orðalag gæti tekið breytingum.
Orðið grundvöllur er loðið og
teygjanlegt hugtak. Þannig er
það mjög algengt í samningum
eða samskiptum aðila þar sem
setja þarf saman texta, að einn
leggur fram uppkast eða hug-
myndir sem menn verða ásátt-
ir um að geti verið grunnur eða
grundvöllur að samningi eða
reglum. Slíkur grunnur getur
síðan tekið margháttuðum
breytingum, sumu er breytt að
miklu leyti en öðru í litlu, eitt
er tekið út á meðan öðru er bætt
inn í. Með hliðsjón af almennri
málvitund og beitingu orðasam-
bandsins „að leggja til grund-
vallar“ er því ljóst að tillögur
stjórnarskrárnefndar eru ein-
ungis uppkast eða hugmyndir
sem algerlega á eftir að vinna
nánar, áður en frumvarp er lagt
fyrir Alþingi.
Síðan má ekki gleyma því
að samkvæmt orðanna hljóðan
snýst spurningin aðeins um það
hvort leggja eigi tillögur stjórn-
lagaráðs sem frumvarp fyrir
Alþingi. Ekki er spurt að því
hvort kjósandinn vilji að tillög-
urnar eða einstök ákvæði þeirra
eigi að fara inn í stjórnarskrá.
Alþingi hefur skv. spurningunni
sem kosið er um algerlega
frjálsar hendur.
Það kemur spánskt fyrir sjón-
ir að verk sem rétt er hafið skuli
nú lagt fyrir kjósendur án þess
að atkvæði þeirra hafi nokkra
einustu þýðingu, hvorki laga-
lega né pólitískt, og veitir lög-
gjafanum litla sem enga vís-
bendingu um þjóðarvilja. Að
greiða atkvæði um þessar mis-
gáfulegu tillögur stjórnlagaráðs
er því tímaeyðsla og það sem
verra er, sóun á almannafé.
Að leggja til
grundvallar
Í aðdraganda þjóðaratkvæða-greiðslunnar 20. október næst-
komandi fer nú um þjóðfélagið
viðamikil og efnisrík umræða
um stjórnarskrána, grundvallar-
lög lýðveldisins. Loksins. Við lýð-
veldistökuna árið 1944 var í nafni
samstöðu ákveðið að bíða með
heildarendurskoðun á þeim grund-
vallarlögum sem dönsku nýlendu-
herrarnir höfðu fært okkur, svo
deilur um einstök stjórnarskrár-
ákvæði myndu ekki skyggja á lýð-
veldishátíðina á Þingvöllum – til
þess að „fylkja þjóðinni einhuga
um stofnun lýðveldisins“ eins og
sagði í skýringum við frumvarpið.
Líkt og fram kemur í sérfræðiriti
sendifulltrúans Kristjáns Andra
Stefánssonar og prófessoranna
Eiríks Tómassonar, Bjargar Thor-
arensen og Gunnars Helga Krist-
inssonar, Ágripi af þróun stjórnar-
skrárinnar (2005), ákvað Alþingi
þá að breyta fullveldisstjórnar-
skránni með afbrigðilegum hætti,
þ.e. með samþykkt eins þings og
meirihluta kosningarbærra manna
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem var
á skjön við ákvæði gildandi stjórn-
arskrár.
Þó svo að sú gamla danska, sem
lítillega hafði breyst við heima-
stjórnina árið 1904 og í kjölfar
fullveldis árið 1918 (fullveldis-
stjórnarskráin tók gildi 1920), end-
urspeglaði engan veginn þá grund-
vallarbreytingu sem orðið hafði
við umskiptin frá einveldi til lýð-
ræðis samþykkti Alþingi af þess-
um sökum að við lýðveldistökuna
væri „óheimilt að gera með þess-
um hætti nokkrar aðrar breyting-
ar á stjórnarskránni en þær, sem
beinlínis leiðir af sambandsslitum
við Danmörku og því, að Íslend-
ingar taka með stofnun lýðveldis
til fullnustu í sínar hendur æðsta
vald í málefnum ríkisins“. Í sam-
ræmi við þetta voru ekki aðrar
breytingar gerðar en að ákvæði
um konung voru felld út fyrir
ákvæði um forseta.
Heit um heildarendurskoðun
Fyrirhugað var að strax í kjölfarið
myndu Íslendingar setja sér sína
eigin stjórnarskrá, eins og til að
mynda kom fram í áliti stjórnar-
skrárnefndar þingsins sem þá
starfaði, þar sem sagði að áfram
yrði unnið „að heildarendurskoð-
un stjórnarskrárinnar“. Í stjórn-
arsáttmála nýsköpunarstjórnar-
innar, sem tók við völdum haustið
1944, var róttækum breytingum á
stjórnarskrá lofað „eigi síðar en
síðari hluta næsta vetrar“. Síðan
eru liðin mörg ár eins og segir í
laginu.
Það var ekki fyrr en við þó
nokkurn óróa í samfélaginu í kjöl-
far efnahagsáfalls að Alþingi fann
sumarið 2010 þá skynsömu leið út
úr ógöngunum að boða til þúsund
manna þjóðfundar, skipa valin-
kunna sérfræðinga í stjórnlaga-
nefnd og efna til allsherjarkjörs til
stjórnlagaþings að skriður komst
á málið. Og nú liggur frumvarp
stjórnlagaráðs loksins fyrir eftir
allan þennan feril.
Hver endurskoðunartilraunin
á fætur annarri hafði fram að því
strandað á sérhagsmunum stjórn-
málamanna. Nokkrar minni hátt-
ar breytingar hafa að vísu verið
gerðar auk nýs mannréttinda-
kafla árið 1995. Stjórnarskrár-
breytingin 1959 var barin í gegn
í bullandi ágreiningi svo þekkt
orðalag sé notað, líkt og í eiðrofs-
málinu svokallaða árið 1942. Hinn
bitri sannleikur er sá að íslenskir
stjórnmálamenn hafa aldrei náð
neinni sátt í málinu og munu ekki
gera það í fyrirsjáanlegri framtíð
klúðrist málið nú.
Við meðmælum öll
Aðferðin við yfirstandandi endur-
skoðun stjórnarskrárinnar varð
ekki til í tómarúmi og á sér meðal
annars fyrirmynd í stjórnlaga-
þinginu í Lærða skólanum árið
1851 sem starfaði einmitt undir
nafni þjóðfundar. Þá var það
útsendari Danakonungs, Trampe
greifi, sem í skjóli vopnavalds
stöðvaði Íslendinga í að setja sér
sína eigin stjórnarskrá. Þeirri
valdníðslu mótmælti Jón Sigurðs-
son með frægum orðum: „Við mót-
mælum allir.“ Nú, rúmlega einni
og hálfri öld síðar, fá Íslendingar
loksins að segja álit sitt á nýrri og
framsækinni íslenskri stjórnar-
skrá.
Loksins fáum við að kjósa
Innri markaður Evrópu á 20 ára afmæli um þessar mundir. Árið
1993 varð Ísland fullgildur aðili að
markaðnum með EES-samningum.
Aðild Íslands var umdeild á sínum
tíma og þótti mörgum víst að hún
fæli í sér talsvert afsal fullveld-
is og að margvísleg atvinnustarf-
semi á Íslandi yrði undir í frjálsri
samkeppni á vissum sviðum. Það
reyndist rétt að nokkru leyti. Á móti
kemur að þær breytingar sem orðið
hafa á síðastliðnum tveimur ára-
tugum hafa gjörbreytt íslensku við-
skiptaumhverfi til hins betra og við
orðið samkeppnishæfari á nýjum
sviðum.
Þrátt fyrir djúpa efnahagskreppu
á Íslandi síðustu árin er ekki hægt
að líta fram hjá þeirri staðreynd að
árlegur hagvöxtur hefur verið tæp
3% frá því Ísland tengdist innri
markaðnum. Aukinn útflutning-
ur og alþjóðavæðing, fjölbreyttara
atvinnulíf og efnahagslegar fram-
farir er ekki síst að þakka þeirri
umgjörð sem aðild að innri mark-
aði Evrópu hefur fært okkur. Til-
vist innri markaðarins hefur raunar
breytt því hvernig viðskipti eiga sér
stað, hvernig ferðalögum og námi er
háttað og hvernig margvísleg lög-
gjöf er innleidd.
Fyrir aðild skuldbindum við
okkur nefnilega til að taka upp alla
löggjöf ESB sem varðar innri mark-
aðinn fyrir utan sjávarútvegs- og
landbúnaðarmál. Þetta þýðir að við-
skiptaumhverfi okkar er að mestu
leyti það sama og hjá helstu við-
skiptavinum og keppinautum okkar.
Þetta kallar á visst valdaframsal en
á móti fáum við aðgang að vandaðri
lagasetningu en við sjálf hefðum
ráðrúm til að hanna.
Í raun má segja að með aðgangi
að innri markaðnum hafi eitt
stærsta viðskiptatækifæri okkar
fram að þessu verið opnað. Erfitt er
að ímynda sér íslenskt atvinnulíf í
dag ef við værum ekki að starfa í
sömu umgjörð og löndin í kringum
okkur. Innri markaðurinn felur í
sér að viðskipti með vörur og þjón-
ustu, fjármagn og flutningur fólks
er frjáls í 27 aðildarríkjum svæðis-
ins þar sem um 500 milljónir manna
búa og 23 milljónir fyrirtækja eru
starfrækt. Þrátt fyrir þetta eru
miklar áskoranir fram undan.
Hætt er við að innri markaðurinn
sjálfur verði fórnarlamb kreppunn-
ar sem nú ríkir enda þekkt að við-
brögð sumra ríkja við kreppu eru að
draga saman seglin og byggja varn-
armúra í kringum sig. En það mun
ekki skila neinum árangri fyrir íbúa
svæðisins í heild sinni enda mun
hvers kyns verndarstefna og ein-
angrun draga úr umsvifum efna-
hagslífsins.
Aukið frjálsræði og flæði í við-
skiptum samhliða afnámi óæski-
legra viðskiptahindrana er ævin-
lega uppskrift að aukinni hagsæld.
Af þessum sökum felst leið Evrópu
út úr kreppunni m.a. í að styrkja
enn frekar innri markaðinn sem nú
fagnar 20 ára afmæli sínu.
Aukið frjálsræði og afnám
viðskiptahindrana
Ný stjórnarskrá
Sveinn Andri
Sveinsson
hæstaréttarlögmaður
Ný stjórnarskrá
Eiríkur
Bergmann
dósent
Viðskipti
Bjarni Már Gylfason
hagfræðingur Samtaka
iðnaðarins og fulltrúi
Íslands í ráðgjafanefnd
EFTA/EES
. 9. nóv. kl. 17.00
. 10. nóv. kl. 14.00 / 16.00
. 11. nóv. kl. 14.00 / 16.00
. 23. nóv. kl. 17.00
. 24. nóv. kl. 14.00 / 16.00
. 25. nóv. kl. 14.00 / 16.00
. 30. nóv. kl. 17.00
. 1. des. kl. 14.00 / 16.00
. 2. des. kl. 14.00 / 16.00
Ö
Ö
aðeins þessar 3 sýningarhelgar!
Fös
Lau
Sun
Fös
Lau
Sun
Fös
Lau
Sun
Ath.
BARNALEIKSÝNING
ÁRSINS 2012
Miðasala hafin á midi.is Nánari upplýsingar á tiufingur.is
SÝNINGAR Í NORRÆNA HÚSINU
Í NÓVEMBER OG DESEMBER 2012
E.B. Fbl I.G. Mbl J.V.J. DV