Fréttablaðið - 18.10.2012, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGKarlmenn FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 20124
150 MÍNÚTNA
HREYFING Á VIKU
Alþjóða heilbrigðismálastofn-
unin mælir með því að fólk eldra
en 65 ára hreyfi sig í 150 mínútur
á viku. Mínútunum á helst að
skipta niður á daga og þarf hver
hreyfingarlota að taka að minnsta
kosti tíu mínútur og fela í sér tals-
verða áreynslu. Oft er mælt með
þrjátíu mínútum á dag, fimm
sinnum í viku.
Sýnt hefur verið fram á ávinning
þess að eldra fólk fylgi þessum
leiðbeiningum í fjölmörgum
rannsóknum. Það hefur almennt
lægri dánartíðni, fær síður
hjartaáföll, heilablóðföll, háan
blóðþrýsting, sykursýki tvö,
ristilkrabbamein og
brjóstakrabbamein.
Það hefur meiri
vöðvamassa, tekur
virkari þátt í lífinu, á
síður á hættu að
detta og brjóta
bein og tapar
síður minni.
Karlmenn
ættu sérstak-
lega að taka
þetta til sín
enda lifa þeir
að meðaltali
skemur en
konur.
ALVÖRU KARLAKLÚBBUR?
Flestir þekkja hina hefðbundnu
saumaklúbba þar sem konur
hittast hver heima hjá annarri,
baka kökur, búa til rétti og skrafa
um það sem gengur á í lífi þeirra.
Fáheyrðir eru sambærilegir
karlaklúbbar þar sem þeir opna
dyr að heimilum sínum og útbúa
rétti í massavís til að bera á borð.
Þeir hittast frekar á barnum, horfa
á bolta og drekka bjór. Eða koma
saman í einhverjum öðrum til-
gangi, sem oft snýst um að keppa
í einhverju; fótbolta, körfu, póker
eða öðru. Það væri ekki óvitlaust
að brjóta upp gamla staðalímynd
karlmennskunnar og hóa
gömlum vinum
og kunningjum
saman, skipa
hverjum og
einum að
koma með
heimagert og
eiga góða stund
án aðstoðar
kapp-
leikja í
sjón-
varpi
eða
keppni í
einhverju.
Margir karlmenn eiga snjallsíma sem nota má
þegar afla þarf nauðsynlegra upplýsinga. Mörg
smáforrit eru í boði sem létta þeim lífið.
Fjöldi nauðsynlegra smáforrita eru í boði
fyrir Android- og iPhone-síma sem eru ætluð
karlmönnum á öllum aldri. Hver hefur til
dæmis ekki lent í því að vera í vandræðum með
bindishnútinn eða jafnvel viljað skipta um
bindishnút þegar stemningin nær hámarki? Þá
má fletta í gegnum How to Tie a Tie eða Tie-a-
Tie Deluxe og finna skemmtilega hnúta. Þegar
karlmenn grilla saman á fallegu sumarkvöldi
lenda þeir stundum í vandræðum. Hvað á að
grilla ferska maísinn lengi? Hvað tekur þykka
nautalundin langan tíma? Og hvað með sósuna,
gleymdum við henni? Svörin má meðal ann-
ars finna á Grill Guide, Weber’s On the Grill og
Grill Recipes. Stundum vilja karlmenn vera ör-
lítið lífsreyndari og smekklegri kringum hitt
kynið. Þá er tilvalið að blanda góðan kokteil en
hver kann slíkt nú til dags? Þá er gott að fletta í
Cocktails Made Easy og finna ljúffenga drykki.
Ef von er á gestum má gjarnan hressa upp á vín-
skápinn áður en þeir koma í hús. Allir karlmenn
þurfa að safna yfirvaraskeggi einhvern tímann
um ævina en ungir karlmenn þekkja ekki vel
til tískustrauma á því sviði. Þá er gott að fletta
gegnum Stachetastic og útbúa eina góða mottu.
Smáforrit fyrir karlmenn
Lendi karlmenn í vandræðum við grillið má alltaf grípa í
snjallsímann og finna gagnleg ráð og uppskriftir.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tilnefnt til
Grímunar 2012
sem besta
barnasýningin
Fréttatíminn Morgunblaðið
Baunagrasið
og
Sun 21/10 kl. 13:00
Sun 28/10 kl. 13:00
„Ég gat hlegið
endalaust á
þessari sýningu“
M.K. Djöflaeyjan, RÚV.
„Þeir Gói og Þröstur segja
söguna eins og þeim einum
er lagið með leiftrandi húmor
og hnyttnum orðatiltækjum“
I.Þ. Hugrás, HÍ.
Gói
„Þetta gamla ævintýri segja þeir
Gói og Þröstur nú á Litla sviði
Borgarleikhússins við mikla
ánægju ungra leikhúsgesta“
S.A. TMM.
Einn Gói, þrjár baunir og margfaldur Þröstur verða að heilu ævintýri
Bráðskemmtileg og fyndin leiksýning fyrir alla fjölskylduna
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!