Fréttablaðið - 18.10.2012, Page 60

Fréttablaðið - 18.10.2012, Page 60
18. október 2012 FIMMTUDAGUR48 bio@frettabladid.is 48 Kvikmyndin Hope Springs er frumsýnd annað kvöld. Myndin skartar gæðaleik- urunum Meryl Streep og Tommy Lee Jones í aðal- hlutverkum. Gamanleikar- inn Steve Carell fer einnig með hlutverk í myndinni. Hjónin Kay og Arnold Soames hafa verið gift í rúm þrjátíu ár og uppgötva dag einn að ástríð- an er ekki lengur til staðar í sambandi þeirra. Dag einn til- kynnir Kay manni sínum að hún hafi bókað þau í hjónabandsráð- gjöf hjá sálfræðingi einum í bænum Hope Springs. Í fyrstu er Arnold mótfallinn hugmynd- inni og þvertekur fyrir að taka þátt í tímunum með konu sinni, en lætur loks undan eftir nokk- urt tiltal. Sálfræðingurinn spyr hjónin nærgöngulla spurninga og fær þau til að taka á vanda- málum sínum og um leið reyna að kynda upp í sambandinu sem hafði orðið hvunndagslífinu að bráð. Kvikmyndin þykir bæði draga upp gamansama en um leið Gott handrit, frábær leikur FRÁBÆRIR LEIKARAR Meryl Streep og Tommy Lee Jones sýna stórleik í myndinni Hope Springs sem frumsýnd verður annað kvöld. raunsanna mynd af hjónabandi tveggja einstaklinga sem í tím- ans rás hafa fest í viðjum van- ans. Handritshöfundur mynd- arinnar, Vanessa Taylor, er einungis 34 ára gömul og hefur áður starfað við handritaskrif sjónvarpsþátta á borð við Game of Thrones, Gideon‘s Crossing, Alias, Cupid og lögregluþættina Jack & Bobby. Handritið þykir sérstaklega vel skrifað og hafa aðalleikararnir, Meryl Streep og Tommy Lee Jones, fengið hrós fyrir leik sinn í myndinni. Leikstjóri myndarinnar, David Frankel, hefur áður leik- stýrt kvikmyndunum The Devil Wears Prada, sem skartaði ein- mitt Meryl Streep í aðalhlut- verki, Marley & Me og The Big Year. Hann hlaut meðal ann- ars Emmy-verðlaunin árið 2004 fyrir framúrskarandi leikstjórn á gamanþætti fyrir Entourage- sjónvarpsþættina. Kvikmyndin hefur víðast fengið góðar móttökur og hlýt- ur 74 prósent frá gagnrýn- endum vefsíðunnar Rotten- tomatoes. com. Roger Ebert gefur myndinni þrjár stjörn- ur og segir handritið gott en ekki frábært. Gagnrýnendur eru sammála um að Jones sýni stórleik í Hope Springs en um Streep segir Ebert: „Það er ekki mikið hægt að segja um Streep sem ekki hefur verið sagt áður. Hún á sér enga líka.“ Næsta kvikmynd leikstjórans David Frankel nefnist One Chance og segir sögu söngvarans Pauls Potts. Potts er Íslendingum vel kunnugur en hann hefur meðal annars komið fram á Jólatónleikum Björgvins Halldórssonar. Potts vann sem símasölumaður þegar hann ákvað að láta reyna á gæfuna og tók þátt í sjónvarpsþáttunum Britain‘s Got Talent árið 2007 og sigraði í keppninni. Frumsýningardagur myndarinnar um Potts hefur enn ekki verið tilkynntur. NÆSTA MYNDIN UM PAUL POTTS DE NIRO LEITAR AÐ ÍBÚÐ Stórleikarinn Robert De Niro er að leita sér að nýju heimili til að leigja eftir að íbúðin hans á Manhattan brann í sumar. Talið er að það taki þrjú ár að lagfæra íbúðina. Þessi teiknimynd frá Disney, í leik- stjórn hins óviðjafnanlega Tims Burton, er auk Hope Springs frum- sýnd í kvikmyndahúsum landsins um helgina. Myndin fjallar um hinn unga Victor sem á erfitt með að sætta sig við missinn þegar hundurinn hans og besti vinur, Sparky, deyr. Hann tekur því til sinna ráða og nær með hjálp vísindanna að lífga hundinn aftur við. Útkoman var þó ekki jafn góð og hann hafði von- ast til því hundurinn reynist ekki alveg jafn hjartahlýr og kelinn í hinu nýja lífi. Auk þess hefur hann tekið smávegis útlitsbreytingum í kjölfar lífgjafarinnar og er allur samansaumaður. Fyrst um sinn nær Victor að fela hundinn fyrir umheiminum en þegar hann svo sleppur út er voðinn vís. Það er engin önnur en Winona Ryder sem ljáir einu aðalhlut- verkinu í myndinni rödd sína, en þau Burton eru ekki alls ókunnug. Segja má að Burton hafi komið leikkonunni á kortið, því hennar fyrsta alvöru hlutverk var í mynd hans Beetlejuice árið 1988, þá aðeins 17 ára gömul. Með önnur aðalhlutverk fara Charlie Tahan sem ljáir hinum unga Victor rödd sína og þau Catherine O‘Hara og Martin Short sem túlka persónur herra og frú Frankenstein. Myndin er öll í svarthvítu og er sýnd í 3D. - trs Samansaumaður uppvakningahundur BESTU VINIR Þegar besti vinur Victors, hundurinn Sparky, deyr tekur hann til sinna ráða og lífgar hann aftur við. Það hefur þó sínar afleiðingar. Nýjasta Bond-myndin, Skyfall, hefur fengið mjög góða dóma hjá gagnrýnendum beggja vegna Atlantshafsins. Gagn- rýnandi The Independent segir að um eina bestu Bond-mynd- ina sé að ræða og blaðamaður The Times er einnig mjög heill- aður og segir hana frábært aft- urhvarf til sígildu Bond-mynd- anna. Leikstjórinn Sam Mendes og Javier Bardem í hlutverki illmennisins fá einnig hrós fyrir vel unnið verk. Gagnrýn- andi The Hollywood Reporter er einnig í skýjunum og segist strax vera farinn að bíða eftir næstu Bond-mynd. Bond fær góða dóma SKYFALL Daniel Craig í hlutverki 007 í nýju Bond-myndinni. Tilgangslaust verk Leikarinn Hugo Weaving var rödd illa vélmennisins Megatron í Transformers-kvikmyndum leikstjórans Michaels Bay. Wea- ving segir verkefnið tilgangslaust og að það hafi aðeins tekið hann tvær klukkustundir. Weaving er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Agent Smith í Matrix-þríleiknum og sem álfur- inn Elrond í Lord of the Rings. Hann segir verkefnið fyrir Bay ekki hafa skilið mikið eftir sig. „Þetta var skrítið verkefni og tók aðeins tvær klukkustundir. Ég sé ekki eftir því að hafa tekið það að mér, en ég tek sjaldan að mér verkefni sem mér þykja tilgangs- laus. Og þetta var slíkt verkefni. Ég meina það ekki á vondan hátt, þetta var einföld talsetning sem ég tók að mér samhliða öðrum verkefnum,“ sagði leikarinn sem átti aðeins í samskiptum við leik- stjórann í gegnum Skype eða síma. TILGANGSLAUST VERKEFNI Leikaranum Hugo Weaving þótti hlutverk sitt í Transformers tilgangslaust. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.