Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.10.2012, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 18.10.2012, Qupperneq 62
18. október 2012 FIMMTUDAGUR50 lifsstill@frettabladid.is KYNLÍF: TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is ÁR ERU SÍÐAN BRESKA FYRIRSÆTAN Agyness Deyn var valin fyrirsæta ársins í Bretlandi en hún hefur nú ákveðið að leggja fyrir- sætuferilinn á hilluna og gerast leikkona. Deyn giftist leikaranum Giovanni Ribisi í sumar. 5 ? Ég á frábæra og fallega kær-ustu. Höfum verið saman í 3 ár núna. Fyrstu tvö árin stund- uðum við reglulega kynlíf sem við höfðum bæði ánægju af. Síð- asta árið hefur kærastan mín verið í afar krefjandi námi þar sem er mikið álag. Við höfum varla stundað kynlíf á þessu ári, kannski á 5-6 vikna fresti, og þá hefur þetta verið afar klaufalegt kynlíf eins og við séum dottin úr æfingu. Hefur endað með of bráðu sáðláti innan mínútu eða að hún biðji mig um að hætta eftir nokkrar mínútur því hún finnur fyrir óþægindum. Hún segir að kynlöngunin hafi farið um leið og hún byrjaði í náminu því hún er svo stressuð og á þetta hug henn- ar allan og vill ekkert um þetta ræða. Ég er búinn að reyna allt, bæði með að „tæla“ hana með öllum hugsanlegum ráðum, sýna henni skilning og algjörlega láta hana í friði með von um að eitt- hvað frumkvæði komi frá henni, en það kemur ekkert. Þetta er farið að angra mig mikið og valda mér áhyggjum. Mér finnst kyn- lífslaust samband ekki heillandi, það vantar klárlega eitthvað, en ég færi aldrei að hætta með henni út af þessu samt sem áður því ég elska hana afar mikið. Er eitt- hvað sem þú getur ráðlagt mér að gera? SVAR Þar sem þetta er farið að valda þér áhyggjum þá þurfið þið að ræða saman. Þó þú reynir að sýna henni tillitsemi með því að láta hana vera þá er kynlíf mikil- vægur þáttur í flestum sambönd- um og því mikilvægt fyrir ykkur að leysa þetta í sameiningu. Nú veit ég að skólar fara í frí við og við, hafa þau tímabil einhverju breytt í ykkar kynlífsfasa? Streita getur deyft kynlöngun en einnig haft slæm áhrif almennt á líðan og lundarfar og því gæti verið gott fyrir kærustu þína að reyna að finna ráð við að minnka álagið, eða finna leið til að stjórna því betur. Fullnæging er frábær leið til streitulosunar og hana má fá með fleiri leiðum en samförum. En hvað er með sárs- aukann sem hún finnur fyrir? Þetta mætti skoða nánar og gæti verið merki eitthvað læknis- fræðilegt ástand eða að hún sé ekki nægjanlega kynferðislega æst, sérstaklega ef hún nær ekki að slaka á fyrir kelerí og er ekki með hausinn við verknaðinn. Þetta er líka spurning um nána snertingu. Sýnið þið hvort öðru almennt alúð? Kyssist þið jafnt og þétt yfir daginn? Strjúkið þið hvort öðru og faðmist? Þessir litlu hlutir geta gert ótrúlega mikið fyrir nánd innan sam- bands, sérstaklega á álagstímum þegar tími og löngun í kynlíf er af skornum skammti. Mikilvæg- ast er að þið talið saman, opin- skátt og hreinskilnislega, og finn- ið lausn á þessu saman. Ekki kynlífslaust samband SAMBAND Litlu hlutirnir geta gert ótrúlega mikið fyrir nánd. Nú herja hvers kyns pestir á landann og luma margir á gömlum húsráðum og venjum til að vinna bug á þeim. Blaðamaður Frétta- blaðsins fékk nokkra einstaklinga til að deila sínum ráðum með lesendum. Kristinn Schram þjóðfræðingur segir karla og konur hafa búið yfir ýmsum húsráðum til varnar sjúkdóm- um og kvillum hér á árum áður. „Ýmis grös sem tínd voru á Jónsmessu voru gjarnan notuð til lækninga, þar á meðal hornblaðka sem þykir góð við kvefi. Í gegnum tíðina hafa grasalæknar einnig lagt til að nota hvítlauk við kvefi og þrálátum hósta. Valhumall og fjallagrös voru svo lengi notuð gegn hósta, nef- slími og kvefi,“ segir hann. sara@frettabladid.is Hvítlaukur og önnur húsráð Önnur ráð sem virka vel við kvefi og flensu eru: ● Engifer virkar vel við hósta og kvefi á byrjunarstigi. Hægt er að rífa engiferrót út í súpur eða te en einnig má nota engifer í fótabað fyrir kalda fætur. ● Góður svefn er nauðsynlegur fyrir góða heilsu. Sé fólk vel úthvílt og í góðu jafnvægi er líklegra að það standi af sér kvef og umgangspestir. ● Cayenne-piparte virkar vel gegn kvefi. Hægt er að setja hnífsodd af cayenne-pipar út í heitt vatn og drekka. HEIMILDIR HEILSUBANKINN.IS ENGIFER ALLRA MEINA BÓT „Ég fæ rosalega sjaldan kvef, 7, 9, 13. Kannski af því ég set hvítlauk í allan mat. Ef ég finn að ég er að fá hálsbólgu drekk ég heitt vatn með sítrónu og hunangi og það virkar alltaf jafn vel. Það er þó greinilegt að barnið mitt borðar ekki nóg af matnum mínum því hún er heima lasin núna, enda er maturinn á leikskólanum vinsælli en minn.“ Gunna Dís Þáttastjórnandi Virkra morgna á Rás 2 „Mér finnst best að skella í sig sterku áfengi og sofa veikindin svo úr sér. Vodki og kók er til dæmis mjög góð blanda og svo er gott að taka verkjalyf með því og fara svo undir sæng. Best er að sofa með tvær sængur svo maður svitni þetta örugglega úr sér. Þegar maður nær svo að brjótast úr vímunni daginn eftir ætti maður að vera orðinn góður.“ Þorsteinn Guðmundsson leikari „Ég set yfirleitt heitt vatn í skál, handklæði yfir hausinn og anda að mér gufunni. Ég reyni líka að borða sterkan mat eins og indverskan mat eða sterka núðlusúpu og drekka te með sítrónu. Þetta eru ráð sem ég hef lært af fjölskyldunni og af eigin reynslu og finnst þau virka mjög vel við veikindum.“ „Ég fæ mér oftast heitt vatn með hunangi og engiferrót í veikindum. Stundum sker ég engifer í bita og borða það hrátt, það hreinsar allt. Svo er gott ráð að sofa með hand- klæði um hálsinn ef maður er kvef- aður. Það heldur hita og dregur í sig svitann, sem trefill gerir ekki. Ætli ráð númer eitt sé þó ekki að girða sig vel því ef kuldinn kemst á milli þá er maður í vondum málum.“ Sunneva Sverrisdóttir þáttastjórnandi Tveir plús sex Jón Ragnar Jónsson söngvari og fótboltamaður KVEF OG HÓSTI Nú liggja margir lands- menn heima með kvef eða flensu. Flestir kunna þó einhver húsráð til að vinna bug á slíkum kvillum. N O R D IC PH O TO S/G ETTY HEILSA Í rannsókn sem National Sleep Foundation vann árið 2008 kom í ljós að flestir Bandaríkja- menn sváfu í rúma sex klukku- stundir á nóttu, í stað þeirra 7 til 9 tíma sem ráðlagðir eru. Fólk sem fær ónógan svefn upplifir oft: ■ Svengd. Fólk sem sefur lítið finnur oft fyrir svengdartilfinn- ingu þrátt fyrir að borða nóg og sækir frekar í feitan mat. ■ Erfiðleika með einbeitingu. Fólk sem sefur skemur en sjö tíma á sólarhring á oft í erfiðleikum með einbeitingu, er gleymið og á erfitt með að læra. ■ Tíð veikindi. Þeir sem eru oft kvefaðir eða eiga erfitt með að ná sér af kvefi eru líklega ekki að fá nægan svefn. Þeir sem sofa skem- ur en sjö tíma á nóttu eru þrisvar sinnum líklegri til að smitast af kvefi en þeir sem sofa minnst átta tíma á nóttu. Góður svefn, góð heilsa SVEFN FYRIR HEILSUNA Nægur svefn er góður fyrir heilsuna. NORDICPHOTOS/GETTY Guðrún Benediktsdóttir Innanhússarkitekt FHI hefur áratuga reynslu í eldhúshönnun og teiknar draumaeldhúsið fyrir þig....vönduð...stílhrein...falleg... Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. Sunnudaginn 21. október opið 13-17 Eldhús N O R D IC PH O TO S/ G ET TY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.