Fréttablaðið - 25.10.2012, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 25. október 2012 23
Þann 7. desember 2009 undir-rituðu Katrín Júlíusdóttir, þá
iðnaðarráðherra, og Steingrímur
J. Sigfússon, þá fjármálaráðherra,
samkomulag við fulltrúa RioTinto-
Alcan á Íslandi, Norðuráls, Alcoa
Fjarðaáls auk Elkem á Íslandi um
fyrirframgreiðslu tekjuskatts og
greiðslu tímabundins raforku-
skatts. Skattgreiðslur þessar
hljóðuðu samtals upp á um 8 millj-
arða króna á þriggja ára tímabili,
2010-2012, umfram aðra þá skatta
sem fyrirtækin myndu jafnframt
greiða á tímabilinu. Samkomulag
þetta var gert í ljósi erfiðrar stöðu
ríkissjóðs á þessum tíma, enda lá
fyrir að stærsta áskorunin í ríkis-
fjármálunum yrði á fyrrgreindu
tímabili.
Í samkomulagi þessu sagði
m.a.: „Þetta fyrirkomulag, ásamt
sköttum á raforku og kolefnis-
losun vegna fljótandi eldsneytis,
sem lagðir verða á með sérstök-
um lögum, mun standa í 3 ár frá
árinu 2010 að telja. Skattarnir eru
tímabundnir og falla niður í árs-
lok 2012.“
Þrátt fyrir skýr ákvæði þessa
samkomulags hafa stjórnvöld þrí-
vegis lagt fram tillögur að skatta-
breytingum sem ganga þvert á
ákvæði samningsins, nú síðast
með endurflutningi á tillögu um að
fella niður ákvæði um tímabundið
gildi raforkuskatts. Slíkar tillögur
hafa í öllum tilvikum verið lagðar
fram án nokkurs samráðs við aðra
samningsaðila.
Nýverið var haft eftir nýjum
fjármálaráðherra, Katrínu Júlíus-
dóttur, að stjórnvöld hefðu ákveð-
ið að framlengja raforkuskatt
til 2018 í ljósi erfiðra aðstæðna
í ríkis fjármálum. Með öðrum
orðum henti stjórnvöldum ekki að
standa við ofangreint samkomu-
lag og hafi því einhliða ákveðið
að framlengja gildistíma skatt-
heimtunnar.
Stjórnvöld hafa á sama tíma
lagt á það áherslu í ræðu og riti
að mikilvægt sé að laða hingað til
lands aukna erlenda fjárfestingu. Í
nýlegu viðtali við Bloomberg sagði
Katrín það vera eitt helsta stefnu-
mál sitt eftir að hún tók við emb-
ætti fjármálaráðherra að einfalda
skattkerfið til að laða að erlenda
fjárfestingu.
Til að laða að erlenda fjárfesta
þarf vissulega að byggja á hag-
stæðu skattkerfi og ekki síður á
góðri samkeppnisstöðu á viðkom-
andi mörkuðum. Hins vegar er
ekki síður mikilvægt að stöðug-
leiki ríki í skattkerfi hér á landi
sem og stefnu stjórnvalda til lengri
tíma litið. Þá þarf vart að taka
fram mikilvægi þess að hægt sé að
treysta þeim samningum sem ráð-
herrar undirrita hverju sinni. Það
er ekki trúverðug stefna í augum
erlendra fjárfesta, né annarra ef
því er að skipta, að samningar við
stjórnvöld séu aðeins virtir eftir
hentugleika hverju sinni.
Þrátt fyrir skýr ákvæði þessa samkomu-
lags hafa stjórnvöld þrívegis lagt fram
tillögur að skattabreytingum sem ganga
þvert á ákvæði samningsins...
Orð skulu standa –
eða hvað?
Raforkuskattur
Þorsteinn
Víglundsson
framkvæmdastjóri
Samtaka
álframleiðenda
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
HEFST Í KVÖLD KL. 20.45