Fréttablaðið - 25.10.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.10.2012, Blaðsíða 4
25. október 2012 FIMMTUDAGUR4 Í frétt um Bakkavör, sem birtist í Markaðnum í gær, kom fram að MP banki hefði verið einn þeirra aðila sem seldu nýverið hluti í félaginu. MP banki kannast hins vegar ekki við að hafa átt hluti í Bakkavör né að hafa haft milligöngu um sölu á bréfum í félaginu. Beðist er velvirðingar á þessu. Í sömu frétt kom fram að Guðmundur Oddsson hefði tekið sæti í stjórn Bakkavarar. Það er ekki rétt heldur er það Guðmundur Ingvi Sigurðs- son, lögmaður hjá Lex, sem situr í stjórninni. HALDIÐ TIL HAGA DÓMSMÁL Aðalmeðferð fór fram í gær í máli Más Ívars Henryssonar, margdæmds manns, sem ákærður er fyrir fjöldann allan af brotum, meðal annars nokkrar árásir á lög- reglumenn. Málið var höfðað með þrem- ur ákærum og einni framhalds- ákæru að auki. Ákæruliðirnir snúa að hylmingu yfir þjófnaði, fíkniefnabrotum, líkamsárásum og fimm árásum á lögreglumenn. Ein árásin var sýnu alvarlegust, en þá kýldi hann í gegnum glugga á salernishurð á lögreglustöð og við það fóru glerbrot í augu varðstjóra, sem hlaut af varanlegan skaða á auga og sjón. Már Ívar hefur sætt gæsluvarð- haldi vegna málanna síðan í fyrri hluta september. Í varðhalds- úrskurði sem var kveðinn upp yfir honum 11. september kemur fram að einnig sé til rannsóknar grunur um mjög gróft heimilisofbeldi hans gegn þáverandi unnustu sinni. Samkvæmt úrskurðinum er hann grunaður um að hafa slegið hana með krepptum hnefa, kastað henni utan í vegg og slegið höfði hennar ítrekað í vegg þar til hún missti meðvitund og við annað til- efni hrint henni í gólfið, sparkað ítrekað í hana, rifið gat á galla- buxur hennar og rekið fingur upp í leggöng hennar. Það síðastnefnda flokkast sem nauðgun ef brotið sannast. Þessi ofbeldisverk eru hins vegar ekki meðal ákæruatriðanna sem réttað var vegna í gær. Sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins þótti ákæruvaldinu málið ekki fullrannsakað og vísaði því til baka til frekari meðferðar. Unnustan mun hafa í huga að draga kærur sínar til baka, en ekki liggur fyrir hvers vegna. - sh Margdæmdur maður fyrir dómi vegna ítrekaðra og alvarlegra árása á lögreglumenn auk annarra brota: Heimilisofbeldismál sent aftur í rannsókn LÖGREGLUSTÖÐIN VIÐ HVERFISGÖTU Hér braut Már rúðu þannig að gler fór í auga lögreglumanns. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna- stofnun hefur gert það að tillögu sinni að heimila rækjuveiðar í Skjálfanda og Arnarfirði. Þetta er niðurstaða Hafró eftir að árlegri stofnmælingu á rækju á grunn- slóð vestan- og norðanlands lauk. Könnuð voru sex svæði: Arnar- fjörður, Ísafjarðardjúp, Húnaflói, Skagafjörður, Skjálfandi og Axar- fjörður. Í Skjálfanda var stofnvísitala rækju yfir meðallagi og lagt til að opnað yrði fyrir rækjuveiðar með 400 tonna aflamarki. Stofnvísi- tala rækju í Arnarfirði var undir meðal lagi en var hærri en haustið 2011 og lagt til að leyfðar verði veiðar á 450 tonnum af rækju á fiskveiðiárinu. - shá Ástand rækju á grunnslóð: Hafró mælir með nokkurri rækjuveiði VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 18° 11° 8° 15° 18° 9° 9° 26° 14° 24° 17° 30° 5° 17° 19° 2° Á MORGUN 6-10 m/s. LAUGARDAGUR 8-13 m/s kólnandi. -1 -3 -4 -2 1 1 -4 1 2 6 4 5 6 5 5 3 3 4 7 6 13 4 -5 2 2 5 4 4 4 3 7 6 UMHLEYPINGAR Breytingar á morg- un þegar gengur í suðvestan átt og þykknar upp um vestanvert landið, slydda í fyrstu en síðan rigning. Hlýnar smám saman og vætu- samt á laugardag en fer kólnandi er líður á daginn með snjókomu norð- austantil síðdegis. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður STJÓRNMÁL Kjördæmisþing Fram- sóknarflokksins í Norðaustur- kjördæmi tekur ákvörðun um það um helgina hvaða leið verður farin til að velja á framboðslista fyrir næstu Alþingiskosningar. Tveir gefa kost á sér í efsta sæti; Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður flokksins, og Hösk- uldur Þórhallsson, þingmaður kjördæmis ins. Ákveðið hefur verið að stilla upp á lista í Norðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er ekki útilokað að tillaga um það komi fram í Norðausturkjördæmi. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru Sigmundur og fylgis- menn hans hlynntir því að tvöfalt kjördæmisþing velji á lista. Í her- búðum Höskuldur og hans fólks er hins vegar vilji fyrir að fara í póst- kosningu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sömu heimildir herma að von sé á átakafundi um helgina. Stuðn- ingsmenn Höskuldar telja hann eiga mun meiri möguleika á sigri því fleiri sem taka þátt. Höskuldur nýtur mests stuðnings á þéttbýlasta svæðinu, í kringum Eyjafjörðinn. Sigmundur Davíð sækir hins vegar meiri stuðning á Austur land. Það var fyrir hvatningu þaðan að hann ákvað að gefa kost á sér í for- mannsembættið á sínum tíma og hann var hvattur til að bjóða sig fram í kjördæminu þá. Reykjavík varð þó fyrir valinu „að sinni“ eins og segir í yfirlýsingu hans. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að slagurinn á milli þeirra tveggja sé orðinn mjög harður. Sumir líta á hann sem framhald af átökum þeirra um formannsstólinn. Stuðningsmenn Höskuldar reyna að stilla málinu þannig upp að um baráttu tveggja einstaklinga um efsta sæti á lista sé að ræða og vísa í rætur Höskuldar í kjördæminu. Stuðningsmenn Sigmundar Davíðs vísa hins vegar í að það muni veikja flokkinn mjög ef formaður lúti í lægra haldi. Kjördæmisþingið um helgina verður því að sumu leyti mæling á styrk þeirra innan stofnana flokks- ins. kolbeinn@frettabladid.is Tekist á um hve margir fá að velja á framboðslista Búast má við deilum hjá Framsóknarflokknum í Norðausturkjördæmi um helgina um hvernig valið verður á framboðslista. Póstkosning og tvöfalt kjördæmisþing líklegustu leiðirnar. Átökin um efsta sætið harðna. FORMANNSKJÖR Höskuldur, Sigmundur Davíð og Páll Magnússon buðu sig allir fram til formanns árið 2009. Sumir heimildar- manna blaðsins líta á slaginn í Norðausturkjördæmi sem framhald af þeirri baráttu. FRÉTTBALAÐIÐ/ANTON Miðstjórn Framsóknarflokksins samþykkti samræmdar fram- boðsreglur í maí og eru fimm leiðir færar til að velja á lista: ■ Póstkosning ■ Lokað prófkjör ■ Tvöfalt kjördæmaþing ■ Uppstilling ■ Opið prófkjör Framboðsleiðir GENGIÐ 24.10.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 225,0384 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,91 126,51 201,58 202,56 162,89 163,81 21,835 21,963 21,904 22,034 18,804 18,914 1,5776 1,5868 193,39 194,55 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Vegna fréttar um gagnrýni for- stöðumanns húsafriðunarnefndar á byggingu Þorláksbúðar við Skálholt, sem birtist í blaðinu á þriðjudag, skal áréttað að menntamálaráðherra hafnaði ekki friðun í Skálholti heldur skyndifriðun. Friðunarferli mun í gangi en skyndifriðun hefði haft í för með sér að framkvæmdir hefðu verið stöðvaðar. NÝ KILJA atkvæði skildu Sigmund Davíð og Höskuld að í formannskjöri. Sigmundur fékk 449 atkvæði en Höskuldur 340. 109
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.